Morgunblaðið - 07.06.2018, Síða 65
greinar, flestar á ritrýndum
ráðstefnum og í ritrýndum tímaritum
á mínu sviði. Þá hef ég flutt fjölda
tæknilegra fyrirlesta hérlendis og er-
lendis, en hef ekki verið iðin við fé-
lagsstörf.“
Anna Soffía fékk viðurkenningu Ís-
lenska stærðfræðifélagsins 1977;
viðurkenningu úr Minningarsjóði
Þorvaldar Finnbogasonar 1980; Ful-
bright-styrk 1981; „Centennial Keys
to the Future Award“ frá The Insti-
tute of Electrical and Electronics
Engineers (IEEE) 1984; Zonta
Amelia Earhart styrk 1986; ridd-
arakross hinnar Íslensku fálkaorðu
Anna Soffía
Hauksdóttir
Aðalheiðar
Einar Guðmundsson
b. á Svalbarða
Sigríður Pálmadóttir
húsfr. á Svalbarða í Miðdölum
Pálmi Einarsson
búfræðingur og landnámsstj. í Rvík
Soffía Sigurhelga Sigurhjartardóttir
húsfr. í Rvík
Haukur Pálmason
raforkuverkfr. og aðst. rafmagns-
veitustj.Rafmagnsveitu Rvíkur
Sigurhjörtur Jóhannesson
b. og símavörður á Urðum
Friðrika Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. á Urðum í Svarfaðardal
Rebekka
Sigurðar-
dóttir upp-
lýsingafulltr.
Félags-
stofnunar
stúdenta
Dr. Þóra Þórsdóttir
stjórnunarfr. í Guildford
í Surrey á Englandi
Anna Pálmadóttir
skrifstofum. í Rvík
Arnfríður Anna
Sigurhjartardóttir húsfr.
á Hofi í Svarfaðardal
Ari Eldjárn
uppistandari
Sigurður
Dag-
bjartsson
veiðieftir-
litsm. hjá
Fiski-
stofu
Jóhanna Jó-
hannesdóttir
rannsókn-
artæknifr. í Rvík
Sigurður Flosason
saxafónleikari
Kristján
Eldjárn gítar-
leikari
Ingibjörg Gísla-
dóttir matráðs-
kona í Arnarhvoli, í
Rvík og Kópavogi
Hulda Heiður Sigfúsdóttir
bókasafnsfræðingur í Rvík
Þórarinn
Eldjárn
rithöf-
undur
og skáld
Dr.Vésteinn Þórsson eðlis-
fr. hjá Institute for Systems
Biology í Seattle í BNA
Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfr. og fv. borgarfulltr.
Kristján
Eldjárn
forseti
Íslands
Sigfús
Sigurhjartarson
guðfr., kennari,
ritstj. og alþm.
Sigrún Sigur-
hjartard.
húsfr.á Tjörn
Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur
Gísli Jónsson mennta-
skólakennari á Akureyri
Þorsteinn Konráðsson
b., oddviti, organisti og fræðim.
á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal
Margrét Oddný Jónasdóttir
húsfr. á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal
Jóhannes Nordal Þorsteinsson
iðnrekandi í Rvík
Anna Gísladóttir
húsfr. og starfskona í
mötuneyti ráðuneyta í Rvík
Gísli Jónsson
b. í Saurbæ
Katrín Grímsdóttir
húsfr. í Saurbæ í Vatnsdal
Úr frændgarði Önnu Soffíu Hauksdóttur Aðalheiðar
Aðalheiður Jóhannesdóttir
húsfr., píanókennari og fulltrúi í Rvík
Þorsteinn Hannesson dr. í efnafr.
hjá Elkem, búsettur í Garðabæ
Eggert Hannes Þorsteinsson
stórkaupm. í Rvík
Kristín Friðgeirsdóttir
vélaverkfr. og kennari við
London Business School
Margrét Þóra Guðlaugs-
dóttir kennari í Rvík
Kristín Þorsteinsdóttir
verslunarm. í Rvík
fyrir vísindastörf á sviði rafmagns-
verkfræði 1998 og heiðursmerki
Verkfræðingafélags Íslands 2001.
Anna Soffía hefur áhuga á hreyf-
ingu, tónlist og reyndar flestum list-
greinum: „Ég er í frábærri rækt í
íþróttahúsi HÍ hjá Guðbjörgu Sigríði
Finnsdóttur. Þar hef ég eignast
margar góðar vinkonur. Ég hjóla í
vinnuna, vor, sumar, haust, nýt þess
að ganga og vera á skíðum, þó að ég
vildi gjarnan hafa meiri tíma fyrir
hvort tveggja. Hreyfing er ómissandi
fyrir andlega líðan og líkamlega og
við eigum að njóta hennar.
Móður minni tókst að kenna mér
nótnalestur á píanó, en ég hafði enga
eirð í það, þó að ég hefði endalausa
þolinmæði í bóknám og einkum
stærðfræði. Ég var hins vegar í kór-
um frá barnsaldri, þ. á m. í Fílharm-
óníukórnum hjá dr. Róbert Abraham.
Þá var ég sextán ára, ásamt Heiðu,
vinkonu minni frá sjö ára aldri. Síðar
var ég í kór Menntaskólans við
Hamrahlíð hjá Þorgerði og þaðan á
ég margar góðar vinkonur og vini,
ekki síst Þorgerði sjálfa. Bæði börnin
mín hafa verið í kórunum hennar og
það hefur verið dásamlegt að upplifa
kórinn aftur í gegnum þau. Ég hef
áhuga á klassískri tónlist og reyndar
allri tónlist. Ég lauk öðru stigi í klass-
ískum söng hjá Ingveldi Ýri söng-
konu og mig langar alltaf aftur í söng-
inn, kannski í léttari tónlist. Reyndar
hef ég áhuga á öllum listgreinum en
það er magnað hvað við Íslendingar
eigum mikið af framúrskarandi lista-
fólki á öllum sviðum. Ég fer mikið á
leiksýningar og vildi gjarnan komast
á fleiri tónleika.“
Fjölskylda
Börn Önnu Soffíu eru 1) Haukur
Óskar, f. 6.12. 1992, stærðfræðingur
og tölvunarfræðingur í Reykjavík, en
sambýliskona hans er Auður Tinna
lögmaður, og 2) Margrét Aðalheiður,
f. 11.5. 1996, nemi við í Listaháskóla
Íslands, búsett í Reykjavík.
Systkini Önnu Soffíu eru Jóhann-
es, f. 11.11. 1963, viðskiptafræðingur
og forstöðumaður hjá Íslandssjóðum,
búsettur í Reykjavík, og Helga, f.
18.2. 1969, lögfræðingur og skrif-
stofustjóri í utanríkisráðuneytinu,
búsett í Garðabæ.
Foreldrar Önnu Soffíu: hjónin Að-
alheiður Jóhannesdóttir, f. 9.2. 1931,
d. 15.6. 1997, píanókennari, húsfreyja
og fulltrúi, síðast hjá Orkustofnun, og
Haukur Pálmason, f. 7.2. 1930, raf-
orkuverkfræðingur og aðstoðarraf-
magnsveitustjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Nína Björk Árnadóttir fædd-ist á Þóreyjarnúpi í Lín-akradal í Vestur-Húna-
vatnssýslu 7.6. 1941, dóttir Árna
Sigurjónssonar, systursonar Stefáns
frá Hvítadal, og Láru Hólmfreðs-
dóttur. Hún var fóstruð frá eins árs
aldri af hjónunum Ragnheiði Ólafs-
dóttur og Gísla Sæmundssyni, sem
bjuggu á Garðsstöðum við Ögur í
Ísafjarðardjúpi.
Eiginmaður Nínu Bjarkar var
Bragi Kristjónsson bóksali og eign-
uðust þau þrjá syni, Ara Gísla, Val-
garð og Ragnar Ísleif.
Nína Björk stundaði gagnfræða-
nám á Núpi í Dýrafirði og leiklist-
arnám í Leiklistarskóla Leikfélags
Reykjavíkur. Auk þess stundaði hún
um nokkurt skeið nám við leiklistar-
fræðadeild Hafnarháskóla.
Fyrsta ljóðabók Nínu Bjarkar,
Ung ljóð, kom út 1965, vakti athygli
og gaf fögur fyrirheit um hvað koma
skyldi. Í ljóðunum takast á sterkar
andstæður; milli hins þekkta og
óþekkta. Ljóðabókin var fljótlega
þýdd á dönsku líkt og mörg önnur
verk hennar, sem þýdd voru á vel
flest Norðurlandamálin auk þýsku,
spænsku, rússnesku og pólsku.
Eftir Nínu Bjök liggja alls níu
ljóðabækur, tvær skáldsögur; Móð-
ir, kona, meyja, 1987 og Þriðja ástin,
1995, auk leikrita, m.a. Súkkulaði
handa Silju og Fugl sem flaug á
snúru. Hún skrifaði ævisögu vinar
síns, Alfreðs Flóka, og Ævintýra-
bókin með honum,1992. Leikrit
hennar voru sett upp í Þjóðleikhús-
inu, Leikfélagi Reykjavíkur, Leik-
félagi Akureyrar og víðar, auk þess
sem þau voru flutt í útvarpi, bæði á
Íslandi og erlendis. Hún varð valinn
borgarlistamaður árið 1985.
Í skáldsögu Vigdísar Gríms-
dóttur, Trúir þú á töfra?, sem kom
út 2011, er vísað til Nínu Bjarkar og
kveðskapar hennar. Aðalsöguhetjan,
Nína Björk, lifir og hrærist í skáld-
skap og fer með ljóð nöfnu sinnar
fyrir aðra þorpsbúa. Nína Björk er
helsta von fólksins í þorpinu, ljós-
geisli í lífi þeirra.
Nína Björk lést 16.4. 2000.
Merkir Íslendingar
Nína Björk
Árnadóttir
90 ára
Dóra Magnúsdóttir
Steingerður Þorsteinsdóttir
85 ára
Adda K. Gunnarsdóttir
Arndís Ólafsdóttir
Guðrún K. Jóhannesdóttir
Þóra Einarsdóttir
80 ára
Erna Magnúsdóttir
Georg Ragnarsson
Gerða Helga Pétursdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir
Ólöf Brynjúlfsdóttir
Sigurþór Ellertsson
Tryggvi Höskuldsson
75 ára
Gunnar Randver Ágústsson
Jónína Pálsdóttir
Sólrún Garðarsdóttir
Þóroddur Hjaltalín
Örn Sigurðsson
70 ára
Guðfinnur Guðmannsson
Guðrún Guðmundsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingvi Ágústsson
Magnús Valdimarsson
Sigfríður Óskarsdóttir
60 ára
Afifa Suleimane Valgy
Brynja Þorbjörnsdóttir
Guðmundur Brynjólfsson
Hjördís U. Rósantsdóttir
Hólmfríður Gísladóttir
Ingvar Sverrisson
Kristinn Magnússon
Njáll Eiðsson
Ólafur Helgi Árnason
Páll Stefánsson
Sigrún Ingadóttir
Sigrún Þórey Ágústsdóttir
Stefanía M. Jónsdóttir
Vilhjálmur B. Benediktsson
Þóra Sæunn Úlfsdóttir
50 ára
Agla Rögnvaldsdóttir
Ásgrímur Halldórsson
Bergur Hólm Aðalsteinsson
Danilo Damasco Baquiran
Gunnar Sveinsson
Hermann Þorláksson
Magnús Guðmundsson
Ragnheiður Gísladóttir
Robert Andrzej Koziel
Rúnar Sigtryggsson
Unnur Þormóðsdóttir
40 ára
Anna Jankowska
Elvar Aron Sigurðsson
Grzegorz Baszynski
Guðrún Jóna Jónsdóttir
Gunnhildur Stefánsdóttir
Hlynur Svavarsson
Jakob Gunnlaugsson
Janus Bragi Jakobsson
Jón Steinar Tómasson
Markús Fry
Marta Aurora Pardej
Ólafur Pétur Georgsson
Perla D. Hreggviðsdóttir
Ragna S. Haraldsdóttir
Vilhjálmur Halldórsson
Örvar Þór Kristjánsson
30 ára
Andrea Kristinsdóttir
Arndís Hrund Bjarnadóttir
Arnþór Ólafsson
Atli Magnús Gíslason
Halldóra S. Ásgeirsdóttir
Helgi Heimisson
Jóhannes Helgi Alfreðsson
Kristbjörg M. Bjarnadóttir
Kristrún Hildur Bjarnadóttir
Sara Björg Bjarnadóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurvin ólst upp í
Reykjavík, býr þar og er
pizzabakari hjá Flatey í
Reykjavík.
Kærasta: Erla Bjarný
Jónsdóttir, f. 1988, per-
sónuverndarfulltrúi
Fjarðabyggðar.
Dóttir: Björk, f. 2016.
Stjúpsonur: Brynjar Óli, f.
2005.
Foreldrar: Elín Bára
Birkisdóttir, f. 1959, og
Jens Líndal Ellertsson, f.
1961. Þau búa í Reykjavík.
Sigurvin Ellert
Jensson
30 ára Ólöf Lára ólst upp
í Hafnarfirði, býr þar, lauk
diplomaprófi í margmiðl-
unarhönnun og er versl-
unarstjóri í Hafsporti.
Maki: Jón Pétur Gunn-
arsson, f. 1990, nátt-
úrufræðingur hjá Blóð-
bankanum.
Foreldrar: Halldór Harð-
arson, f. 1957, þjónustu-
fulltrúi hjá Íslandsspili, og
Sigríður Einarsdóttir, f.
1958, yfirþjálfari sund-
deildar Ármanns.
Ólöf Lára
Halldórsdóttir
30 ára Kristín Lilja ólst
upp í Reykjavík, býr þar,
lauk BSc-prófi í hjúkr-
unarfræði frá HÍ og er
hjúkrunarfræðingur við
LSH.
Maki: Elías Sæbjörn Ey-
þórsson, f. 1989, læknir.
Sonur: Breki Fannar Elí-
asson, f. 2013.
Foreldrar: Sigurður Odd-
geirsson, f. 1946, fyrrv.
bankamaður, og Kristín
Einarsdóttir, f. 1955, fyrrv.
bankamaður.
Kristín Lilja
Sigurðardóttir
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
HÖR
Kjólar, peysur
og buxur.