Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 63

Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 63
meðlimur í Flugklúbbi Mosfells æ síðan. Þá gekk Haukur í Leiðsögu- skólann 2007-2008, áður en hann stofnaði ferðaskrifstofu með eigin- konu sinni. Haukur stofnaði ferðaskrifstof- una Iceland Photo Tours/Look North ehf. árið 2009 ásamt eigin- konu sinni, Höddu Björk Gísladótt- ur. Fyrirtækið býður ljósmynda- áhugamönnum upp á ferðir víða um land árið um kring, auk þess sem Haukur flýgur vél sinni stundum sjálfur og tekur myndir úr háloft- unum. Þannig fara hönd í hönd tvö áhugamál Hauks, flug og ljós- myndun, sem hann fékk ekki ólík- lega í föðurarf. „Ég hafði starfað sem ljósmyndari frá 1993 en leið- sagt fólki í hjáverkum og hafði farið í Leiðsögumannaskólann 2007 til að vita aðeins meira. Svo eftir hrunið þá sneri ég mér alveg að þessu og vinn við þetta af og til allt árið.“ Hjónin hafa rekið gistiheimili í Hrífunesi í Skaftártungu síðan 2010. Það heitir nú Hrífunes Guest- house. „Við hjónin höfðum keypt gamalt hús í Hrífunesi í Skaftár- tungu fyrir hrun og ætluðum að hafa það sem sumarhús en breytt- um því fljótlega í gistihús. Þetta var gamalt samkomuhús en við erum búin að stækka og byggja við og er- um komin með 12 herbergja gisti- hús sem er opið mestallt árið og er- um með fimm manns í vinnu. Konan mín, Hadda Björk Gísladótt- ir, stjórnar þessu.“ Auk þessara starfa í ferðaþjónustunni hefur Haukur ýmis áhugamál, svo sem skotveiði, blak og útivist í víðum skilningi. Í tilefni fimmtugsafmælisins fór Haukur í fjallgöngu ásamt konu sinni og syni, Sigurði Snorra. Þegar blaðamaður ræddi við Hauk lá ekki fyrir á hvaða fjall yrði gengið enda þarf auðvitað að taka mið af veðri hverju sinni. „Það getur verið að við förum upp á Rjúpnafell, það er í ná- grenni Hrífuness og ætti ekki að snjóa eða frysta þar, en eins og tíðarfarið er þá varð ég að hætta við hærri fjöll. Það er dálítið svalt að fara upp fjörutíu og níu ára en koma niður fimmtugur. Eitthvað sem lifir alltaf í minningunni.“ Fjölskylda Eiginkona Hauks er Hadda Björk Gísladóttir framkvæmda- stjóri. Hún er fædd 22. ágúst 1962, dóttir Gísla B. Björnssonar, graf- ísks hönnuðar í Reykjavík, f. 1938, og Lenu M. Rist, kennara í Reykja- vík, f. 1939. Sonur Hauks heitir Sigurður Snorri Hauksson og er fæddur 18. maí 2004. Stjúpbörn Hauks eru: I) Kári Steinn Karlsson, fjár- málastjóri í Reykjavík, f. 1986, maki hans Aldís Arnarsdóttir rekstrar- stjóri. II) Gísli Hrafn Karlsson, slökkviliðs- og sjúkraflutninga- maður í Reykjavík, f. 1989, maki hans Andrea Ottósdóttir, markaðs- og mannauðsstjóri. III) Hjalti Sig- urður Karlsson, sálfræðinemi í Reykjavík, f. 1993, maki hans Inga Brá Ólafsdóttir flugmaður. Barnabörn eru tvö: Elín Björk Gísladóttir, f. 2017 og Arnaldur Kárason, f. 2017. Systkini Hauks eru Jón Karl Snorrason flugstjóri, f. 26.3. 1950, Snorri Snorrason ráðgjafi, f. 24.3. 1954, og Helga Guðrún Snorradótt- ir barnfóstra, f. 28.4. 1958. Haukur Snorrason María Polly Ólafsson Grönvöld húsfr. á Akureyri Gísli J.Ólafsson landsímastjóri Helga Gísladóttir Ólafsson húsfreyja í Rvík Henri Lucien Nagtglas hollenskur sjóliðsforingi Nanna Nagtglas Snorrason húsfreyja Snorri B. Jónsson flugmaður Jóhannes R. Snorra- son flugmaður Jón Karl Snorrason flugmaður Jóhannes Örn Jóhannes- son flugmaður Hjörleifur Jóhannes- son flugmaður Jóhannes Jónsson b. Þönglabakka og Kussungsstöðum í Fjörðum Guðrún Sigríður Hallgrímsdóttir húsfr. Guðrún Jóhannesdóttir húsfr. á Akureyri Snorri Sigfússon skólastjóri á Akureyri Anna Sigríður Björnsdóttir húsfr. í Svarfaðardal Sigfús Jónsson b. og form. Brekku, Svarfaðardal Úr frændgarði Hauks Snorrasonar Snorri Snorrason flugstjóri og ljósmyndari Hjónin Haukur og Hadda ferða- þjónustubændur í Hrífunesi. ÍSLENDINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Hjörtur Hjálmarsson, skóla-stjóri og sparisjóðsstjóri áFlateyri, fæddist á Þorljóts- stöðum í Vesturdal í Skagafirði hinn 28. júní 1905. Foreldrar hans voru Hjálmar Stefán Þorláksson bóndi og Kristín Guðleif Þorsteinsdóttir hús- móðir. Hjálmar og Kristín skildu þeg- ar Hjörtur var ungur og fluttist hann þá með Kristínu móður sinni, eldri systur sinni, Steinunni, og manni hennar, Þórarni Árnasyni, vestur í Reykhólasveit þar sem þau Steinunn og Þórarinn bjuggu á Miðhúsum. Hjörtur lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 1922. Hann starfaði til að byrja með sem kennari í Reykhólasveit en ákvað að fara í kennaranám. Lauk hann því árið 1926. Árið 1931 flutti Hjörtur til Flateyrar og gerðist kennari við Barnaskólann, fyrst sem almennur kennari en síðan skólastjóri frá 1959. Gegndi hann því starfi til ársins 1970 er sonur hans, Emil Ragnar, tók við af honum. Hjörtur kvæntist Aðalheiði Rögnu Sveinsdóttur (f. 29. október 1911) hinn 15. desember 1934, en hún var dóttir Sveins Gunnlaugssonar sem var skólastjóri á Flateyri á undan Hirti. Þeir tengdafeðgar byggðu sér hús saman og þar fæddust synir þeirra Hjartar og Rögnu, Emil Ragn- ar (f. 23. apríl 1936) og Grétar Snær (7. ágúst 1937). Aðalheiður Ragna andaðist 2. júní 1980. Hjörtur gegndi ýmsum trún- aðarstörfum á Flateyri. Hann var oddviti Flateyrarhrepps á árunum 1938 til 1946 og hreppstjóri frá 1948 til 1972. Þá sat hann í sýslunefnd árin 1942 til 1972. Hjörtur sat í stjórn og var lengi stjórnarformaður Kaup- félags Önfirðinga frá 1944 til 1973. Hjörtur sat í stjórn Sparisjóðs Önfirð- inga í fjörutíu ár, frá 1949 til 1989, og var hann jafnframt sparisjóðsstjóri frá 1977-1989. Hjörtur var gerður að heiðursborgara Flateyrarhrepps á sjötugsafmæli sínu árið 1975. Hjörtur var varaþingmaður Al- þýðuflokksins á Vestfjörðum 1959-62 og tók tvívegis sæti á Alþingi. Hjörtur lést 17. nóvember 1993. Merkir Íslendingar Hjörtur Hjálmarsson 100 ára Ragna Gamalíelsdóttir 95 ára Jytte Karen Michelsen 90 ára Bára J. Olsen Halldór Júlíusson 85 ára Friðrika Karlsdóttir Gísli Bjarnason Sólrún Helgadóttir Trausti Runólfsson 80 ára Auður Ófeigsdóttir Björg Björnsdóttir Erna Tryggvadóttir Kjartan Reynir Ólafsson 75 ára Anna Einarsdóttir Baldur Bjartmarsson Elín Magnúsdóttir Eyjólfur B. Karlsson Gréta Björnsdóttir Guðmunda Laufey Hauksd. Sigríður Guðmundsdóttir 70 ára Axel Jóhann Axelsson Ágúst J. Magnússon Eygló Ágústa Árnadóttir Guðbjörg Herbertsdóttir Harpa Ágústsdóttir Jórunn Erla Stefánsdóttir 60 ára Anna María G. Arnardóttir Daníel Þorkell Magnússon Gunnar Jóhannesson Jóhann Karl Árnason Jón Bragi Gunnlaugsson Jón Sigurpáll Hansen Ólafur Grétar Kristjánsson Ragnhildur Stefánsdóttir Sigríður María Sverrisdóttir Sigurbjörn R. Antonsson Svanhildur Kr Sverrisdóttir 50 ára Adriana Morbidelli Guðrún Arnardóttir Haukur Kristinn Snorrason Hrönn H. Hreiðarsdóttir Hulda Gunnarsdóttir Magnús Sigurðsson Selvadore Raehni Sigrún Ragna Helgadóttir 40 ára Andri Páll Hilmarsson Böðvar Rafn Reynisson Casper Vilhelmsen Guðrún Ásta Sigurðardóttir Harpa Mjöll Gunnarsdóttir Herdís Vattnes Þrastard. Irma Elisa Diaz Cruz Íris Rut Agnarsdóttir Sigurður Garðar Flosason Sigurlaug St. Steinarsdóttir Sveinn David Pálsson Þorbjörg S. Sigurðardóttir 30 ára Aron Örn Jónsson Bjartmar Örnuson Dóra Hue Ottósdóttir Einar Þór Bernhardsson Geir Bjarnason Guðfinnur B. Skæringsson Guðjón Vésteinsson Guðrún Björnsdóttir Hafþór Rúnarsson Harpa Másdóttir Fenger Hákon H. S. Gröndal Heimir Hannesson Katarínus Jón Jónsson Óli Pétur Benediktsson Sigrún Þ. Kjartansdóttir Solveig Rut Sigurðardóttir Stefán Björn Aðalsteinsson Stefán L. Stefánsson Sædís Jana Jónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Guðrún er frá Sauðárkróki en býr í Hafn- arfirði. Hún er sjálfstætt starfandi kjólameistari og klæðskeri. Eiginmaður hennar er Gunnar Helga- son sjómaður. Börn: Aðalsteinn Helgi Gunnarsson f. 2015 og Sigríður Sunna Gunn- arsdóttir f. 2018. Foreldrar: Sigríður Guð- mundsdóttir f. 1952 verk- stjóri og Björn Jónsson f. 1950 vélstjóri. Guðrún Björnsdóttir 50 ára Selvadore fæddist í Tarto í Eistlandi og býr í Bol- ungarvík. Hann er klarinett- leikari og skólastjóri í Tón- listarskólanum í Bolungarvík. Börn: Oliver, f. 2003 í Jap- an. Í píanónámi. Mariann, f. 2005 á Akureyri. Í píanó- og fiðlunámi. Eiginkona: Tuuli Rähni, pí- anóleikari og organisti í Ísa- fjarðarkirkju. Foreldrar: Aino Rähni og Rein Rähni. Selvadore Rähni 40 ára Andri er frá Laugarvatni og býr í Hafn- arfirði. Hann er bygginga- tæknifr. og húsasmiður og starfar sem deildarstjóri fasteignasviðs hjá Rarik. Eiginkona: Ásdís Hanna Pálsdóttir nemi, f. 1981. Börn: Hilmar Páll, f. 2006, Ásgeir Hans, f. 2009, Þor- björg Hekla, f. 2015, og Páll Birnir, f. 2017. Foreldrar: Hilmar Ein- arsson, f. 1940, og Berg- lind Pálmadóttir, f. 1942. Andri Páll Hilmarsson --- ALLT A EINUM STAD � HÓT E L R E K S T U R Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun að Hátúni 6a Hágæða rúmföt, handklæði og fallegar hönnunarvörur fyrir heimilið Eigum úrval af sængurvera settum Percale ofin – Micro bómul l, egypskri og indverskri bó mull Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.