Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 43
efnahagsmálum. Geimferðaáætlunin
er í hávegum höfð.
Lítil virðing fyrir sögunni
Árið 1963 var garðurinn stækkaður
frekar og byggt við hann.
Vikið er að Míkhaíl Gorbatsjov á
vefsíðu sýningarsvæðisins og þeim
erfiðleikum sem biðu þjóðarinnar við
fall Sovétríkjanna. Árið 1988 naut sýn-
ingin ekki lengur ríkisstuðnings.
Hófst þá niðurlæging sýningarinnar.
Sýningarhús voru leigð út og eru sum-
ir leigutakar sagðir hafa borið litla
virðingu fyrir sögunni. Sýningar-
húsum hafi verið breytt í verslunarhús
og jafnvel vöruhús. Flóamarkaðir og
kebabsalar hafi tekið yfir svæðið.
Þrátt fyrir þessa niðurlægingu hafi
tekist að varðveita megnið af arkitekt-
úr svæðisins. Árin 1993 og 1994 hafi
fjöldi bygginga verið friðaður.
Á fyrsta áratug aldarinnar gekk
sýningin í endurnýjun lífdaga. Á 70
ára afmælinu 2009 var nýr margmiðl-
unarskáli, MosExpo, opnaður. Má nú
sjá nýja tækni við sýningarhaldið.
Margir ásældust landsvæðið á
erfiðleikatímanum og voru hugmyndir
um að byggja hundruð þúsunda fer-
metra af íbúðarhúsnæði eða risavöxn-
um verslunarmiðstöðvum.
Árið 2013 er Vladímír Pútín forseti
sagður hafa tryggt eignarhald ríkisins
yfir svæðinu og þar með framtíð sýn-
ingarinnar. Núverandi borgarstjóri,
Sergei Sobjanín, hafi leitt endurbygg-
ingu svæðisins. Hinn 14. maí 2014 hafi
sýningarsvæðið aftur fengið sitt
gamla nafn, VDNH.
Svæðið hefur nú þríþætt hlutverk
sem safn, sýningar- og afþreyingar-
svæði. Umferð ökutækja er nú bönn-
uð og eru gömlu ísbúðirnar frá Sovét-
tímanum komnar aftur.
Horft til austurs Leitast hefur verið við að færa svæðið til fyrra horfs. Malbikið er nýtt. Til lofts Eldflaug ber við himin í kvöldrökkrinu við Kosmos-sýningarskálann.
Kraftar Hægt er að ganga undir Vostok-eldflaugina.Gylling og turnspíra Það glampar á gullið í kvöldsólinni. Hönnun Ísbúðirnar frá Sovéttímanum eru komnar aftur.
FRÉTTIR 43Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Hlífar og undirföt
Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á
þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu
og hlýjum án þess að valda kláða.
Hlífarnar eru tilvaldar til hvers kyns útivista og
eins og hjólreiða, útihlaupa eða í golfið.
Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki
Y L F A
ANGÓRA
Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is
n þess að
m þurrum
íþrótta,