Jökull


Jökull - 01.06.2000, Page 84

Jökull - 01.06.2000, Page 84
Jöklabreytingar 1930–1960, 1960–1990 og 1997–1998 Oddur Sigurðsson Orkustofnun, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík YFIRLIT — Jöklamælingamenn hafa skilað umsögnum um jökulsporða á 50 stöðum haustið 1998. Af þeim hopuðu 39, fimm gengu fram en tveir stóðu í stað. Á þremur stöðum varð ekki komist að niðurstöðu vegna óljósra merkja eða að sporðurinn var hulinn. Sporður Gljúfurárjökuls í Skíðadal og Grímslandsjökuls á Flat- eyjardalsheiði voru komnir á kaf í snjó en virtust vera að hopa. Sporður Virkisjökuls er sem fyrr undir aurlagi. Af þeim jöklum, sem ekki eru framhlaupsjöklar hopuðu átján, tveir skriðu fram en tveir stóðu í stað. Sunnan- lands var sumarið 1998 hlýrra en í meðalári undanfarna áratugi en vetrarúrkoma heldur rýrari. Norðanlands var þessu öfugt farið. Enn skreið Drangajökull fram í Kaldalón (sjá 1. og 2. mynd) og lítið eitt í Leirufirði. AFKOMUMÆLINGAR Hér fylgja í töflu 1 tölur um afkomu nokkurra jökla samkvæmt mælingum Orkustofnunar og Raunvís- indastofnunar Háskóla Íslands (Helgi Björnsson og fl., 1993, 1995a, 1995b, 1997 og Raunvísindastofnun Háskólans, Helgi Björnsson og Finnur Pálsson munn- legar upplýsingar, Oddur Sigurðsson, 1989, 1991 og 1993 og Oddur Sigurðsson og Ólafur Jens Sigurðsson 1998). Til samanburðar eru einnig í töflunni samsvar- andi tölur fyrri ára. ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR Snæfellsjökull Hallsteini Haraldssyni virðist Hyrningsjökull hafa lækkað allverulega frá í fyrra. „Þúfurnar á Snæfells- jökli eru nú óvenju berar, enda ákoma á jökulinn venju fremur lítil undanfarin tvö ár.“ Hallsteinn fann nú á Jökulhálsi jöklamerki nr. 104 sem sást síðast í bláendann á haustið 1979. Er nú unnt að tengja mælingu haustsins við mælinguna frá 1957 og telst þá að jökuljaðarinn hafi færst fram um 218 m. Ekki hefur jökullinn skriðið fram sem þessu nem- ur, heldur er það sem eftir er af snjófyrningum undan- farinna fjögurra áratuga orðið að samfelldum ís sem kann þó að bráðna örar en gamall jökulís. Hér er gott dæmi um umskiptin sem hafa orðið í veðurfari undan- farin ár. Þarna hefur verið mikill skafl í nokkra áratugi og má kalla það sísnævi í einhverjum skilningi. Þannig er víða ástatt við jökla landsins þar sem jaðarinn er skammt undir hjarnmörkum. Í köldum eða úrkomusömum árum hylur snjór jökuljaðarinn þannig að hann verður ekki greindur nema með sérstakri at- hugun. Þannig hafa útlínur jökla verið ónákvæmlega sett- ar á flestum landakortum sem til eru af Íslandi og get- ur það skakkað verulega ef um smáa jökla er að ræða. Ekki þarf að skoða kort af jöklum lengi til að sannfær- ast um þetta. Því er ekki varlegt að treysta þeim flatar- málstölum sem dregnar eru gagnrýnislaust af kortum af jöklum. Drangajökull Kaldalónsjökull Merki hafa glatast í framgangi jökulsins og er því breytingin ekki nákvæmlega mæld heldur áætluð um 150 m. Indriði á Skjaldfönn hefur eftirfarandi að segja: „Haustið var gott og nær snjólaust til áramóta. Veturinn til vors meinlaus og snjóléttur. Vorið frekar kalt, en áfallalaust. Spretta sein vegna þurrka og hey- fengur slakur. Berin, einkum aðalbláber, mikil og góð. Dilkar í vænna lagi. Skjaldfönn tók alveg upp 5. sept- ember og hjarnfannir aðrar flestar uppurnar um vetur- nætur. Þann 4. september hringdi í mig Páll bóndi í Bæj- um á Snæfjallaströnd, hafði ásamt Önnu konu sinni ekið sem leið lá fyrir Kaldalón á leið heim úr ferða- lagi. Tóku þau þá eftir jakahrönnum uppi á eyrum og bökkum við Mórillubrú. Einnig var láglendið inn und- ir skriðjökulsporðinn sem glitrandi ísbreiða að sjá í sólskininu. JÖKULL No. 49 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.