Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Marta María
mm@mbl.is
Saga Dixons er merkileg. Hann er
sjálfmenntaður iðnhönnuður sem fór
óvenjulega leið í átt að frægð og
frama. Hann fæddist 1959 og þegar
hann var 13 ára lærði hann leirmótun
og skissugerð sem gerði það að verk-
um að áhugi hans á efnum og fram-
leiðslu hófst. Átján ára byrjaði hann í
listnámi en entist í sex mánuði. Hann
segir að skólavistin hafi bundið sig
niður og það kunni hann ekki að
meta.
Þegar ég spyr hann hvort það hafi
ekki lengt leiðina á toppinn að fara
ekki í hönnunarskóla segir hann svo
ekki vera.
„Það að fara ekki í hönnunarskóla
flýtti ferlinu og gerði það að verkum
að ég gat prófað mig áfram. Það
hentar sumum að fara í hönnunar-
skóla en það hentaði bara ekki mér. Í
dag geri ég töluvert af því að kenna í
slíkum skólum og þá nota ég tímann
og læt nemendurna prófa sig áfram.
Fólk lærir mest af því að prófa sig
áfram og gera mistök,“ segir hann.
Dixon er nú á níutíu daga ferðalagi
um heiminn og þess vegna kom hann
til Íslands. Þótt hann hafi stoppað
stutt náðu náttúran og fólkið að
hreyfa við honum. Hann segir magn-
að að upplifa áhugann hérlendis á
hönnun hans.
„Það þurfa allir hönnuðir að fá
frískt loft til að fá nýjar hugmyndir.
Ísland er mjög góður staður til að fá
góðar hugmyndir.“
Ég segi honum að bronsljósið hans
sé á öðru hverju heimili á Íslandi og
hann hlær.
„Þess vegna var mikilvægt að búa
þetta ljós til í svörtu,“ segir hann en í
nýju línunni er komin kolsvört útgáfa
af bronslitaða ljósinu og kemur það
einnig í fleiri stærðum. Bronskúlan
hans Dixons skapar góða stemningu
og keyrir upp diskóið. Sama ljós er
líka komið í bláum lit sem er frískleg-
ur. Það er svo sem ekkert skrýtið að
þessi ljós hafi orðið vinsæl
því það er eitthvað svo
mikið diskó í þeim. En
það er líka diskó í Dixon
sem var hér á árum áður
í diskóhljómsveitinni
Funkapolitan þar sem
hann spilaði á bassa. Úr
þessari hljómsveit fór hann
yfir í næturklúbbabransann
og rak nokkra klúbba. Svo tók
lífið völdin og áður en hann vissi af
var hann kominn með dellu fyrir að
logsjóða sem hann lærði af vini sín-
um sem átti bílapartaverkstærði.
Eftir að hann lærði að logsjóða fóru
hlutirnir að gerast.
„Það opnaðist alveg nýr heimur
fyrir mér. Þetta var fljótleg og auð-
veld leið til að búa til hluti,“ segir
hann en á þessu tímabili bjó hann til
100 stóla á einu ári. Húsgögnin hans
vöktu fljótlega áhuga margra og Dix-
on eignaðist kúnnahóp sem gerði það
að verkum að hann fór frá því að vera
logsuðumaður yfir í handverksmann
og að lokum hönnuður. Á níunda ára-
tugnum stækkaði verkstæðið hratt
og unnu tuttugu manns hjá honum
sem sérhæfðu sig í málmsmíði og
varð það nokkurs konar leikvöllur
fyrir unga og upprennandi hönnuði
eins og Michael Young, Thomas
Heatherwick og Michael Anastassia-
des. Það var svo árið 1988 að hann
hannaði sitt fyrsta ljós, Spiral, sem
átti eftir að vekja ástríðu hans og
áhuga fyrir ljósum.
Lærði endalaust
hjá Habitat
Árið 1998 var Dixon
ráðinn listrænn stjórn-
andi Habitat, sem þá
var í eigu IKEA, og
því starfi gegndi hann
til ársins 2008. Hann
segist hafa lært
óskaplega margt á því
að vinna fyrir Habitat.
Þar vann hann með
upprennandi stjörnum í
hönnunarheiminum eins
og Bouroullec-bræðrum,
Achille Castiglioni og Verner
Panton.
„Að vinna fyrir Habitat veitti
mér mikla innsýn í hvað fólk vill og
hvað það kaupir. Í raun er fólk mjög
íhaldssamt. Ég lærði mikið um það
hvernig fólk býr sér til heimili, um
vöruframleiðslu, alþjóðlega smásölu
og innkaup. Ég lærði að skilja þenn-
an heimilisheim sem fæstir hönnuðir
búa að,“ segir hann.
Árið 2002 stofnaði Dixon fyrirtæki
sitt, Tom Dixon. Þegar hann er
spurður hver hafi verið skurðpunkt-
urinn og hvers vegna hann hafi stofn-
að fyrirtækið á þessu augnabliki seg-
ist hann hafa þurft eitthvað nýtt.
Hönnuðurinn Tom Dixon heimsótti Ísland og heillaðist upp úr skónum af
orkunni sem ríkir hérlendis. Hann mætti hingað til lands með sýningu á
verkum sínum en á sýningunni var einnig hægt að sjá nýjar afurðir hönn-
uðarins. Íslendingar þekkja vel hönnun Dixons en hann hannaði til dæmis
bronskúluna sem hangir í betri stofum bæjarins.
Samvinna Þessa
mublu hannaði
Tom Dixon í sam-
vinnu við IKEA.
Hönnuðurinn Tom
Dixon og Marta
María Jónasdóttir
ritstjóri Smartlands.
Nútímalegt Melt
ljósið hans Tom Dixon
í speglaefni.
„Ég lifi eins og sígauni“
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.