Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur verið of upptekinn að
undanförnu og ekki gefið gaum að þeim
sem næst þér standa. Nú kemur sér vel
að eiga góða samstarfsmenn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú verður að ganga í það að
hreinsa til jafnvel þótt þú hafir ekki valdið
glundroðanum. Fólk getur verið krefjandi
og þú munt komast að því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt gott sé að hafa hlutina
skipulagða og á hreinu getur verið spenn-
andi að fara í óvissuferð við og við. Um
leið og þú gerir það geturðu slakað á og
skemmt þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Dagurinn hentar vel til funda og
ráðstefnuhalda þar sem hópsamræður
verða að öllum líkindum kraftmiklar og
skemmtilegar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú getur ekki reiknað með því að
allir falli flatir fyrir áætlunum þínum.
Gættu þess vel að enginn misnoti gest-
risni þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skipuleggðu vinnutímann betur og
leitaðu aðstoðar með það sem þarf.
Skemmtilegt síðdegi er í vændum með
vinum og fjölskyldu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Blandaðu þér ekki í deilur vinnu-
félaga þinna. Það hefur ekkert upp á sig
að berjast gegn því sem er óhjá-
kvæmilegt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leggðu þig fram um að sýna
öðrum umhyggju í dag. Hættu því að
snúa upp á þig og komdu til móts við þá
sem eru reiðubúnir til sátta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki sá sem hæst galar
sem fær fólk til liðs við sig. Þegar þú leyf-
ir andagiftinni að ráða för lendirðu á
óvæntum stað þar sem galdrar gerast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þú hafir sett markið hátt
er engin ástæða til að ætla annað en þér
takist að ná því. Notaðu daginn til þess
að skipuleggja þig betur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur verið gott að fá aðra
í lið með sér þegar verkefnin gerast flók-
in. Skoðaðu hvert mál vandlega áður en
þú tekur afstöðu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert eitthvað hátt stemmdur og
það þarf lítið til að hlutirnir fari í skapið á
þér. Einhverra hluta vegna er hugur þinn
rafmagnaðri en ella um þessar mundir.
Sigmundur Benediktsson skrifaðimér og benti mér á, að í stöku
eftir Kristján Ólason, sem birtist í
Vísnahorni 18. júní, stæði ranglega
„þínum“ fyrir „mínum“. Þetta er
vitaskuld rétt hjá Sigmundi, – vísan
verður meiningarlaus eins og hún
stendur þar. Rétt er hún svona:
Góða, mjúka gróna jörð,
græn og fögur sýnum!
Hví er alltaf einhver hörð
arða í skónum mínum?
Kristján var snjall hagyrðingur og
alltaf gaman að rifja upp stökur
hans. Hér er „Sláttumaður“:
Heldur urðu hey þín smá
hér í þessu lífi,
þrátt fyrir afbragðs lipran ljá
í lyga og bragða þýfi.
„Ekki til skiptanna“ (maður hélt
fram hjá konu sinni):
Oft var járn í eldi brennt,
ef þú tveggja gáðir.
Þegar skiptir þér í tvennt
þá eru litlir báðir.
„Litið um öxl“:
Lífið hefur streymt og streymt
strítt eða lygnt við bakka.
Sumt er geymt, en sumu gleymt,
svo er fyrir að þakka.
„Líf“:
Margt í drauma manni ber:
„merg og vín og feiti“,
meðan dauðinn dundar sér
dökkur á næsta leiti.
En Kristján er „sáttur við lífið –
furða hvað úr því hafðist“:
Hyggst ég sáttur héðan frá
hverfast brátt í rykið.
Lengi mátti litlu á
lifa hátt og mikið.
Árni póstur Sigurðsson gefur
þetta heilræði:
Meðan áttu æfibið
ekki máttu kveina.
Lífið sáttur sértu við.
Svo er fátt til meina.
Að síðustu eftir Kristján, „Sælir
eru einfaldir“:
Ekki sakar að ég sést
eins og glópur standa.
Fyrirheitið fengu best
fátækir í anda.
Páll Sigurðsson, bóndi í Skógum í
Suður-Þingeyjarsýslu, orti:
Norðri fer með napran gust
nokkuð brúnasiginn.
Kemba á sig bratta bust
bólstramiklu skýin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Pennaglöp og
þingeyskar vísur
„ÞETTA ER HÁLFGERÐ
EYÐIMERKURGANGA HJÁ ÞÉR – SEM ER
EINKENNILEGT MIÐAÐ VIÐ AÐ FRAMTÍÐ
ÞÍN HÉR ER ÖLL Í ÞOKU.“
„HANN SEGIR JÁ!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar allt verður
skýrt.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BORÐ FYRIR FÖNDUR
OG ÚRKLIPPUBÆKUR
HÉRNA...
ÉG ER LOKSINS AÐ
ÚTBÚA KARLAHORN!
BLESS
KARLAHORN,
HALLÓ
FÖNDUR-
HORNKOMINN
TÍMI TIL
ÉG BAÐ LÍSU AÐ HJÁLPA
MÉR AÐ SKREYTA ÞAÐ
Ó, NEI
ÆTLARÐU NOKKUÐ AÐ TAKA SMÁKÖKURNAR
MÍNAR?!
SONUR SÆLL, ÞAÐ ER Í EÐLI
VÍKINGSINS AÐ HRIFSA TIL SÍN ÞAÐ
SEM MANN LANGAR Í!
Það er eflaust til að æra óstöðuganað tala meira um heimsmeistara-
keppnina í Rússlandi, en óstöðugir
þurfa þá bara að ærast. Þátttöku
Íslands á sínu fyrsta HM er því miður
lokið, en landsliðið getur engu að síð-
ur borið höfuðið hátt, þrátt fyrir að
hafa endað í neðsta sætinu í sínum
riðli, en fleiri þjóðir hafa þurft að þola
þau örlög í þessari keppni.
x x x
Þjóðverjar sýndu til að mynda á sérlítinn heimsmeistarabrag að
þessu sinni, og enduðu á að kveðja
keppnina í riðlakeppninni í fyrsta
sinn í 80 ár. Þeirra væntingar voru
reyndar ögn meiri en Íslendinga og
virðist sem liðið hafi gert ráð fyrir því
að þeir myndu sigla létt í gegnum
riðilinn sinn. Slíkt kann aldrei góðri
lukku að stýra.
x x x
Þá er athyglisvert að sjá hvernigútsláttarkeppnin raðast upp, þar
sem flestar helstu stórþjóðir knatt-
spyrnunnar virðast keppast um að
lenda frekar þeim megin „útsláttar-
trésins“ þar sem lið eins og Rússar,
Danir, Króatar og Svíar hafa nú lent,
frekar en þeim megin þar sem
Úrúgvæ, Portúgal, Frakkar,
Argentínumenn og Mexíkó hafa lent
þegar þessi orð eru rituð. Brasilía
gæti hæglega lent þeim megin líka,
sem og sigurvegari G-riðils, sem
verður annaðhvort Belgía eða Eng-
land.
x x x
Því gæti komið upp sú fáránlegastaða í leik Englands og Belgíu,
sem spilaður verður í kvöld, að það
verði betra fyrir liðin að lenda í öðru
sæti, til þess að losna við þann mögu-
leika að lenda hugsanlega mögulega
kannski í erfiðum leik í átta liða úr-
slitum, að því gefnu að þau nái að
vinna sinn leik í 16-liða úrslitum.
x x x
Það kæmi því ekkert endilega áóvart ef að einhver myndi
„óvart“ skora sjálfsmark á 90. mínútu
ef staðan er enn jöfn þá. Þvílíkt og
annað eins hefur gerst í fótbolta-
leikjum, en væri alveg einstaklega
óskemmtileg sjón á annars prýðilegu
heimsmeistaramóti, að lið þurfi ekki
að sækja til sigurs. vikverji@mbl.is
Víkverji
Já, vona á Drottin, ver öruggur og
hugrakkur, vona á Drottin.
(Sálmarnir 27.14)
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf