Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
Nýr Jaguar E-Pace er glæsilegur sportjeppi í millistærð og sá fyrsti sinnar gerðar
frá Jaguar. E-Pace sameinar alla skemmtilegustu eiginleika Jaguar í þægilegum
bíl sem auðvelt er að stjórna og hagkvæmt að eiga. Komdu og láttu drauminn
um að skoða og reynsluaka Jaguar verða að veruleika.
jaguarisland.is
THE ART OF PERFORMANCE
VERÐ FRÁ: 5.990.000 KR.
Jaguar E-Pace, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
1
9
8
FALLEGUR Á ALLA VEGU.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
Ljósmynd/Kristín Heiða
Kát Sigurður og kona hans Anni Midjord framan við Roykstovuna þar sem færeyskt landslag skreytir einn vegginn.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég kom hingað til Fær-eyja í ævintýraleit í des-ember 1977, þegar ég vartuttugu og eins árs. Við
vorum tveir vinir sem yfirgáfum Ís-
land saman, við vorum atvinnulausir
í Reykjavík og okkur langaði að
prófa eitthvað nýtt. Svo gerðist það
sem oft vill gerast hjá ungu fólki;
ástin varð örlagavaldur. Ég hitti
færeyska stúlku og varð ástfanginn,
og hér er ég enn, fjörutíu árum síð-
ar,“ segir Sigurður Ottósson, vert á
Roykstovunni í Klakksvík, og bætir
við að hinn íslenski vinur hans hafi
staldrað styttra við. „Ég tapaði hon-
um eftir fjóra mánuði, þá fór hann
héðan til Kanada, þar sem hann
hafði sótt um vinnu á bóndabæ. En
það voru heilmikil viðbrigði fyrir
okkur ungu mennina að flytja hing-
að, þó svo að Færeyjar séu svo stutt
frá Íslandi sem raun ber vitni og að
við lítum á Færeyinga sem frænd-
þjóð. Hér var allt öðruvísi en heima
á Íslandi, allt minna í sniðum og
færra fólk. Og við þurftum að panta
allt frá Danmörku,“ segir Sigurður
og bætir við að hann hafi í alla þá
fjóra áratugi sem hann hefur búið í
Færeyjum verið í Klakksvík.
„Fyrst vann ég í frystihúsinu en
síðan á þungavinnuvélum hjá bæn-
um. Frá því árið 1986 hef ég rekið
Roykstovuna. Fyrst var Roykstovan
meira eins og veitingastaður þar
sem lögð var áhersla á mat, enda var
þá ekki leyft að selja neitt sterkara
en pilsner. Eftir að sala á áfengi var
leyfð árið 1993 hef ég rekið staðinn
sem krá og kaffihús með léttari
mat,“ segir Sigurður og bætir við að
fyrst eftir að hann keypti Roykstov-
una hafi hann ekki ætlað að standa
þar vaktina sjálfur á bak við borðið.
„Ég var með fólk í vinnu sem sá
um það, en eftir að vínveitingaleyfið
kom til hef ég staðið hér sem vert
hússins.“
Jarðgöngin skipta sköpum
Sigurður segir að um það bil
5.000 manns búi í Klakksvík og það
hafi verið svipað þegar hann kom
þangað fyrst. Fólkið í þorpinu og
fólk sem flytur þangað til að vinna
þar tímabundið er meðal viðskipta-
vina hans á bæjarkránni Roykstov-
unni. „Nú kemur hingað fólk frá öll-
um heimshornum, því eftir að
jarðgöngin voru opnuð árið 2006
koma hingað til Klakksvíkur miklu
fleiri ferðamenn en áður. Nú er
hægt að keyra alla leiðina héðan og
til Þórshafnar, en áður þurfti fólk að
sigla með ferju. Jarðgöngin hafa
sannarlega glætt viðskiptin hjá okk-
ur á Roykstovunni,“ segir Sigurður
sem rekur krána góðu ásamt konu
sinni Anni Midjord, en hún er önnur
en sú sem hann varð ástfanginn af
sem ungur maður.
Heldur betur frjósamur vert
Sigurður reyndist einstaklega
frjósamur maður, eins og Fær-
eyingar, en nýlega bárust fréttir af
því að Færeyingar ættu met í barn-
eignum meðal Evrópubúa.
„Ég á einn strák heima á Ís-
landi og sex börn hér í Færeyjum,
samtals sjö börn. Ég er stoltur af
því; við Færeyingar sjáum alveg
sjálfir um að fjölga okkur,“ segir
hann og hlær.
Sigurður er ættaður frá Borð-
eyri í Strandasýslu og þegar hann er
spurður hvort hann fari oft til gamla
Íslands segir hann að börnin hans
hafi fæðst með stuttu millibili og
þegar þau voru lítil hafi hann ekki
haft svo mikinn tíma eða svigrúm til
að skreppa til Íslands. „En undan-
farin ár hef ég farið að lágmarki einu
sinni á ári heim til gamla landsins,
því þar átti ég aldraðan föður sem ég
vildi heimsækja, en hann lést í des-
ember á síðasta ári,“ segir Sigurður
Laus við lífs-
gæðakapphlaup
„Íslensku leikirnir eru langvinsælastir, þá er fullt hús
hér á Roykstovunni og ég býð tvöfalt skot þegar Ísland
skorar,“ segir Sigurður Ottósson, vert á bæjarkránni í
Klakksvík. Hann skrapp til Færeyja að vinna fyrir 40
árum, en ástin greip í taumana og hann ílengdist.
og bætir við að hann eigi tvö systkini
eftir heima á Íslandi sem hann heim-
sæki líka. „Svo á ég bróður hér í
Færeyjum, Heimir heitir hann og
býr í Þórshöfn.“
Þegar Sigurður er spurður hver
sé að hans áliti, eftir fjörutíu ára bú-
setu í Klakksvík, munurinn á Fær-
eyjum og Íslandi og Færeyingum og
Íslendingum segir hann að allt sé
svo miklu rólegra í Færeyjum. „Hér
er ekkert stress, það sem maður
kemst ekki yfir að gera í dag, það
gerir maður bara á morgun, það er
viðkvæðið hér. Og hér er ekki þetta
lífsgæðakapphlaup sem er á Íslandi.
Hér í Klakksvík þarf maður ekkert
að vera fínni en maðurinn í húsinu
við hliðina og maður þarf ekkert að
eiga stærri bíl eða flottara hús en
hann.“