Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 42
Á vefsíðu sýningarsvæðisins, VDNH.ru, er að finna ágrip af sögu þess. Verður hér stiklað á stóru. Svæðið á rætur í þeirri ákvörðun á ársþingi Sovétríkjanna 1927 að inn- leiða samyrkjubú í landbúnaði. Árið 1935 ákvað stjórn kommúnista að minnast þess með landbúnaðarsýn- ingu fyrir öll ríki Sovétríkjanna. Átti þar að sýna árangur samyrkjubúa og það besta sem þau hefðu að bjóða. Um tvö þúsund listamenn, mynd- höggvarar og arkitektar unnu að opn- un sýningarinnar. Sýningarsvæðið var á auðu svæði í úthverfi í norðaustur- hluta Moskvu. Svæðið var 136 hekt- arar og risu þar 250 byggingar. Þar með talið 32 sýningarhús og 20 hallir fyrir ríki og landsvæði Sovétríkjanna. Sýnt var handverk frá hverju svæði. Sýningin var opnuð 1. ágúst 1939, aðeins nokkrum vikum fyrir upphaf síðari heimsstyrjaldar. Rússar miða upphaf stríðsins við ártalið 1941. Þá hafi föðurlandsstríðið mikla hafist með baráttunni gegn nasistum. Á þetta er minnt með minnismerkjum um allt Rússland og auðvitað í metró- kerfinu glæsilega í Moskvu. Sýningin verður því 80 ára 2019. Eftir stríðið ákváðu yfirvöld að blása lífi í garðinn. Hann var opnaður eftir breytingar og endurbætur árið 1954. Meðal annars var byggður stór sigurbogi sem varð nýr aðal- inngangur. Frekari breytingar urðu svo árið 1958 þegar forysta Sovét- ríkjanna ákváð að sameina iðn-, land- búnaðar- og mannvirkjasýningu í eina sýningu um afrek Sovétríkjanna í Morgunblaðið/Baldur  Sögufrægt sýningarsvæði frá Sovéttímanum í Moskvu hefur verið endurbyggt og betrumbætt Á kvöldgöngu Rússar skoða sýningarhús sem er tileinkað menntun. Hof Hvergi er til sparað til að gera svæðið sem glæsilegast úr garði. Upp Endurgerð af Vostok-eldflaug sem flutti Gagarín á sporbaug. Hamar og sigð Fulltrúar bænda með gyllt korn á lofti við inngang. Kosmos Sýningarhús sem reist var til heiðurs geimferðaáætluninni. Geimnálin Minnismerki um geim- ferðir var afhjúpað 1964. Sýning um afrek og mátt Rússa Glæsileiki Gylltar stytturnar slá bjarma yfir svæðið. Gosbrunnurinn ber þess merki að hafa verið endurbyggður. Miðhlutinn minnir á korn sem bíður þess að vera skorið. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er eins og að ganga inn í tímavél að heimsækja sýningarsvæði um Rússland í norðausturhluta Moskvu. Þar voru á sínum tíma reist minnis- merki og veglegir skálar á Stalíns- tímanum um afrek Sovétríkjanna. Svæðið var að grotna niður eftir fall Sovétríkjanna en hefur nú verið fært til fyrri glæsileika og gott betur. Víða hafa merki með hamar og sigð verið fægð og gyllt á ný. Skammt frá garðinum er samnefnd metróstöð, VDNH (eða VDNKh). Stöðin er fimm stopp frá Kitay gorod- stöðinni við Rauða torgið, á leið 6 í metrókerfinu. VDNH er skamm- stöfun fyrir það sem útleggst í laus- legri þýðingu Sýning um hin efna- hagslegu afrek Sovétríkjanna. Sýningin hefur nú víðari skírskotun. Til heiðurs geimferðum Þegar komið er út af metróstöðinni blasir við Ostankino-sjónvarps- og út- varpsturninn sem sagður er hæsta bygging Evrópu. Þar eru nokkrar út- sýnishæðir með miklu útsýni. Við sýningarsvæðið gnæfir annað minnismerki. Það sýnir eldflaug þjóta á loft. Verður sökkullinn, sem teygir sig nærri hundrað metra til lofts, eins og reykur undan flauginni. Minnis- merkið var reist til heiðurs geimferð- um Sovétmanna. Áhugasömum er bent á að minnis- merki um fyrsta geimfarann, Júrí Gagarín, er að finna á Gagarín-torgi í suðvesturhluta Moskvu. Þegar stytt- an var skoðuð eitt sunnudagskvöld í þessum mánuði leyndi sér ekki að heimamenn eru stoltir af Gagarín. „Sjáðu, fyrsti maðurinn til að fara í geiminn!“ sagði ungur Moskvupiltur. Ungar Moskvumeyjar sem sátu hon- um við hlið kinkuðu kolli til áherslu. Var minnismerkið reist í tilefni Ól- ympíuleikana í Moskvu árið 1980. Upphaf Sovétríkjanna má rekja til októberbyltingarinnar 1917. Lenín var fyrsti leiðtoginn en hann lést 1923. Stalín tók við forystu þar til hann lést 1953. 42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.