Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 64
Árnað heilla
Demants-
brúðkaup
Hjónin Kristmann
Magnússon og Hjör-
dís Magnúsdóttir,
oftast kennd við
Pfaff, eiga 60 ára
brúðkaupsafmæli í
dag, 7. júní. Þau
munu fagna áfang-
anum og lífinu á sól-
arströnd með nán-
ustu fjölskyldu.
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Ég er nýkominn frá Balí, er núna á Torrevieja á Spáni eftir við-komu í París og ætla að halda upp á afmælið þar í faðmi fjöl-skyldunnar, að hluta, en sonur okkar sem á líka afmæli í dag,
komst því miður ekki með,“ segir Garðar Berg Guðjónsson: „Móðir
mín býr hérna og bróðir minn sem býr i Noregi verður með okkur auk
konunnar minnar og dóttur en við þrjú vorum saman á Balí.
Það var langþráður draumur að komast á Balí og upplifa framandi
menningu. Við vorum í tvær vikur, skoðuðum margt og tókum því ró-
lega þess á milli. Við köfuðum í kóralrifum, fórum upp í fjöllin, skoð-
uðum aðrar eyjar og keyptum listmuni. Ég hef mikinn áhuga á ferða-
lögum, reyni að ferðast eins mikið og ég get með fjölskyldunni og
upplifa eitthvað nýtt. Við hjónin tökum alltaf krakkana með, höfum
gert frá því þau voru í vöggu, enda á fjölskyldan að fara saman í frí.“
Kona Garðars er Brynja Birgisdóttir og börn þeirra eru Alexander
Berg, f. 1994, og Birgitta Ríkey, f. 1996.
„Svo finnst mér gaman að sigla þegar veðrið er gott,“ en Garðar
var formaður Smábátafélags Reykjavíkur um tíma og starfar nú hjá
hvalaskoðunarfyrirtækinu Special Tours. Hann er viðskiptafræð-
ingur auk þess að vera vélstjóri og skipstjóri. „Það er stórskemmti-
legt að vera á sjónum, eltast við hvali og leita uppi lunda. Það gefur
lífinu gildi að sýna ferðamönnum eitthvað skemmtilegt. Ég var reynd-
ar mest að vinna í landi í vetur en fer á sjóinn inni á milli.“
Á Balí Garðar var hæstánægður með matinn á Balí eins og sést hér.
Nú á Spáni eftir
afmælisferð á Balí
Garðar Berg Guðjónsson er fimmtugur í dag
A
nna Soffía Hauksdóttir
Aðalheiðar fæddist á
Landspítalanum í
Reykjavík 7.6. 1958 og
ólst upp Hlíðunum í
Reykjavík. Hún var í Hlíðaskóla, lauk
landsprófi frá Ármúlaskóla, stúdents-
prófi frá MH 1977, prófi í rafmagns-
verkfræði frá HÍ 1981, MSc prófi frá
The Ohio State University 1983 og
PhD-prófi frá sama skóla 1987.
Anna Soffía hóf störf við HÍ haust-
ið 1987, varð prófessor 1988 og hefur
starfað allan sinn starfsferil við þann
góða skóla: „Ég var fyrsta konan sem
varð prófessor í verkfræði við Há-
skóla Íslands, um þrítugt. Starfið
felst í kennslu og rannsóknum að
meginhluta auk stjórnunarþáttar. Ég
hef sinnt ýmsum nefndastörfum, inn-
an skólans og utan, og kynnst þar af-
bragðs fólki. Ég nýt kennslunnar og
rannsókna og hef verið lánsöm með
samstarfsfólk. Háskóli Íslands er
góður vinnustaður með fjöldanum öll-
um af góðu og skemmtilegu sam-
starfsfólki. Ég hef birt um 80 vísinda-
Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor við HÍ – 60 ára
Í Hörpu Anna Soffía með Hauki Óskari og Margréti Aðalheiði, en þau að fara að syngja með Hamrahlíðarkórnum.
Fyrsti kvenprófessor-
inn í verkfræði við HÍ
Saman Anna Soffía með syni sínum og tengdadóttur, Auði Tinnu lögmanni.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.