Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vésteinn G. Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Billboard ehf., segir
undirbúning að uppsetningu strætó-
skýla í Reykjavík ganga vel.
„Undirbúningurinn gengur mjög
vel. Við erum að klára samning [við
borgina]. Hann er búinn að vera í
yfirlestri. Þetta er samningur til 15
ára. Þannig að það þarf að gera þetta
vel,“ segir Vésteinn.
Spurður hvort félagið sé búið að
ákveða hvaðan það muni fá nýju
strætóskýlin segir Vésteinn það
nokkurn veginn komið á hreint.
Hann segir aðspurður það eiga
eftir að koma í ljós hvort uppsetning
skýlanna hefst strax eftir áramót.
Verkið verði unnið í samvinnu við nú-
verandi samningshafa. „Við höfum
ekki annað í hyggju en að vinna þetta
vandlega með öllum aðilum þannig að
þjónusta borgarinnar skerðist ekki á
neinum tíma,“ segir Vésteinn um
undirbúninginn.
Á Billboard.is segir að félagið reki
fjölda LED-auglýsingaskjáa og fletti-
skilta á höfuðborgarsvæðinu.
Keyptu skiltagerðina Dengsa
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að Reykjavíkurborg ætti í viðræðum
við félagið Dengsa um uppsetningu
skýlanna. Þær upplýsingar fengust
frá skiltagerðinni Dengsa að Bill-
board ehf. hefði keypt félagið.
Samkvæmt Creditinfo eru Ellert
Aðalsteinsson (50%) og Birgir Örn
Birgisson (37%) aðaleigendur félags-
ins Billboard. Óþekktir eigendur eiga
svo um 13% hlut í félaginu.
Ellert kemur við sögu í mörgum fé-
lögum. Hann er meðal annars stofn-
andi félagsins EE Development sem
undirbúið hefur byggingu 65 íbúða í
Borgartúni 24.
Birgir Örn er einnig tengdur
mörgum félögum. Hann er fram-
kvæmdastjóri Pizza-Pizza ehf. sem
rekur Domino’s-keðjuna.
Ráðgjafafélag er hluthafi
Samkvæmt ársreikningi Billboard
ehf. árið 2016 áttu Aðalsteinn Pét-
ursson (5%), Yevgeniya Solovyova
(5%) og Kasi Consulting ehf. (3%)
samtals 13% í félaginu. Jón Óttar
Birgisson er eigandi Kasa.
Þorsteinn R. Hermannsson, sam-
göngustjóri Reykjavíkur, segir full-
trúa borgarinnar hafa heimild frá
innkauparáði til þess að ganga til
samninga við Dengsa um skýlin.
„Innkauparáð samþykkti hinn 7.
júní að gengið yrði til samninga við
Dengsa á grundvelli útboðsgagna.
Ekki þarf frekari staðfestingar frá
ráðum borgarinnar,“ segir Þorsteinn.
Unnið sé að lokafrágangi samninga
við Dengsa.
Ekki barst tilboð í útboð borgar-
nnar í strætóskýlin í mars. Félagið
AFA JCDecaux hefur rekið grænu
biðskýlin í borginni frá 1998.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að fjögur félög hefðu síðan lýst áhuga
á verkefninu.
Bundinn trúnaði um bjóðendur
Þorsteinn kveðst aðspurður ekki
geta upplýst hvaða þrjú félög voru
þarna á ferð auk Dengsa. Innkaupa-
lög séu ströng hvað slíka upplýsinga-
gjöf snertir. Hann segir fulltrúa
Dengsa hafa sótt útboðsgögn en ekki
náð að ljúka tilboðsgerð á tilsettum
tíma. Þeir hafi síðan lýst yfir áhuga á
viðræðum við borgina.
„Þeir voru eini aðilinn sem treysti
sér til að bjóða lágmarkið, 210 ný
strætóskýli, þar af 50 með upplýs-
ingaskjám, og til að uppfylla aðrar
kröfur í útboðsgögnum,“ segir hann.
Fram hefur komið að AFA JCDe-
caux bauð ekki í verkið. Samningur
borgarinnar við fyrirtækið átti að
renna út 1. júlí, en var framlengdur til
áramóta. AFA JCDecaux hefur líka
rekið útisalerni og auglýsingastanda.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Auglýsingar Félagið Billboard
rekur m.a. LED-ljósaskilti.
Undirbúa nýju
strætóskýlin
Félagið Dengsi semur við borgina
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Það eru mörg ár síðan við fundum
síðast fyrir því að fólk kæmi til okkar
í stórum hópum til að aflífa dýrin sín
vegna sumar-
leyfa,“ segir Kol-
brún Arna Sig-
urðardóttir,
fagdýrahjúkrun-
arfræðingur hjá
Dýraspítalanum í
Garðabæ. Dýra-
læknar á Dýra-
læknastofu Dag-
finns og Dýra-
læknastofu
Reykjavíkur taka
undir þetta. Kolbrún segir að það
heyri sögunni til að fólk láti lóga dýr-
um sínum vegna sumarleyfa. „Nú
eru mörg úrræði í boði fyrir hunda-
og kattaeigendur, það eru til fleiri
dýrahótel en áður og tjaldstæði,
sumarhús og gistiheimili leyfa hunda
í auknum mæli þrátt fyrir að það sé
kannski ekki mjög mikið um það.“
Kolbrún segir sömuleiðis að sam-
félagsmiðlar komi sterkir inn í um-
ræðu um úrræði fyrir dýraeigendur
sem þurfi að bregða sér af bæ.
„Það eru til hópar á Facebook sem
snúa að þessu, til dæmis hópurinn
„Skiptipössun hundaeigenda“, en
þar er að finna einstaklinga sem
passa gjarnan hunda í heimahúsum.“
Á síðunni skiptist fólk einnig á að
passa hunda hvert annars. „Ég held
að samfélagsmiðlarnir hjálpi mikið
til í þessum efnum, þar sem þeir
tengja fólk saman,“ segir Kolbrún.
Meðvitaðir hundaeigendur
Kolbrún segir að hundaeigendur
séu orðnir mun ábyrgðarfyllri nú en
áður var. „Hundaeigendur vilja gera
vel og eru orðnir talsvert meðvitaðri
um hundahald. Það er alltaf að
aukast framboð á námskeiðum fyrir
þennan hóp, hundaeigendur fara til
dæmis gjarnan á námskeið um
merkjamál hunda og læra að lesa
hunda.“
Samkvæmt Kolbrúnu er það í
raun það fólk sem ekki á gæludýr
sem er stærsta hindrunin fyrir því að
hundaeigendur taki hundana sína
með sér í ferðalög um landið.
„Það er mjög skrýtið að það sé ár-
ið 2018 og að við sem eigum hunda
getum ekki verið frjáls ferða okkar í
ferðalögum með hundana okkar um
landið.“
Aukið umburðarlyndi
Kolbrún segir þó að fólk sé að
verða umburðarlyndara og að sú
þróun sé í rétta átt. Svo hundaeig-
endur haldi áfram að finna fyrir
auknu umburðarlyndi þurfi þeir
samt sem áður sjálfir að standa sig.
„Til þess að það gerist þurfum við
sem eigum gæludýr að axla ábyrgð á
dýrunum okkar og passa upp á þær
aðstæður sem við setjum hundana
okkar í. Við eigum ekki að bjóða
þeim upp á aðstæður sem þeir
höndla ekki og vonandi heldur fólk
áfram að bæta sig í því.“
Minna um aflífanir vegna sumarfría
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hundar Hundaeigendur þurfa að standa sig og axla ábyrgð á hundunum
sínum svo að umburðarlyndi í þeirra garð haldi áfram að aukast.
Fleiri úrræði en áður í boði fyrir gæludýraeigendur Helsta hindrunin fyrir því að hundaeigendur
ferðist um landið með hunda er fólk sem ekki á gæludýr Hópar á samfélagsmiðlum koma sterkir inn
Kolbrún Arna
Sigurðardóttir
Ísland er eftirbátur Evrópuríkja þeg-
ar kemur að því að leggja mat á
færni- og menntunarþörf á vinnu-
markaði til lengri eða skemmri tíma
og of lítil þekking er hér á landi um
lengri tíma þróun á vinnumarkaði.
Slíkt ástand dregur úr getu einstak-
linga, stofnana og stjórnvalda til þess
að taka upplýstar ákvarðanir um
menntun og færni. Þetta kemur fram
í mati sérfræðingahóps sem kynnti
niðurstöður skýrslunnar á mánudag-
inn ásamt tillögum að framtíðarfyrir-
komulagi við gerð færni- og mann-
aflaspár á íslenskum vinnumarkaði,
en skýrslan var birt var á heimasíðu
Vinnumálastofnunar.
Sérfræðingahópurinn sem skipað-
ur var fulltrúum Vinnumálastofnun-
ar, ASÍ, SA og Hagstofunnar skilaði
af sér fimm tillögum til úrbóta.
Að metnir verði kostir þess að
Hagstofa Íslands fái formlegt hlut-
verk við tölfræðilega spágerð til langs
tíma. Að skemmri tíma greiningar á
færniþörf verði efldar innan Vinnu-
málastofnunar. Að sett verði á fót
landfærniráð að írskri og finnskri fyr-
irmynd. Að settur verði á fót sérfræð-
ingahópur um færnispár og að starfs-
greinanefndir fái formlegt ráðgefandi
hlutverk í spáferlinu.
Í skýrslu sérfræðingahópsins kem-
ur fram að færniþörf í sinni einföld-
ustu mynd byggist á mati framboðs
og eftirspurnar og að til þess að geta
metið þörfina þarf að skoða hver
verði áhrif af hækkandi lífaldri þjóð-
arinnar á vinnuaflseftirspurn og end-
urnýjunarþörf ólíkra starfa, hvaða
áhrif hefur tækniþróun á samsetn-
ingu starfa á vinnumarkaði, hvaða
áhrif hefur nýgengi örorku á vinnu-
markaði, hvaða áhrif hefur brottfall
nemenda úr skóla á endurnýjunar-
þörf í ólíkum störfum og hvar er fyr-
irséð að verði skortur á færni á næstu
tíu til fimmtán árum.
Niðurstöður spáferla nýtast ekki
eingöngu til stefnumótunar í mennta-
kerfinu og aðgerða á mörgum sviðum
heldur geta þær stutt við ákvarðana-
töku einstaklinga þegar kemur að vali
á námi eða starfsvettvangi. ge@mbl.is
Of lítil þekking á þróun
á vinnumarkaði á Íslandi
Ísland eftirbátur Evrópuríkja Fimm tillögur til úrbóta
LISTHÚSINU
Mikið af fallegum vörum fyrir
heimilið og bústaðinn.
Opið virka daga kl. 11-18, lokað laugardaga í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050