Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
birtingarmyndirnar þjóna sem leið-
sögn til þeirra sem fylgja honum að
málum um hvernig hinn fullkomni
maður sé. Þar skoða ég hvernig
eldri heimspekihefðir og þær sem
voru að mótast á sama tíma og Jes-
ús var uppi, vinna með sama stef og
birtist í þessum frásögnum,“ segir
Rúnar.
Spurður út í hvort rannsóknir af
þessu tagi hafi ekki verið unnar
fram til þessa segir hann að svo sé í
raun ekki.
„Það kemur á óvart að þessu hafi
ekki verið sinnt að neinu verulegu
leyti hingað til. Þetta hefur verið
gert í tilfelli Jóhannesarguðspjalls
sem er mjög heimspekimiðað en
samstofna guðspjöllin hafa ekki
verið rýnd með þessum hætti. Það
skýrist að einhverju leyti af því rofi
sem varð milli heimspekinnar og
guðfræðinnar í kjölfar Upplýsing-
arinnar. Þá hættu menn að líta á
þessi svið sem eitt og hið sama eða
nátengd og það á ekki síst við um
rannsóknir á Jesú. Hann hefur
gjarnan verið álitinn hreint og klárt
afsprengi hinnar gyðinglegu hefðar
og fræðimenn af einhverjum orsök-
um ekki skoðað hann í ljósi þeirra
áhrifa sem hellenisminn hafði á
mótun kristindómsins í víðara sam-
hengi á öldunum eftir krossfest-
inguna.“
Augljós tengsl til staðar
Rúnar segir að víða í textum guð-
spjallanna megi finna áhrif þessara
hefða.
„Augljósasta dæmið sem má
nefna eru líkindin milli síðustu dag-
anna í lífi Sókratesar, eins og þeir
birtast í textum Platóns og í frá-
sögnunum af dauða Jesú. Báðir
fórna þeir sér og ganga til móts við
örlög sín af yfirvegun.“
En þessi tengsl koma víðar fram
að sögn Rúnars.
„Þessi tengsl sjást víða í þessum
guðspjöllum en með mismunandi
hætti. En tengslin við stóuspekina
og einnig heimspeki kýníka eru ber-
sýnileg þótt ólík séu. Almennt er
talið að Markúsarguðspjallið sé elst
og að Matteus og Lúkas byggi á því.
Milli guðspjallanna kemur t.d. fram
ákveðin þróun og í frásögn Lúkasar
er Jesú lýst sem mjög yfirveguðum
manni sem ekki skiptir skapi þótt á
móti blási. Það sé breyting frá eldri
textum þar sem Jesús átti það til að
láta tilfinningar sínar í ljós.“
Bendir Rúnar á að þessi munur
komi m.a. fram í lýsingum á píslar-
göngunni í átt að Golgata þar sem
Jesús var krossfestur.
„Í Lúkasarguðspjalli huggar
Jesú fólkið við veginn á leið til
krossfestingarinnar. Frásögnin
virðist til þess gerð að varpa ljósi á
mann sem hafi fullkomna stjórn á
tilfinningum sínum.“
Segir Rúnar að þessi dæmi og
mörg önnur staðfesti hin ríku tengsl
milli frásagna guðspjallanna og
heimspekihefða fornaldar.
Heimspekingurinn frá Nasaret
Dr. Rúnar M. Þorsteinsson prófessor gefur út aðra bók sína hjá stærsta háskólabókaforlagi heims
Hefur rannsakað tengsl þriggja guðspjalla við heimspekihefðir fornaldar Segir tengslin augljós
Morgunblaðið/Hari
Fræðistörf Rúnar M. Þorsteinsson er prófessor við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann lauk
doktorsprófi í nýjatestamentisfræði frá Lundarháskóla 2003. Hann lauk kandídatsprófi í guðfræði frá HÍ árið 1998.
Útgáfa Verkið er 224 síður, skiptist
í fjóra kafla og er í handhægu broti.
Oxford University Press er stærsta háskólaforlag heims en það var stofn-
að seint á 16. öld. Þar kjósa margir af virtustu fræðimönnum heims að
gefa út verk sín. Rúnar segir að flókið ferli liggi að baki því að fá verk gef-
ið út hjá forlaginu. „Það er stíft ferli og nákvæmt en ég ákvað snemma að
miða við að fá verkin mín gefin út hjá bestu forlögunum og þekktustu
tímaritunum. Það veldur því að stundum fær maður höfnun en það skilar
sér margfalt til baka.“
Hann segir að íslenskir færðimenn mættu oft setja markið hærra þeg-
ar kemur að birtingum. Það hafi vissulega gagnast sér nú að hafa áður
gefið út hjá OUP en að hvergi sé hins vegar slakað á kröfum.
„Verkið er lesið yfir af þremur aðilum sem forlagið kallar til og þeir eru
harðir dómarar. En þegar upp er staðið verður verkið betra.“
Forlagið stofnað 1586
EKKI AUÐSÓTT AÐ GEFA ÚT HJÁ OXFORD UNIVERSITY PRESS
Þrjátíu og þrír nemendur. sem hyggjast hefja nám í
Háskóla Íslands í haust. tóku nýverið við styrkjum úr
Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands
við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi. Sjóðurinn fagnar
tíu ára afmæli í ár. Styrkþegarnir koma úr 12 fram-
haldsskólum víða af landinu og eiga það sameiginlegt
að hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdents-
prófs. Hver styrkur í ár nemur 375 þúsund krónum og
er samanlögð styrkupphæð því rúmar 12 milljónir
króna, að því er segir í tilkynningu frá HÍ.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Afreks- og hvatningarstyrkir HÍ
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt
2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá
er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum. Getum boðið
mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo og
íslenskan fararstjóra ef þess er óskað.
www.transatlantic Sími 588 8900
GLÆSILEGAR MIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar
glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur
verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu
Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar
hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningar-
áhrif sem gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg
Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997.
Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi
Hansakaupmanna í Evrópu. Glæsilegur arkitektúr,
forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert
borgina við flóann að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast
í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu
1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum
Evrópu.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
GDANSK Í PÓLLANDI
BÚDAPEST
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vikuferðirsumarið 2018frá 125.000 kr.á mann í
2ja manna
herb.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Um síðustu mánaðamót kom út hjá
Oxford University Press bókin Jes-
us as Philosopher. The moral Sage
in the Synoptic Gospels. Höfundur
verksins er dr. Rúnar M. Þor-
steinsson, prófessor í nýjatesta-
mentisfræðum við guðfræðideild
Háskóla Íslands. Það er ekki ný-
lunda að fræðimenn hér á landi gefi
út bækur en þau eru ekki mörg
dæmin um að íslenskir höfundar fái
bækur sínar gefnar út hjá hinu
fornfræga bókaforlagi sem telst hið
stærsta sinnar tegundar í heim-
inum. Það sem gerir útgáfuna nú
ekki síður merkilega er sú stað-
reynd að þetta er annað verkið sem
Oxford Unviersity Press tekur til
útgáfu af hendi Rúnars en árið 2010
kom út bók hans Roman Christi-
anity and Roman Stoicism: A
Comparative Study of Ancient Mor-
ality.
Sótt í eldri hefðir
Rannsóknir Rúnars hafa á síð-
ustu árum legið á markalínum guð-
fræði og heimspeki og er hin nýút-
gefna bók m.a. afrakstur þeirrar
vinnu. Þar hefur hann rannsakað
með hvaða hætti heimspekistefnur
fornaldar hafa haft áhrif á guð-
fræði kristinna manna á fyrstu öld-
unum eftir dauða Jesú frá Nasaret.
Að þessu sinni beinir hann sjónum
sínum að textum hinna svokölluðu
samstofna guðspjalla en það eru
guðspjöllin þrjú sem kennd eru við
Matteus, Markús og Lúkas oft
nefnd. Þau eru af fræðimönnum al-
mennt talin nátengd textafræði-
lega en að Jóhannesarguðspjall,
hið síðasta í röð þeirra fjögurra
sem Nýja testmentið geymir,
standi hins vegar sjálfstætt og ekki
þeim tengt.
„Í verkinu fæst ég við þá spurn-
ingu með hvaða hætti höfundar guð-
spjallanna draga upp mynd af Jesú
sem fyrirmynd og hvernig