Jökull


Jökull - 01.06.2000, Side 104

Jökull - 01.06.2000, Side 104
Jöklarannsóknafélag Íslands – rannsóknaferðir Landsvirkjun lagði til snjóbíl og bílstjóra, jeppa og vélsleða. Vegagerðin styrkti endurbætur á gamla skálanum með fjárframlagi. Er það hér þakkað. Þátttakendur Allan tímann voru: Finnur Pálsson, Hannes Haraldsson, Halldór Gíslason yngri, Kirsty Langley, Magnús Tumi Guðmundsson, Valgerður Jóhannsdóttir, Fyrri viku leiðangursins voru: Anna Líndal, Benedikt Grön- dal, Eiríkur Kolbeinsson, Elín Jónsdóttir, Guðrún Thorar- ensen, Inga Árnadóttir, Jón Kjartansson, Leifur Jónsson, Oddur Sigurðsson, Sjöfn Sigsteinsdóttir, Sólveig Kristjáns- dóttir, Stefán Bjarnason, Sveinbjörn Steinþórsson, Sverr- ir Hilmarsson, Theodóra Thoroddsen, Þorvaldur Gröndal, Þóra Karlsdóttir, og Þórdís Högnadóttir. Seinni viku leiðang- ursins voru: Bergur H. Bergsson, Bryndís Brandsdóttir, Bob White, Elsa Vilmundardóttir, Guðrún Larsen, Hlíf Ólafs- dóttir, John Smellie, Jósef Hólmjárn, Magnús Hallgrímsson, Ola Knut Brandt, Peter Schelander, Runólfur Valdemarsson Sonja Hand, Sveinn Jakobsson, og Vala Hjörleifsdóttir. Haustferðin Þriðja skipulagða rannsóknaferð JÖRFÍ á Vatnajök- ul var haustferðin. Slíkar ferðir voru farnar nokkrum sinnum um og fyrir 1960 eins og lesa má um í Jökli frá þeim tíma. Vegna umsvifa í tengslum við rann- sóknir í Gjálp og Grímsvötnum þótti heppilegt að end- urvekja þessar ferðir. Beðið var hentugs veðurs fram til 20. september. Þá lagði 9 manna hópur af stað úr Reykjavík og fór sem leið liggur inn fyrir Hreysiskvísl á Sprengisandi. Þar höfðum við náttstað í ágætu húsi Landsvirkjunar. Daginn eftir lá leiðin um Hágöngur, yfir Hágöngustíflu og síðan á vaði yfir Köldukvísl á yfirfallinu. Ekki er hvatt til þess að þessi leið sé not- uð því vaðið er ófært með öllu ef umtalsvert vatn er í ánni. Ágætlega gekk norður yfir Sylgju og inn á Köldukvíslarjökul. Jökullinn reyndist greiðfær en vél- in fór í einum vélsleðanum eftir um 15 km ferð áleiðis í Grímsvötn. Hinir sleðarnir tveir, Doddi og jepparnir þrír fóru á Grímsfjall án áfalla. Heldur var þó leiðin austur Grímsfjall ógreiðfær, ósléttir öskuflákar voru á stórum svæðum og sprungur víða opnar. Næstu fjóra daga vann hópurinn að margvíslegum verkefnum. Veður var með eindæmum kyrrt og milt og kom það sér vel því víða var sprungið og mikilvægt að geta fylgt slóðum. Öxlar brotnuðu í einum jeppan- um en Valdi rakari mætti snarlega með nýja öxla og viðgerðarmann og bættist við sem 10. maður leiðang- ursins. Á gosstöðvunum í september. Lón sem byrjaði að myndast vestan gosstöðvanna vorið 1999. Tanginn sem gengur út í lónið á miðri mynd markar vest- urenda gossprungunnar. – Open water melted in the ice shelf after the 1998 eruption. Ljósmynd/Photo. Magnús Tumi Guðmundsson. Unnið var að eftirtöldum verkefnum: 1. Mæld var sumarafkoma á stikum vítt um jökul- inn og teknar niður veðurstöðvar Landsvirkjunar og Raunvísindastofnunar. 2. Fjöldi stika sem komið var fyrir í vorferðinni var mældur með DGPS til að finna skriðhraða jökulsins. 3. Gengið var frá vatnshæðarmæli á Grímsvötnum fyr- ir veturinn. 4. Gígsvæðið var kannað og mælt upp, og breytingar frá í vorferð metnar. 5. Unnið var að uppsetningu og frágangi vegna nýs jarðskjálftamælis á Grímsfjalli. Þann 26. september lagði hópurinn af stað til byggða. Áfallalaust gekk niður Köldukvíslarjökul, út á Sprengisandsleið og til Reykjavíkur. Ferðin var því hin ánægjulegasta. Gert er ráð fyrir að haustferðir verði að föstum lið í starfi félagsins á næstu árum. Þátttakendur Ástvaldur Guðmundsson, Bergur H. Bergsson, Finnur Pálsson, Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Hann- es Haraldsson, Kirsty Langley, Kristinn Pálsson, Magnús Tumi Guðmundsson, Oliver Hilmarsson, Þorsteinn Jónsson. JÖKULL No. 49 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.