Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 55

Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 55
55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 585 Strákú á tann verði Garðkl a/Garðskófla 595 Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali frá 995 Garðslöngur í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali 3.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar með 100 kg burðarge frá 995 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá 999 Laufsugur 7.495 Úðabrúsar í mörgum stærðum  Foreldrar um þrítugt á Austurlandi eru að bugast á „millibarninu“ sem er sérlega krefjandi ungur piltur: „Við eigum gutta sem er að verða tveggja ára sem er bara eins og hann sé and- setinn stundum. Hann sko vægast sagt truflast ef hann fær ekki það sem hann vill. Hann bítur, klórar, kýlir, slær og hrækir. Sem dæmi, þá var hann nýlega trylltur í þrjú korter af því að hann fékk ekki frostpinna í morgunmat. Hann missti stjórn á sér í vikunni yfir kvöld- matnum því hann vildi ekki sitja í stóln- um sínum. Við tókum hann úr stólnum en hann hélt bara áfram í dágóðan tíma í kastinu. Hann tekur að minnsta kosti fjögur köst á hverjum degi. Við er- um búin að prufa að setjast niður hjá honum þegar hann lætur svona og taka utan um hann og vera góð en þá yfir- leitt gerir hann okkur eitthvað. Kýlir, hrækir eða eitthvað því um líkt. Ég hef prufað að setja hann í skammakrók í um það bil eina mínútu en það virkar ekki neitt. Hann hleypur bara í burtu og gargar. Við erum búin að reyna að verðlauna góða hegðun og refsa fyrir vonda hegðun en það virkar ekki neitt. En við gefum ekki eftir sama hvernig hann lætur, hann fær t.d. ekki ís þegar honum hentar þó að ég viti að það myndi kaupa okkur frið. Við getum ekki meira, erum algerlega búin á því og finnst okkur hafa þvílíkt mistekist með hann. Hvað eigum við að gera? Kæru úrvinda foreldrar! Ráðgjöf sem foreldrar fá úr umhverfinu sem eiga tvö, þrjú eða fleiri börn, og eitt þeirra hagar sér eins og hrafnsungi í lóuhreiðri, er yfirleitt vel meint en það er einmitt stundum gert ráð fyrir því að þessi hegðun barnsins sé vegna mistaka ykkar í uppeldinu. Og svo koma gjarna ráð eins og: „Hefur þú prófað að taka allt glúten, mjólkurvörur (eða bara einhverja eina fæðutegund) út úr fæðunni hjá barninu? Passar þú að hann fái næg- an svefn? Ertu búin að prófa sítrónu- vatn og kókosolíu? Og þar fram eftir götunum. Ráð af þessu tagi eru vel meint en staðreyndin er hins vegar sú að það er sjaldnast eitthvað eitt sem orsakar svona erfiða hegðun. Þarna er um flókið samspil að ræða þar sem erfðir og umhverfi spila saman. Ekki láta hugfallast þótt ég segi „flókið“ það er samt heilmikið sem hægt er að gera. Það mikilvægasta af öllu er að þið missið ekki kjarkinn og farið að efast um færni ykkar sem foreldrar. Þið eruð hæfir og góðir foreldrar sem greinilega viljið gera ykkar besta. Það er svo krefjandi og erfitt þegar okkur finnst við ekki ráða við hegðun barnsins okkar, bara sú hugsun og tilfinning getur haft mikil áhrif, þess vegna þurfið þið að ríghalda í sjálfs- traustið og styðja hvort annað. Lýsing ykkar á drengnum gefur vísbendingar um að hér sé á ferð öfl- ugur snúður, sem er fylginn sér og óhræddur við að gera kröfur til um- hverfis síns. Allt saman góðir mann- kostir sem þarf að rækta og beina í farvegi sem ekki hafa neikvæð áhrif á lífsgæði hans. Svona öflugir orku- boltar geta samt oft þreytt alla í kringum sig og þá byrjum við oft að hugsa hvernig við getum komið í veg fyrir næsta æðiskast og fyrr en varir er öll fjölskyldan farin að breyta hegðun sinni í takt við líðan eða hegð- unar einhvers eins á heimilinu. Það viljum við ekki! Ekki ykkar vegna og alls ekki hans vegna. Uppeldi snýst um daginn í dag en ekki síður hvar við viljum sjá krílin okkar eftir 5, 10, 15 eða 50 ár. Almenn ráð væru að takast á við eina hegðun í einu, þ.e. byrja t.d. á morgunmatnum, hunsa óæskilega hegðun, grípa hann „góðan“ og vera samtaka í einu og öllu. Reyna að horfa hlutlaust á hegðunina og muna að hún beinist ekki að ykkur sem ein- staklingum heldur vill ungi ákveðni herrann fá ís í morgunmat hvað sem tautar og raular. Þessi almenna ráðgjöf virkar vel á flest börn, en stundum þarf meira til. Í ykkar tilfelli tel ég svo vera og mæli eindregið með að þið sækið ykkur faglegan stuðning. Í því felst oft þetta misskilda hugtak „greining“. Þið hafið sjálfsagt heyrt eða lesið um „börn með greiningu“. Sannleikurinn er sá að ef þú ert með heila þá ertu með greiningu, þ.e. allir eru með ein- hverjar greiningu ef út í það er farið. Styrkleikur okkar felst í fjölbreytn- inni og þeirri staðreynd að engir tveir heilar eru nákvæmlega eins. Greiningu einstaklings má líkja við þá greiningu sem við gerum þegar við kaupum tölvu. Hvaða tegund er þetta, hvaða forrit eru í henni, hvern- ig er vinnsluminnið og vinnsluhrað- inn? Kannski er kúturinn ykkar með „mac“-heila í „pc“-fjölskyldu. Margar skipanir virka eins en alls ekki allar. Sum börn bregðast milu betur við sjónrænum fyrirmælum en munnlegum og hjá sumum eru munnleg fyrirmæli bara bending eða „cue“ fyrir mótþróa. Þið þurfið að vita hvernig heilinn hjá snúðnum ykkar virkar og hvaða leiðir henta honum best í öllu uppeldi og námi. Þannig náum við því besta fram í honum. Annað væri næstum eins og að velja sér síma eða tölvu með lokuð augun og gera svo kröfur um sömu virkni og hjá síðasta síma/tölvu. Fagleg aðstoð getur líka þýtt að sækja uppeldisnámskeið. Ef þið ætt- uð hund og mynduð ekki sækja hegð- unarnámskeið myndu margir hnykla brýrnar og hnussa yfir því að þið vilduð ekki tileinka ykkur faglega ráðgjöf sérfræðinga. En ég verð því miður enn vör við að fólk telji uppeld- isnámskeið frekar ósmart og ónauð- synleg. Eins og það sé auðvelt að tak- ast á við uppeldi barna í dag í þessu endalausa upplýsingaflæði, hraða og áreiti?! Uppeldisnámskeið eru dásamleg og gefandi. Ekki síst vegna þess að þar fáum við oft staðfestingu á að við séum á réttri leið. Ég mæli alltaf með námskeiðinu „Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar“ sem dr. Gyða Haraldsdóttir, sálfræðingur á Þroska- og hegðunarstöð, innleiddi. Námskeiðin eru haldin víða bæði á vegum heilsugæslu og sveitarfélaga. Þessi námskeið eru frábær og í raun lífsstílsnámskeið, þar sem áhersla er á styrkleika barnsins og fjölskyld- unnar, skipulag uppeldis, sam- takamátt foreldra og hvernig þessir þættir nýtast okkur ekki bara í upp- eldi heldur flestum daglegum athöfn- um. Þið getið líka leitað til heilsugæsl- unnar, á þjónustumiðstöðina í ykkar hverfi og svo eruð þið auðvitað líka velkomin hingað á SÓL. Er barnið mitt andsetið? Spurningum sem berast Fjölskyld- unni á mbl.is svar- ar SÓL sálfræði- og læknisþjón- usta en þar starfar hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita börnum, ungmennum og fjöl- skyldum þeirra góða þjónustu. Nánari upplýsingar á www.sol.is Spurt og svarað Krefjandi barn Ekki láta hugfallast þó að uppeldisverkefnið sé flókið, það er samt heilmikið sem hægt er að gera. það er ekki virðing. Börn virða þá sem virða þau. 4Stingið í samband. Enginn erfullkominn og allir misstíga sig, við gerum misstök, fáum móral og erum breysk. Ef börn skilja ekki hluti eða eru afskipt getur þeim liðið eins og þau séu ein og sambandslaus. Mikilvægt er fyrir börn að það sé tal- að við þau og það sé hægt að biðja þau afsökunar ef það á við. Þannig getum við stungið þeim í samband aftur. 5Lærið af börnunum. Leyfið ykkurað læra af börnunum ykkar, sjá nýja hluti með þeirra augum, fáið eins mikið og þið getið út úr þessu sambandi. Við eigum ekki börnin okkar, við fáum þau að láni og það er eins gott að nýta tímann vel. 1Vertu hugrakkt foreldri. Þaðgetur verið kvíðvænlegt að eiga börn og elska þau skilyrðis- laust. Hvað ef eitthvað kemur fyr- ir þau? Sýndu börnunum þínum hvað það er að vera hugrakkur, horfast í augu við ótta og flýja ekkert. 2Hlæðu! Börnum finnst ekkertskemmtilegra en að hlæja með foreldrum sínum. Geriði eitthvað skemmtilegt saman. Lesið brand- ara eða dansið. Skelltu þér svo á trampólínið! 3Jafningjar. Verið jafningjarbarnanna ykkar, þið eruð ekk- ert merkilegri en þau þó að þið teljið fleiri ár. Þið eigið bara að elska þau og passa. Það er ekkert mál að hræða börn til hlýðni en 5 UPPELDISRÁÐ Ilmar Krist- jánsdóttur Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, handritshöfundur og fráfarandi varaborgarfulltrúi, deilir hér fimm af sínum bestu uppeldisráðum, en hún á 12 ára stúlku og fjögurra ára dreng. Hún segist reyna fyrst og fremst að hafa það skemmtilegt með börnunum og taka hlutina ekki of alvarlega þó að það gusti stundum um heimilið þar sem allir fá leyfi til að vera með mikið skap. Það má nefnilega oft líka hlæja að stóru skapi, sínu eigin og annarra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.