Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Samtök ferðaþjónustunnar sendu í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem þau
mótmæla „stórfelldum hækkunum“
á þjónustugjöldum innan Vatna-
jökulsþjóðgarðs sem voru settar 13.
júlí.
Samtökin segja hækkanirnar allt
að 80% og að þær sýni „algert skiln-
ingsleysi á starfsumhverfi og mark-
aðsaðstæðum ferðaþjónustuaðila,“
en það sé ótækt „á sama tíma og
samráðshópur ríkisstjórnarinnar,
SAF og Sambands íslenskra sveitar-
félaga um heildargreiningu á, og
framtíðarskipan gjaldtöku opin-
berra aðila af ferðaþjónustu er að
störfum á vettvangi Stjórnstöðvar
ferðamála.“
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnajökuls-
þjóðgarðs, segir gjaldskrána endur-
skoðaða eins og allar gjaldskrár hins
opinbera. „Vatnajökulsþjóðgarði ber
eins og öðrum ríkisstofnunum að
endurskoða og yfirfara gjaldskrár
sínar með reglubundnum hætti í
takt við breytingar á verðlagi og
kostnaði sem gjaldtakan er byggð á.
Það er stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
sem samþykkir breytingar á gjald-
skrá og sendir síðan umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu til umfjöllunar
og eftir atvikum breytingar.“
Krefjast afnáms hækkana
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
fundaði tvisvar um málið; 10 apríl og
14. maí. Fundargerðir um málið hafa
verið aðgengilegar öllum síðan þeim
fundum lauk. Samtök ferðaþjónust-
unnar segja hækkanirnar samt sem
áður gerðar „án fyrirvara og án
nokkurs samráðs við samtökin“. Þau
krefjast þess að hækkanir á gjald-
skrá í Vatnajökulsþjóðgarði verði
dregnar til baka og sömuleiðis
hækkanir á gjaldskrá á Þingvöllum
sem gerðar voru fyrir skömmu.
„Í ljósi alls þessa er það eðlileg
krafa SAF að viðkomandi hækkanir
á gjaldskrám þjónustugjalda í
Vatnajökulsþjóðgarði og á Þingvöll-
um verði dregnar til baka og öllum
sambærilegum áformum frestað um
óákveðinn tíma á meðan áhersla er
lögð á það samráð um heildarskipan
gjaldtöku af ferðaþjónustu sem
þegar er hafið.“
Sem dæmi um verðhækkanir
hækkar almennt gjald fyrir einn
fullorðinn á tjaldsvæði úr 1.700
krónum í 1.900 krónur, gjald fyrir að
gista í skála lækkar en rútugjöld fyr-
ir rútur sem taka 33 eða fleiri far-
þega hækka umtalsvert.
ragnhildur@mbl.is
Mótmæla „stórfelld-
um hækkunum“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ásbyrgi Eftir að ný reglugerð tók gildi hefur gistinótt á tjaldsvæði hækkað úr 1.700 krónum í 1.900.
Ný reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs
Það sem af er árinu hefur verið
metsala á heitu vatni á höfuð-
borgarsvæðinu. Notkunin á fyrstu
sex mánuðunum hefur verið 10%
meiri en að meðaltali, sé litið til
næstu fjögurra ára á undan. Í fjór-
um af þeim sex mánuðum sem liðnir
eru af árinu hef-
ur notkunin ver-
ið meiri en árin á
undan, mest í
janúar og júní,
segir í tilkynn-
ingu frá Veitum.
Dagana 16. til
23. janúar fór að
jafnaði 15.161
rúmmetri á
klukkustund í gegnum hitaveitu
Veitna á höfuðborgarsvæðinu, sem
er mesta vikunotkunin sem sést
hefur. Met í sólarhringsnotkun og
notkun á klukkustund voru einnig
slegin í janúar.
„Ástæða þessarar aukningar á
notkun á heitu vatni ætti ekki að
koma íbúum á höfuðborgarsvæðinu
á óvart. Kuldatíð í janúar og febr-
úar og einstaklega rysjótt tíð í maí
og júní á suðvesturhorni landsins
hefur ekki farið framhjá neinum.
Þess utan hefur notkun á heitu
vatni aukist mikið á síðustu árum,
eða um tæplega 20% á síðustu fimm
árum,“ segir í frétt Veitna.
Metsala á
heitu vatni
Kísil
STEINEFNI
Styrking bandvefs
Getur meðal annars
stuðlað að:
• Styrkingu á hjarta- og
æðakerfi líkamans
• Heilbrigði húðar og hárs
• Sterkari nöglum
• Góðri heilsu
• Örvun kollagen myndunar
Inniheldur engin aukaefni.
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
K L A P P A R S T Í G 4 4
40%
afsláttur
Útsalan er í fullum gangi
&
Nýjar vörur streyma inn!
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Enn meiri verðlækkun
50 - 70% afsláttur
af fatnaði og skóm
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSÖLU
SPRENGJA
Brúðubílinn heimsækir Árbæjarsafn
þriðjudaginn 24. júlí kl. 14 og er það
síðasta sýning Brúðubílsins í sumar.
Leikritið heitir Hókus-Pókus.
„Þar gerist margt skrítið og
skemmtilegt. Systurnar Bíbí og
Blaka syngja upphafslagið. Dúskur
mætir og í þetta skipti rammgöldr-
óttur og hann segir okkur líka hver
það var sem skírði landið okkar Ís-
land. Víkingar koma siglandi á skip-
um sínum og eru allir syngjandi
glaðir,“ segir m.a. í frétt Brúðubíls-
ins. Frítt er inn á safnið á meðan á
sýningunni stendur.
Síðasta sýning Brúðubílsins á þriðjudaginn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Árbæjarsafn Frá sýningu Brúðubílsins í
safninu fyrr í sumar. Fjöldi fólks mætti.