Morgunblaðið - 07.06.2018, Qupperneq 55
55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
585
Strákú
á tann
verði
Garðkl a/Garðskófla
595
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
3.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar
með 100 kg burðarge
frá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá 999
Laufsugur
7.495
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
Foreldrar um þrítugt á Austurlandi
eru að bugast á „millibarninu“ sem er
sérlega krefjandi ungur piltur: „Við
eigum gutta sem er að verða tveggja
ára sem er bara eins og hann sé and-
setinn stundum. Hann sko vægast sagt
truflast ef hann fær ekki það sem hann
vill. Hann bítur, klórar, kýlir, slær og
hrækir. Sem dæmi, þá var hann nýlega
trylltur í þrjú korter af því að hann fékk
ekki frostpinna í morgunmat. Hann
missti stjórn á sér í vikunni yfir kvöld-
matnum því hann vildi ekki sitja í stóln-
um sínum. Við tókum hann úr stólnum
en hann hélt bara áfram í dágóðan
tíma í kastinu. Hann tekur að minnsta
kosti fjögur köst á hverjum degi. Við er-
um búin að prufa að setjast niður hjá
honum þegar hann lætur svona og taka
utan um hann og vera góð en þá yfir-
leitt gerir hann okkur eitthvað. Kýlir,
hrækir eða eitthvað því um líkt. Ég hef
prufað að setja hann í skammakrók í
um það bil eina mínútu en það virkar
ekki neitt. Hann hleypur bara í burtu og
gargar. Við erum búin að reyna að
verðlauna góða hegðun og refsa fyrir
vonda hegðun en það virkar ekki neitt.
En við gefum ekki eftir sama hvernig
hann lætur, hann fær t.d. ekki ís þegar
honum hentar þó að ég viti að það
myndi kaupa okkur frið. Við getum ekki
meira, erum algerlega búin á því og
finnst okkur hafa þvílíkt mistekist með
hann. Hvað eigum við að gera?
Kæru úrvinda foreldrar! Ráðgjöf
sem foreldrar fá úr umhverfinu sem
eiga tvö, þrjú eða fleiri börn, og eitt
þeirra hagar sér eins og hrafnsungi í
lóuhreiðri, er yfirleitt vel meint en
það er einmitt stundum gert ráð fyrir
því að þessi hegðun barnsins sé
vegna mistaka ykkar í uppeldinu. Og
svo koma gjarna ráð eins og: „Hefur
þú prófað að taka allt glúten,
mjólkurvörur (eða bara einhverja
eina fæðutegund) út úr fæðunni hjá
barninu? Passar þú að hann fái næg-
an svefn? Ertu búin að prófa sítrónu-
vatn og kókosolíu? Og þar fram eftir
götunum. Ráð af þessu tagi eru vel
meint en staðreyndin er hins vegar
sú að það er sjaldnast eitthvað eitt
sem orsakar svona erfiða hegðun.
Þarna er um flókið samspil að ræða
þar sem erfðir og umhverfi spila
saman. Ekki láta hugfallast þótt ég
segi „flókið“ það er samt heilmikið
sem hægt er að gera.
Það mikilvægasta af öllu er að þið
missið ekki kjarkinn og farið að efast
um færni ykkar sem foreldrar. Þið
eruð hæfir og góðir foreldrar sem
greinilega viljið gera ykkar besta.
Það er svo krefjandi og erfitt þegar
okkur finnst við ekki ráða við hegðun
barnsins okkar, bara sú hugsun og
tilfinning getur haft mikil áhrif, þess
vegna þurfið þið að ríghalda í sjálfs-
traustið og styðja hvort annað.
Lýsing ykkar á drengnum gefur
vísbendingar um að hér sé á ferð öfl-
ugur snúður, sem er fylginn sér og
óhræddur við að gera kröfur til um-
hverfis síns. Allt saman góðir mann-
kostir sem þarf að rækta og beina í
farvegi sem ekki hafa neikvæð áhrif
á lífsgæði hans. Svona öflugir orku-
boltar geta samt oft þreytt alla í
kringum sig og þá byrjum við oft að
hugsa hvernig við getum komið í veg
fyrir næsta æðiskast og fyrr en varir
er öll fjölskyldan farin að breyta
hegðun sinni í takt við líðan eða hegð-
unar einhvers eins á heimilinu. Það
viljum við ekki! Ekki ykkar vegna og
alls ekki hans vegna. Uppeldi snýst
um daginn í dag en ekki síður hvar
við viljum sjá krílin okkar eftir 5, 10,
15 eða 50 ár.
Almenn ráð væru að takast á við
eina hegðun í einu, þ.e. byrja t.d. á
morgunmatnum, hunsa óæskilega
hegðun, grípa hann „góðan“ og vera
samtaka í einu og öllu. Reyna að
horfa hlutlaust á hegðunina og muna
að hún beinist ekki að ykkur sem ein-
staklingum heldur vill ungi ákveðni
herrann fá ís í morgunmat hvað sem
tautar og raular.
Þessi almenna ráðgjöf virkar vel á
flest börn, en stundum þarf meira til.
Í ykkar tilfelli tel ég svo vera og mæli
eindregið með að þið sækið ykkur
faglegan stuðning. Í því felst oft
þetta misskilda hugtak „greining“.
Þið hafið sjálfsagt heyrt eða lesið um
„börn með greiningu“. Sannleikurinn
er sá að ef þú ert með heila þá ertu
með greiningu, þ.e. allir eru með ein-
hverjar greiningu ef út í það er farið.
Styrkleikur okkar felst í fjölbreytn-
inni og þeirri staðreynd að engir
tveir heilar eru nákvæmlega eins.
Greiningu einstaklings má líkja við
þá greiningu sem við gerum þegar
við kaupum tölvu. Hvaða tegund er
þetta, hvaða forrit eru í henni, hvern-
ig er vinnsluminnið og vinnsluhrað-
inn? Kannski er kúturinn ykkar með
„mac“-heila í „pc“-fjölskyldu.
Margar skipanir virka eins en alls
ekki allar. Sum börn bregðast milu
betur við sjónrænum fyrirmælum en
munnlegum og hjá sumum eru
munnleg fyrirmæli bara bending eða
„cue“ fyrir mótþróa. Þið þurfið að
vita hvernig heilinn hjá snúðnum
ykkar virkar og hvaða leiðir henta
honum best í öllu uppeldi og námi.
Þannig náum við því besta fram í
honum. Annað væri næstum eins og
að velja sér síma eða tölvu með lokuð
augun og gera svo kröfur um sömu
virkni og hjá síðasta síma/tölvu.
Fagleg aðstoð getur líka þýtt að
sækja uppeldisnámskeið. Ef þið ætt-
uð hund og mynduð ekki sækja hegð-
unarnámskeið myndu margir hnykla
brýrnar og hnussa yfir því að þið
vilduð ekki tileinka ykkur faglega
ráðgjöf sérfræðinga. En ég verð því
miður enn vör við að fólk telji uppeld-
isnámskeið frekar ósmart og ónauð-
synleg. Eins og það sé auðvelt að tak-
ast á við uppeldi barna í dag í þessu
endalausa upplýsingaflæði, hraða og
áreiti?! Uppeldisnámskeið eru
dásamleg og gefandi. Ekki síst vegna
þess að þar fáum við oft staðfestingu
á að við séum á réttri leið. Ég mæli
alltaf með námskeiðinu „Uppeldi
sem virkar, færni til framtíðar“ sem
dr. Gyða Haraldsdóttir, sálfræðingur
á Þroska- og hegðunarstöð, innleiddi.
Námskeiðin eru haldin víða bæði á
vegum heilsugæslu og sveitarfélaga.
Þessi námskeið eru frábær og í raun
lífsstílsnámskeið, þar sem áhersla er
á styrkleika barnsins og fjölskyld-
unnar, skipulag uppeldis, sam-
takamátt foreldra og hvernig þessir
þættir nýtast okkur ekki bara í upp-
eldi heldur flestum daglegum athöfn-
um.
Þið getið líka leitað til heilsugæsl-
unnar, á þjónustumiðstöðina í ykkar
hverfi og svo eruð þið auðvitað líka
velkomin hingað á SÓL.
Er barnið mitt andsetið?
Spurningum sem
berast Fjölskyld-
unni á mbl.is svar-
ar SÓL sálfræði- og læknisþjón-
usta en þar starfar hópur fagfólks
sem leggur metnað sinn í að veita
börnum, ungmennum og fjöl-
skyldum þeirra góða þjónustu.
Nánari upplýsingar á www.sol.is
Spurt og svarað
Krefjandi barn Ekki láta hugfallast þó að uppeldisverkefnið sé flókið, það er samt heilmikið sem hægt er að gera.
það er ekki virðing. Börn virða þá
sem virða þau.
4Stingið í samband. Enginn erfullkominn og allir misstíga sig,
við gerum misstök, fáum móral og
erum breysk. Ef börn skilja ekki
hluti eða eru afskipt getur þeim liðið
eins og þau séu ein og sambandslaus.
Mikilvægt er fyrir börn að það sé tal-
að við þau og það sé hægt að biðja
þau afsökunar ef það á við. Þannig
getum við stungið þeim í samband
aftur.
5Lærið af börnunum. Leyfið ykkurað læra af börnunum ykkar, sjá
nýja hluti með þeirra augum, fáið
eins mikið og þið getið út úr þessu
sambandi. Við eigum ekki börnin
okkar, við fáum þau að láni og það er
eins gott að nýta tímann vel.
1Vertu hugrakkt foreldri. Þaðgetur verið kvíðvænlegt að
eiga börn og elska þau skilyrðis-
laust. Hvað ef eitthvað kemur fyr-
ir þau? Sýndu börnunum þínum
hvað það er að vera hugrakkur,
horfast í augu við ótta og flýja
ekkert.
2Hlæðu! Börnum finnst ekkertskemmtilegra en að hlæja með
foreldrum sínum. Geriði eitthvað
skemmtilegt saman. Lesið brand-
ara eða dansið. Skelltu þér svo á
trampólínið!
3Jafningjar. Verið jafningjarbarnanna ykkar, þið eruð ekk-
ert merkilegri en þau þó að þið
teljið fleiri ár. Þið eigið bara að
elska þau og passa. Það er ekkert
mál að hræða börn til hlýðni en
5
UPPELDISRÁÐ
Ilmar Krist-
jánsdóttur
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, handritshöfundur
og fráfarandi varaborgarfulltrúi, deilir hér fimm af
sínum bestu uppeldisráðum, en hún á 12 ára
stúlku og fjögurra ára dreng. Hún segist reyna
fyrst og fremst að hafa það skemmtilegt með
börnunum og taka hlutina ekki of alvarlega þó að
það gusti stundum um heimilið þar sem allir fá
leyfi til að vera með mikið skap. Það má nefnilega
oft líka hlæja að stóru skapi, sínu eigin og annarra.