Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Nýliði sigraði í New York
Alexandria Ocasio-Cortez sigraði óvænt þaulsætinn þingmann í New York
Fékk ekki mótframboð í fjórtán ár Hefur róttækar áherslur til vinstri
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Óvænt úrslit urðu í forkosningum
demókrata í 14. umdæmi New York-
ríkis fyrir kosningar til fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings þegar nýliðinn
Alexandria Ocasio-Cortez, 28 ára,
sigraði hinn þaulsætna Joe Crowley,
56 ára. Mun hún etja kappi við repú-
blikanann Anthony Pappas í kosn-
ingunum í nóvember.
Sigur hennar er talinn gefa vís-
bendingu um krappa vinstri beygju
flokksins í New York, en Ocasio-Cor-
tez skilgreinir sig sem sósíalista í
Demókrataflokknum. Þykja stefnu-
mál hennar keimlík áherslum Bernie
Sanders, sem bauð sig fram gegn
Hillary Clinton í forvali demókrata
fyrir forsetakosningarnar árið 2016.
Starfaði Ocasio-Cortez fyrir Sanders
í kosningabaráttunni 2016.
Var áður þjónn á veitingastað
Ocasio-Cortez gjörsigraði mót-
frambjóðanda sinn með 57,5% at-
kvæða, en Crowley hafði ekki fengið
mótframboð í fjórtán ár. Var hann
talinn líklegur arftaki Nancy Pelosi,
leiðtoga demókrata, og jafnvel næsti
forseti efri deildar Bandaríkjaþings,
færi svo að demókratar næðu aftur
völdum í þinginu í haust.
Ocasio-Cortez er frá Bronx í New
York og innan við ár er frá því hún
starfaði sem þjónn á veitingastað.
„Það er ekki ætlast til þess af konum
eins og mér að þær bjóði sig fram,“
sagði Ocasio-Cortez í einu af kosn-
ingamyndböndum sínum sem fór
sem eldur í sinu á netinu og um hálf
milljón manna horfði á. Rak hún öfl-
uga kosningabaráttu á samfélags-
miðlum sem talin er hafa átt stóran
þátt í sigri hennar.
Áherslur Ocasio-Cortez þykja rót-
tækar og vinstrisinnaðar á banda-
rískan mælikvarða, en hún er fylgj-
andi gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu
og háskólamenntun fyrir allar stéttir.
Einnig boðaði hún endurskipulagn-
ingu réttarkerfisins.
Atkvæðin ekki ókeypis
Í kosningabaráttunni stillti hún
sér upp sem fulltrúa kvenna, ungs
fólks, verkalýðsins, frjálslyndra og
litaðra. „Demókrataflokkurinn hefur
tekið sem gefnum atkvæðum verka-
lýðsins og þeirra sem eru litaðir.
Hingað til hefur verið gert ráð fyrir
að við mætum á kjörstað, óháð því
hve óspennandi konsingaloforðin
eru,“ sagði hún í aðdraganda kosn-
inganna.
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, brást við ósigri Crowley á
Twitter. „Vá! Mikill andstæðingur
minn, Joe Crowley, sem margir
bjuggust við að tæki sæti Nancy Pe-
losi, TAPAÐI forkosningum. […]
Þetta eru stórtíðindi sem enginn sá
fyrir. Kannski hefði hann átt að vera
blíðari og sýna forsetanum sínum
meiri virðingu,“ ritaði hann.
Sigur Ocasio-Cortez fagnaði sigrinum innilega með stuðningsmönnum sín-
um. Niðurstaðan kom henni á óvart og sagði hún upplifunina „súrrealíska“.
AFP
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Vladimir Pútín, forseti Rússlands,
kvaðst í gær vongóður um að fundur
hans með John Bolton, þjóðarörygg-
isráðgjafa Donald Trump Banda-
ríkjaforseta, gæti orðið til þess að
liðka fyrir samskiptum ríkjanna
tveggja og leysa úr flækju þeirra á
milli. Tilgangurinn með heimsókninni
var að leggja línur fyrir fund leiðtog-
anna tveggja í Evrópu í júlí.
Liðki fyrir samskiptum ríkjanna
„Heimsókn þín veitir okkur von um
að við getum tekið fyrsta skrefið í átt
að því að liðka fyrir samskiptum
ríkjanna okkar,“ sagði Pútín í gær.
Ítrekaði Bolton mikilvægi samtala
milli ríkjanna í sögulegu samhengi.
„Í áranna rás, þegar ríkin hafa ver-
ið ósammála, hafa leiðtogar og ráð-
gjafar þeirra hist. Ég tel það gott,
bæði fyrir Rússland og Bandaríkin og
fyrir stöðugleika í heimsmálunum.
Forsetinn er sama sinnis og hefur
sterkar skoðanir á þessum málum,“
sagði hann.
Deilur ríkjanna hafa harðnað síð-
ustu ár, einkum vegna stríðsins í Sýr-
landi, vísbendinga um afskipti Rússa
af forsetakosningum í Bandaríkjun-
um árið 2016, innlimunar Krím-skaga
í Rússland og viðskiptaþvingana vest-
urvelda gegn Rússlandi. Stjórnmála-
skýrendur telja margir að ágreining-
urinn sé svo djúpstæður að sátt sé
ómöguleg nema um mjög takmarkað-
an tíma.
Þjóðaröryggisráðgjafi
Trump fór á fund Pútín
Línurnar lagðar fyrir fund leiðtoganna í næsta mánuði
AFP
Fundur Pútín og Bolton takast í
hendur í upphafi fundarins í gær.
Miklar fram-
kvæmdir og end-
urbætur eru enn
við helstu kjarn-
orkurannsóknar-
miðstöð Norður-
Kóreumanna í
Yongbyon. Þetta
sýna nýjar gervi-
hnattarmyndir á
vefsíðu 38 North,
sem fylgist
grannt með þróun mála þar.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-
Kóreu, gaf vilyrði fyrir því að
„vinna að“ kjarnorkuafvopnun
Kóreuskaga, á leiðtogafundi með
Donald Trump Bandaríkjaforseta í
Singapúr fyrr í júní. Ekki var
ákveðið hvenær eða hvernig því
marki yrði náð. Trump hefur sagt
að kjarnorkuafvopnunin yrði algjör
og hún væri þegar hafin.
Taki fréttunum með fyrirvara
Þrátt fyrir samkomulagið virðist
sem kjarnorkuráðagerðum Norð-
ur-Kóreumanna sé nú framhaldið.
Samkvæmt myndunum halda Norð-
ur-Kóreumenn áfram að auðga úr-
an, en einnig hafa risið nýjar bygg-
ingar fyrir verkfræðinga nærri
kjarnakljúfi kjarnorkuvers á svæð-
inu og nýir vegir verið lagðir.
Í umfjöllun 38 North er tekið
fram að nýjum fréttum frá Yong-
byon þurfi að taka með fyrirvara
og ekki megi túlka þær þannig þær
tengist fundinum í Singapúr með
beinum hætti. Eðlilegt sé að starfs-
menn kjarnorkurannsóknarstöðv-
arinnar haldi áfram fyrri störfum
þar til sérstök fyrirmæli berist
þeim um annað frá yfirvöldum í
höfuðborginni Pyongyang.
Enn uppbygging í
kjarnorkustarfsemi
Kim Jong-un.
NORÐUR-KÓREA
Lögregla í Hollandi rannsakar nú
hvort skipulögð glæpasamtök hafi
verið að baki því að sendiferðabíl
var ekið inn um stóra rúðu í höf-
uðstöðvum hollenska slúðurblaðs-
ins De Telegraaf á þriðjudag. Bíln-
um var tvisvar ekið á húsið og
kveikti bílstjórinn í honum áður en
hann hljóp á brott og tók sér far
með annarri bifreið sem beið hans.
Mynd af bílnum var birt á forsíðu
blaðsins undir fyrirsögninni: „Við
munum aldrei þagna.“
Á einni viku hafa nú tvær árásir
verið gerðar á fjölmiðil í Amster-
dam, en hinn fjölmiðillinn er viku-
blaðið Panorama. Bæði blöðin hafa
fjallað ítarlega um leit lögreglu að
háttsettum liðsmönnum glæpa-
gengja, eftirlýstum í Hollandi, sem
taldir eru hafa flúið til Mexíkó. Er
árásin talin tengjast umfjölluninni.
Glæpasamtök grun-
uð um verknaðinn
HOLLAND
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Vilhjálmur Bretaprins er nú staddur
í Palestínu eftir að hafa heimsótt Ísr-
ael og Jórdaníu í sögulegri för sinni
til Mið-Austurlanda. Er prinsinn sá
fyrsti úr bresku konungsfjölskyld-
unni sem heldur til bæði Ísrael og
Palestínu í opinbera heimsókn, sem
hafa átt í miklum átökum um árabil,
sem kunnugt er.
Samskiptin eru sérlega brothætt
nú, eftir að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti viðurkenndi Jerúsalem
sem höfuðborg Ísrael.
Ásamt því að funda með forsætis-
ráðherranum Benjamin Netanyahu,
heimsótti Vilhjálmur meðal annars
Yad Vashem-minnisvarðann um hel-
förina og hitti Netta Barzilai, sig-
urvegara Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva.
Í Palestínu ávarpaði hann forset-
ann Mahmud Abbas og vakti athygli
að hann vísaði til palestínskra land-
svæða sem „ríkis“, í ljósi tregðu
margra ríkja til að telja Palestínu til
ríkis. Ekki hafa fengist upplýsingar
frá bresku krúnunni um hvort um
mismæli hafi verið að ræða.
Í dag mun Vilhjálmur skoða sögu-
legar fornminjar og helga staði í
austurhluta Jerúsalem.
Ferðast um Ísrael og Palestínu
AFP