Jökull


Jökull - 01.06.2000, Page 96

Jökull - 01.06.2000, Page 96
Jöklarannsóknafélag Íslands SKÁLAMÁL Dittað var að húsum á Grímsfjalli og í Jökulheim- um en ekki var ráðist í neinar stórframkvæmdir. Á Grímsfjalli var gert við þakleka með því að skipta um lista á hluta þaksins. Borið var á nýrri húsin í sumar og pallana. Í Jökulheimum var eldavél tekin til við- gerðar og gert við glugga. Áætlaðar eru endurbætur á gamla skálanum á Grímsfjalli en hann gegnir nú æ stærra hlutverki vegna þeirra mælitækja sem þar eru og áformað er að koma þar fyrir. Til skoðunar eru gagngerar endurbætur á Nýja skálanum í Jökulheim- um og er teikning tilbúin. Ljóst er að um verulegar framkvæmdir verður að ræða. Óljóst er ennþá hvenær af þessum framkvæmdum verður en áhugi er fyrir því að tengja þær afmælisárinu 2000. Í Reykjavík hef- ur félagið haft afnot af sal í risinu í Mörkinni 6 auk geymslu í kjallara. BÍLAMÁL Dodge bifreið félagsins hefur farið margar ferðir á ár- inu vegna margvíslegra rannsóknarverkefna. Nokkr- ar ferðir voru á vegum félagsins og ber þar vorferð- ina hæst. Einnig var bíllinn leigður til jöklarannsókna og skyldra verkefna á vegum ýmissa rannsóknastofn- anna. Af fjórtán ferðum voru fjórar á vegum félags- ins sjálfs, tvær á vegum Hollendinga til rannsókna á Breiðamerkurjökli, fimm á vegum Raunvísindastofn- unar, tvær á vegum Landsvirkjunar og ein á vegum Veðurstofunnar. Stóð bíllinn sig mjög vel þrátt fyrir að vera oftast þunglestaður. Bílanefndin með formanninn í broddi fylkingar hefur átt veg og vanda af viðhaldi og rekstri bílsins. Nokkrar tekjur fengust af bílnum vegna ferða og dugðu þær rúmlega fyrir rekstrar- og viðhaldskostnaði. Er greinilegt á eftirspurninni eftir bílnum að full ástæða var fyrir félagið að koma sér upp þessu tæki. Ekki hefur tekist að leysa á viðunandi hátt að finna geymslupláss fyrir bílinn hér í Reykja- vík. Um tíma hefur fengist að geyma bílinn í húsnæði Landsvirkjunar í rafstöðinni við Elliðaár. Ljóst er þó að þar er aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Fé- lagið á enn tvo snjóbíla, Bombann og Jaka. Reynt var að selja bílana á árinu en áhugi virðist takmarkaður. ALÞJÓÐLEGUR FUNDUR UM VATNAJÖKUL Haldinn í Freysnesi í Öræfasveit í júní - fyrsti fundur- inn þessarar gerðar - síðasti hluti Evrópska EISMINT verkefnisins sem fjallaði einkum um líkangerð af jökl- um. Helgi Björnsson veitt því forystu fyrir Íslands hönd. M.a. voru kynnt þau gögn sem til eru um Vatna- jökul en drjúgum hluta þeirra hefur verið aflað með starfsemi og ferðum félagsins. ÖRYGGISMÁL Á GRÍMSFJALLI Eins og fram kom hér að framan varð alvarlegt slys á Grímsfjalli þann 13. maí þegar bíllinn ók fram af fjallinu. Í kjölfar slyssins urðu umræður í stjórninni um að leita þyrfti leiða til að minnka hættu á slysum á þessum stað sem er aðalbækistöð félagsins á Vatna- jökli. Áætlað var að starfshópur skilaði áliti fyrir síð- ustu áramót en annir vegna Grímsvatnagoss og ný við- horf í kjölfar þess hafa seinkað niðurstöðu. Eldgos eru nefnilega önnur hætta á Grímsfjalli enda standa skál- arnir á barmi virkustu öskju á Íslandi þar sem gos eru tíðari en annarstaðar á landinu. AÐILD AÐ SAMÚT Í kjölfar mikillar umræðu um málefni hálendisins síð- astliðið vor var nú í haust stofnuð samtök áhuga- mannafélaga um ferðalög og útivist. Nefnast þau Samtök Útivistarfélaga. Stjórn JÖRFI ákvað að ger- ast stofnfélagi og situr Magnús Tumi Guðmundsson í stjórn samtakanna fyrir hönd JÖRFI og Garðar Briem til vara. Full ástæða er fyrir félagið að fylgjast vel með málefnum hálendisins og aðgerðum stjórnvalda þar. Síðastliðið vor voru sett ný sveitarstjórnarlög þar sem hreppum var fært skipulagsvald á jöklum lands- ins. Þá gerðist það að Vatnajökli var skipt upp í marga hreppa og ljóst er því að miðað við núgildandi lög þarf félagið að eiga við allmarga hreppa vegna skipulags á Vatnajökli þar sem hús þess eru staðsett. Nú liggja hreppamörk fjögurra hreppa á Grímsfjalli, gott ef ekki á Eystri Svíahnúk. Er því eins líklegt að á Grímsfjalli gangi menn nú til náða í Reykjahlíðarhreppi, hugi að tækjum í Skaftárhreppi, en geri síðan þarfir sínar og baði sig í Austur Skaftafellssýslu. Þó svo félagið hafi JÖKULL No. 49 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.