Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
ÁGÚST SPRENGJA
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI Í SÓL
Frá kr.
78.295
Frá kr.
59.995
Skoðaðunánar áwww.heimsferdir.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Lögregla kvödd til vegna skrautfugla
Matvælastofnun afturkallar heimild til innflutnings 328 skrautfugla frá Hollandi Hafa verið í
sóttkví síðan í febrúar Deilt um mítil sem greindist í dauðum fugli Til stóð að aflífa fuglana í gær
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Stofnunin lítur svo á að sóttkvíin
virki ekki. Þarna hafa orðið gríð-
arleg afföll og við vitum ekki hver
skýringin er. Þess vegna var ákveð-
ið að grípa til ráðstafana strax,“
segir Hrund Hólm, dýralæknir hjá
Matvælastofnun.
Matvælastofnun hefur dregið til
baka heimild til innflutnings á 328
skrautfuglum sem gefin var út í
febrúar. Um er að ræða tegundir á
borð við gára, finkur, dísargauka og
ástargauka sem fluttar voru inn frá
Hollandi. Innflytjandi fuglanna hef-
ur ítrekað brotið gegn þeim skil-
yrðum sem sett voru fyrir innflutn-
ingnum, að mati stofnunarinnar.
Innflytjandi fuglanna, verslunin
Dýraríkið, neitaði starfsfólki Mat-
vælastofnunar um aðgang að fugl-
unum í gær þegar til stóð að aflífa
þá. Var lögregla kvödd til og mun
hún úrskurða um aðgang stofnunar-
innar í dag.
Fuglamítill greindist í dauðum
fugli í sóttkvínni í vetur. Um er að
ræða mítilinn Ornithonyssuss sylvi-
arium sem ekki hefur fundist í fugl-
um hér á landi til þessa. Telur
stofnunin að mítillinn geti haft al-
varleg áhrif á heilsu og velferð fugla
og því sé mikilvægt að koma í veg
fyrir að hann berist til landsins.
Matvælastofnun telur að ekki sé
hægt að tryggja útrýmingu mítils-
ins með meðhöndlun en því hefur
innflytjandinn mótmælt.
„Þessi mítill er mikill skaðvaldur í
alifuglarækt í Bandaríkjunum og er
að ná fótfestu í Evrópu. Það var
faglegt mat okkar að ekki væri
hægt að tryggja útrýmingu hans
með meðhöndlun,“ sagði Hrund
Hólm í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld.
Fuglarnir hafa verið í sóttkví í
húsakynnum innflytjandans síðan í
febrúar. Þeir reyndust vera 358 en
ekki 328 þegar þeir komu til lands-
ins. Við skoðun á föstudag kom í
ljós að aðeins var 232 fugla að finna
í sóttkvínni, sem er 126 fuglum
færra en í upphafi.
„Innflytjandi hafði aðeins til-
kynnt um einn dauðan fugl til Mat-
vælastofnunar en afhent samtals 13
hræ í eftirlitsheimsóknum stofnun-
arinnar. Auk þess höfðu þrír fuglar
verið aflífaðir í rannsóknartilgangi.
Um afdrif 110 fugla er því ekki vit-
að en að sögn innflytjanda höfðu
þeir drepist og hræjum þeirra þeg-
ar verið eytt í sorpbrennslustöð,“
segir á vef stofnunarinnar.
Segir þar að meðal skilyrða er
gilda um sóttkvíar sem þessar er að
komi upp veikindi eða slys hjá fugli
skuli tilkynna það til Matvælastofn-
unar eins fljótt og hægt er. Ef fugl
drepist þá skuli hann krufinn.
„Með því að fara leynt með fugla-
dauðann hefur innflytjandi komið í
veg fyrir að rannsókn á orsökum
hans geti farið fram. Það er því álit
Matvælastofnunar að um alvarlegt
brot á skilyrðum innflutningsheim-
ildar sé að ræða.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Páfagaukur Til stendur að farga
alls 232 skrautfuglum í dag.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Tjónið er töluvert, þetta var mikill
bruni og hús og búnaður lítur ekki
vel út,“ segir Jón Kjartan Jónsson
hjá Samherja fiskeldi, við Morgun-
blaðið um brunann í fiskeldisstöðinni
á Núpi í Ölfusi. Erfitt sé að segja til
um hvaða áhrif tjónið muni hafa á
reksturinn, en um 30% seiða fiskeld-
isins séu á Núpi. Hann kveðst þó
bjartsýnn á að flest seiðin hafi það af,
en þau hafi að mestu sloppið. Um sé
að ræða bleikjuseiði og eitthvað af
laxaseiðum, sem séu öll að hressast,
en enn eigi þó eftir að koma betur í
ljós hvaða áhrif bruninn hafi á fisk-
inn. Fimm starfsmenn vinna í fisk-
eldinu og vinni þeir nú hörðum hönd-
um við að reyna að halda seiðunum á
lífi þar sem búnaðurinn er óvirkur.
Jón Kjartan fékkst ekki til að skjóta
á hve mikið hann teldi að tjónið gæti
verið, en starfsemin er tryggð hjá
tryggingafélaginu Sjóvá. Jón Kjart-
an vill þakka öllum fyrir vel unnin
störf á brunavettvangi.
„Þetta gekk ótrúlega hratt og vel
fyrir sig, þrátt fyrir mikinn eld,“ seg-
ir Haukur Grönli, slökkviliðsstjóri
hjá Brunavörnum Árnessýslu.
Slökkvistarfið tók að sögn Hauks um
tvo tíma og 25 slökkviliðsmenn frá
Hveragerði, Þorlákshöfn og Selfossi
unnu að því að slökkva eldinn, auk
lögreglu- og sjúkraliðs sem komu
einnig á staðinn. Enginn slasaðist,
en að sögn Hauks munaði miklu um
að geta notað körfubíl við slökkvi-
starfið.
„Vettvangsrannsókn er lokið,
eldsupptökustaðurinn er þekktur, en
hann var í eða við rafmótor í fóð-
urkerfi. Hann er til skoðunar hjá
Mannvirkjastofnun, sem hefur
tækni og þekkingu til að gera frekari
rannsókn á honum,“ að sögn Odds
Árnasonar, yfirlögregluþjóns lög-
reglunnar á Suðurlandi.
Mikill eldur og töluvert tjón
en seiðin sluppu vel á Núpi
Vettvangsrannsókn brunans lokið Tryggð hjá Sjóvá
Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu
Slökkvistarf Körfubíllinn kom í góð-
ar þarfir, en hrunhætta var á þakinu.
Keppni stendur nú sem hæst í WOW
Cyclothon. Síðdegis í gær og í gær-
kvöld var ræst út í liðakeppnina og
því eru allir keppendur nú lagðir af
stað hringinn í kringum Ísland.
Tæplega eitt þúsund manns taka
þátt í hjólreiðakeppninni að þessu
sinni. Rásmarkið var við Egilshöll í
Grafarvogi og þurfa keppendur að
hjóla 1.358 kílómetra. Í liðakeppn-
inni er keppt í fjögurra manna og
tíu manna liðum og þurfa þau að
klára innan þriggja sólarhringa.
Tólf fjögurra manna lið eru skráð
til leiks og 72 tíu manna lið. Þeir
fimm sem taka þátt í einstaklings-
keppninni og sérstakur flokkur
Hjólakrafts fá þrjá og hálfan sólar-
hring til að klára.
Búast má við keppendum til
Akureyrar í morgunsárið og til Eg-
ilsstaða upp úr miðjum degi í dag.
Segja má að keppendur hjóli til
móts við góða veðrið en frábært
veður hefur verið á Austurlandi að
undanförnu.
Í gærkvöldi höfðu tæplega 2,5
milljónir króna safnast á vefsíðu
keppninnar til styrktar Lands-
björg. Ítarlega er fjallað um keppn-
ina á mbl.is.
Hjóla til
móts við
góða veðrið
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson