Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 52

Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Gleraugu: Módel: Kolfinna Nikulásdóttir Strandveiðin er komin vel af stað á þessu sumri og hafa tilkynn- ingar um umframafla nú verið sendar út til útgerða, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Alls lönduðu 240 bátar afla umfram heimild og gerir stofnunin ráð fyrir að álagning vegna þessa muni hljóða upp á rúmar 5,3 milljónir króna, sem renni beint í ríkissjóð. Bendir stofnunin á að allur umframafli sé ólögmætur sjávarafli en dragist þó engu að síður frá þeim 10.200 tonnum sem úthlutað var til strandveiða þetta sumarið. Hér má sjá lista yfir þá báta sem mest lönduðu umfram heimild í maímánuði. Umframaflakóngar í maí Heimild: Fiskistofa Skipanr. Skip Svæði Umframafli (kg) Álagning 7486 Heppinn ÍS -74 SA 330 75.333 7136 Sigga GK -82 SD 327 73.922 2834 Hrappur GK -8 SD 321 72.655 2177 Arney SH -162 SA 308 70.323 7401 Ásbjörn Sf -123 SD 316 66.973 5823 Sól BA -14 SA 285 65.059 6310 Hrönn ÍS -94 SA 267 60.949 6470 Lukka GK -72 SD 263 59.887 2151 Græðir BA -29 SA 262 59.808 240 bátar lönduðu umfram heimild Hægt er að leyfa allt að 2.500 tonna fiskeldi í Önundarfirði. Þetta er niðurstaða burðarþols- mats Hafrannsóknastofnunar, en í matinu er gert ráð fyrir að heildarlífmassi í firðinum verði aldrei meiri en 2.500 tonn og sömuleiðis að vökt- un á áhrifum eldisins fari fram. „Slík vöktun er forsenda fyrir hugsanlegu endurmati á burðarþoli fjarðarins, til hækkunar eða lækkunar, sem byggt væri á raungögnum,“ segir í matinu, auk þess sem bent er á að æski- legra sé að eldismassi sé utar í firðinum en inn- ar. Vindur hefur mikil áhrif Fram kemur að fjörðurinn sé fremur grunn- ur og meðaldýpi hans um 18 metrar, en mest sé það 32 metrar í mynni fjarðarins. Niðurstöður straummælinga sýni tiltölulega veikan með- alstraum vegna mikils breytileika í straum- stefnu á straumsjám, og frekar óreglulega hringrás í firðinum. „Ljóst er að vindur hefur mikil áhrif á strauma fjarðarins vegna þess hve grunnur hann er og fylgir útflæði sunnanvert oft sterk- um norðaustan vindáttum,“ segir í matinu. Ætla megi að endurnýjunartími fjarðarins sé um tíu til ellefu sólarhringar. Lítið pláss geti magnað vanda Bent er sérstaklega á að margir líffræðilegir, vistfræðilegir og hagrænir þættir geti legið til grundvallar burðarþoli varðandi fiskeldið, t.d. skólplosun, smithætta, lyfjanotkun, erfðablönd- un við villta stofna og veiðihagsmunir. „Þessu til viðbótar hefur komið í ljós að laxa- lús og fiskilús geta valdið meiri skaða en áður var talið. Fyrir fjörð sem er jafn lítill og Önund- arfjörður hefur skortur á plássi einnig áhrif á burðarþolið og getur magnað mögulegan lús- avanda. Ljóst er að hér eru fyrir hendi að- stæður sem setja verulegt mark á burðarþol fjarðarins.“ Af þessum sökum gefi svokölluð varúðarn- álgun ástæðu til að mæla með því að hámarks lífmassi verði ekki meiri en 2.500 tonn í Önundarfirði. sh@mbl.is Önundarfjörður gæti borið 2.500 tonn Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Flateyri Skortur á plássi í grunnum firðinum er sagt hafa áhrif á burðarþol til fiskeldis. Meira fæst af stærri fiski Stofnvísitala þorsks hefur verið í hámarki á flestum svæðum frá árinu 2011, eftir að hafa verið í lágmarki árin 2002 til 2006, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofn- unar, sem beinist að stofnmælingum hrygning- arþorsks með þorskanetum árin 1996 til 2018. Greint er frá því að kanturinn austan við Vestmannaeyjar skeri sig þó úr, því þar hafi afli verið í hámarki fyrstu ár rannsóknartímabils- ins, en mjög lítið hafi fengist þar af þorski frá árinu 2010. Sýnt er að auki fram á að undanfarin ár hafi fengist meira af stærri fiski en á árunum 1996 til 2002, sem sé í samræmi við hærri aldur og stærð hrygningarstofnsins samkvæmt stofn- mati. Ágætt samræmi sé þá á þróun stofnvísitalna úr stofnmælingum með þorskanetum annars vegar og með botnvörpu hins vegar, sem sýni að hrygningarstofn þorsks hafi meira en tvö- faldast frá árinu 2007. Breytingar á vaxtarhraða Bent er á að vaxtarhraði þorsks, þ.e. þyngd hans miðað við aldur, hafi breyst á rannsókn- artímanum. Hann hafi aukist við vestanvert landið og við Norðurland, en minnkað fyrir suð- austan land. „Hlutfall ókynþroska fisks hefur lækkað frá fyrstu árum rannsóknarinnar en kynþroska- hlutfall eftir aldri hefur hins vegar ekki breyst mikið hjá algengustu aldurshópum,“ segir í skýrslunni. Magn ufsa hefur þá samkvæmt henni farið vaxandi undanfarin ár og er sjö til ellefu ára ufsi algengastur í þorskanetin. Enn fremur veiðist ýsa á öllum svæðum og fæst mest af ýsu sem er 60 sentimetrar eða stærri. Mestur var ýsuaflinn á árunum 2005-2008, 2011-2013 og 2017-2018.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.