Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 8. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 150. tölublað 106. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Verð: 239.990
Tilboð: 191.920
WIZAR
HVÍLDARSTÓLL
LENGI LIFIR Í
GÖMLUM
ROKKGLÆÐUM
MÖRKIN
ERU VÍÐA
AÐ ÞYNNAST
STREITULÍTIL
TILVERA Í
FÆREYJUM
VIÐSKIPTAMOGGINN SIGURÐUR OG ANNI 12ARROYO SECO 66
„Ég áætla að salan hafi aukist um
svona 40% í kringum leiki íslenska
landsliðsins,“ segir Hildur Sigrún
Guðmundsdóttir, fjármálastjóri og
meðeigandi Kjötkompanísins, þeg-
ar hún er innt eftir því hvort þátt-
taka Íslands á heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu hafi haft
merkjanleg áhrif á reksturinn.
Hún segir að mest hafi selst af
grillbökkum og hamborgurum en
að áhrifin hafi komið fram í flestum
vöruflokkum. Þótt Ísland sé nú fall-
ið úr keppni telur hún að salan
muni enn haldast góð enda muni
fólk halda áfram að fylgjast spennt
með mótinu.
Sömu sögu hefur Sindri Þór Sig-
ríðarson, verslunarstjóri sælkera-
verslunarinnar Fisherman, að
segja. „Það var klárlega aukning
þegar Ísland átti leik,“ sagði hann í
samtali við Morgunblaðið í gær. 20
Landsliðið örvaði
söluna talsvert
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Vilhjálmur Ari Arason læknir telur það
bagalegt að ábyrgð Háskóla Íslands sé
skýrð í þáttum sem snúa að aðkomu að
plastbarkamálinu svokallaða.
Hann segir að háskólinn verði að
kveða upp úr um það hvort frekari
þátttaka Tómasar Guðbjartssonar í
vísindarannsóknum sé í lagi í ljósi
þess að hann sé ábyrgur fyrir vísinda-
legu misferli samkvæmt úrskurði
rektors Karólínsku stofnunarinnar.
Vilhjálmur segir að úrskurður Kar-
ólínska skipti ekki máli varðandi
stöðu Tómasar sem skurðlæknis.
Rannsóknarþing sem Háskóli Ís-
lands hélt árið 2012, þar sem
plastbarkaígræðsla sem framkvæmd
var ári fyrr var lofsömuð þrátt fyrir
vafa um aðgerðina, telur Vilhjálmur
að hafi verið afdrifaríkt. Leiða megi
að því líkur að vegna niðurstöðunnar
sem var kynnt á þinginu hafi fleiri
plastbarkaaðgerðir verið gerðar. All-
ir sjúklingarnir þrír sem fengu íg-
ræddan barka á Karólínsku stofnun-
inni eru látnir.
„Á þinginu voru fyrstu niðurstöður
plastbarkaaðgerðar kynntar. Á þeim
tíma var ákveðinn vafi uppi í kringum
aðgerðina en á þessu þingi komu að-
ilar máls saman og luku lofsorði á að-
gerðina sem hefði tekist tiltölulega
vel. Sem vísindamanni finnst mér það
mjög óþægileg staða fyrir háskólann
að vita ekki hver ábyrgð HÍ í málinu
sé,“ segir Vilhjálmur.
Hann veltir því einnig upp hvort
lögregla eða saksóknari telji ástæðu
til þess að taka málið upp á grundvelli
nýrra upplýsinga.
Margt mjög slæmt sem
tengist plastbarkamálinu
Trúverðugleiki í húfi Afdrifaríkt rannsóknarþing HÍ
MTelur ábyrgð Háskóla ... »6
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er komið heim til Íslands
eftir þátttöku sína á HM í Rússlandi. Ketildyngja, Boeing 757-
þota Icelandair, lenti með leikmenn liðsins, starfsmenn og
stjórnendur KSÍ auk fjölmiðlafólks og annars starfsfólks á
Keflavíkurflugvelli á níunda tímanum í gærkvöld.
Flugvélinni var flogið í lágflugi yfir höfuðborgarsvæðið,
landsliðinu til heiðurs. Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guð-
mundsson klæddust æfingastuttbuxum landsliðsins við heim-
komuna en Gylfi Þór Sigurðsson bjó sig undir svala sumarloftið
og valdi síðbuxur til ferðalagsins.
Engin formleg móttaka var fyrir liðið en stefnt var að veislu-
höldum í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í gærkvöld. » Íþróttir
Íslenska landsliðið í knattspyrnu lenti í Keflavík í gærkvöld
Morgunblaðið/Eggert
Komnir heim eftir hetjulega frammistöðu