Morgunblaðið - 07.06.2018, Síða 46

Morgunblaðið - 07.06.2018, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Undanfarin ár hafa Faxaflóahafnir sf. sett upp veglega ljósmyndasýn- ingu á steyptum stöplum á Mið- bakka. Sýningin verður opnuð rétt fyrir Hátíð hafsins og stendur fram áhaust. Texti með myndunum er bæði á íslensku og ensku og því höfðar sýningin einnig til erlendra ferðamanna, sem leggja leið sína á hafnarsvæðið. „Það er stöðugur straumur fólks að skoða sýninguna. Ég kíkti ein- mitt út um gluggann áðan og þá voru erlendir ferðamenn með bak- poka að skoða sýninguna,“ sagði Erna Kristjánsdóttir, markaðs- stjóri Faxaflóahafna, þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í gær. Höfundar ljósmyndasýningar- innar eru þeir Guðjóni Ingi Hauks- son og Guðmund Viðarsson, en þeir hafa séð um sýninguna fyrir Faxaflóahafnir sf. undanfarin ár. Sýningin í ár ber heitið: „Skipin og hafnirnar við Faxaflóa … þá held ég fleyi til hafnar“. Nafnið er tekið úr Síldarvals- inum vinsæla en hugmyndina að nafngiftinni átti Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Tillaga hans er tilvitnun í Síldarvalsinn og þótti tilheyra vel efnistökum sýn- ingarinnar í ár. Sýningarspjöldin innihalda stikl- ur úr sögu íslenskra skipa og hafna við Faxaflóa. Stiklað er á stóru í þróun hafnanna og þeirra skipa er höfðu viðkomu eða áttu heimahöfn í Reykjavík og öðrum höfnum við Faxaflóann, svo sem í Sundahöfn, Akraneshöfn, Borgar- neshöfn eða Grundartangahöfn. „Saga skipanna er ekki tæmandi í svo stuttri sýningu en mismun- andi skipum eru gerð skil, skipum sem eiga merka sögu á einhvern sögulegan hátt eða eru sérstök fyrir það hlutverk sem þau gegndu. Saga sem kannski er ekki öllum kunn,“ segir í kynningu á sýningunni. Í því sambandi má nefna sér- hæfð skip, allt frá kútterum til kafbáta, sem gefur góða vísbend- ingu um þá fjölbreytni sem ein- kennt hefur skipasögu landsins og þátt hafnanna í þeirri sögu. En hafnirnar hafa gegnt mikilvægu hlutverki í þessari þróun sem skip- in eru þátttakendur í. Sem dæmi má nefna þýska kafbáta sem komu til hafnar í Reykjavík 1939, rétt áður en seinni heimsstyrjöldin skall á. Einnig má nefna afar sér- stakt síldarbræðsluskip sem fengið var til landsins þegar síldarævin- týrið í Faxaflóa stóð sem hæst. Og svo mætti lengi telja. „Reykjavíkurhöfn með sinni miklu og löngu sögu tengist mikl- um meirihluta þessara skipa en verandi höfn höfuðborgarinnar er hún fyrsti viðkomustaður flestra skipa sem erindi eiga til landsins. Fyrir áhugafólk um þróun og sögu er þessi upprifjun skemmti- leg innsýn í horfinn tíma sem birt- ist þó ljóslifandi í nýjustu skip- unum sem koma nýsmíðuð um langan veg eitt af öðru til hafnar. Þau skapa áframhaldandi sögu framtíðarinnar,“ segir m.a. í kynn- ingunni. „Þá held ég fleyi til hafnar“ Í hitastigsmælingum Matvælastofnunar á lönduðum afla í fyrra- sumar mældist hæsti meðalhiti hjá bátum sem lönduðu í Þorlákshöfn (5,6°C) og á Siglufirði (4,2°C). Þar sem hitastig mældist hátt var algeng athugasemd eftirlits- manna: „Enginn ís sjáan- legur um borð“ eða „mjög lítið af sjáanlegum ís í kari“, segir í frétt á heimasíðu Matvælastofn- unar. Í reglugerð er hnykkt á því að kæla skuli afla eins fljótt og auðið er eftir að hann kemur um borð og skipstjórnandi skal geta sýnt fram á að hafa tekið nægan ís til veiði- ferðarinnar. Á tímabilinu frá maí til ágúst 2017 voru teknar hitastigsmælingar á lönduðum afla. Alls voru þetta 140 mælingar sem teknar voru víðs veg- ar um landið. Um 90% bátanna voru á strandveiðum og tæp 88% mæl- inga voru af strandveiðibátum. Kaldari með krapa Meðalhitastig afla var 2,8 °C, þar af voru 40% hitastigsmælinga lægri eða jafnt og 2 °C, sem er viðmið fyr- ir hitastig bráðnandi íss, segir á heimasíðu MAST. Við samanburð á hitastigi í afla má sjá að frá júní og út júlí hækkar meðalhiti afla sem kældur er með ís sem gæti útskýrst með hækkuðum sjávarhita en með- alhiti afla sem kældur er með krapa lækkaði hins vegar á sama tímabili. Skipting milli íss og krapa sem kælimiðils var nokkuð jöfn eða 40% af hitamælingum af afla kældum með ís og 46% með krapa. Meðalhiti þess afla sem kældur var með krapa var 2,1 °C og meðalhiti afla sem kældur var með ís var 3,6 °C. aij@mbl.is Morgunblaðið/Eggert „Enginn ís sjáan- legur um borð“  Misjöfn kæling hjá strandveiðibátum Opnað hefur verið nýtt smá- forrit um sögu hafnarsvæðisins í Reykjavík sem kallast Minja- slóð. Þetta er smáforrit, fyrir Apple og Android, sem inniheld- ur bæði Minjaleit og Minjaslóð. Minjaleit er fjársjóðsleit fyrir yngri kynslóðina þar sem unnið er með sögu hafnarsvæðisins í Reykjavík. Minjaslóð inniheldur fimmtán upplýsingapunkta á hafnarsvæðinu í Reykjavík þar sem hægt er að fræðast um höfnina, sögu hennar og hlut- verk, s.s. í tengslum við fullveldi og aukið sjálfstæði Íslands. Að smáforritinu standa Faxa- flóahafnir, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Minjastofnun Ís- lands. Sagan sögð í nýju forriti MINJASLÓÐ OPNUÐ Ljósmynd/Faxaflóahafnir Vinsæl sýning Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir áhugasömum gestum frá 100 ára sögu Reykjavíkurhafnar. Myndaspjald Tveir þýskir kafbátar, U-26 og U-26, liggja í Reykjavíkurhöfn 21. júlí árið 1939. Rúmum mánuði síðar brast seinni heimsstyrjöldin á. Ein vinsælasta sýningin í borginni á hverju sumri er ljósmyndasýning sem Faxaflóahafnir setja upp árlega á Miðbakkanum við Gömlu höfnina í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.