Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 8
N ÝR & KRAFTM EIRI Vinsælasti bíllinn á Íslandi hefur nú fengið skarpara útlit, meiri íburð, lengri drægni, meira afl, aukið akstursöryggi og margt fleira. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum *Miðað við fulla hleðslu og fullan tank við bestu aðstæður. Mitsubishi Outlander PHEV er rafdrifinn & svo miklu meira. Fullkominn samleikur raf- og bensínorkunnar skilar þér sönnu akstursfrelsi og háþróaðar tæknilausnir færa þér allt að 600 km heildardrægni* með lágmarkseyðslu allt niður í 2.0 l/100 km (Skv. WLTP viðurkendri mælingu). Virkjaðu það besta úr báðum heimum. Verð frá 4.690.000 KR. Tyrkland Morðið á sádiarabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi var þaulskipulagt og villimannslegt. Þetta sagði Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, í gær. Erdogan krafðist þess jafnframt að upplýst yrði um staðsetningu líkamsleifa Khashoggis og það hver fyrirskipaði aðgerðina. Khashoggi var myrtur á ræðis- skrifstofu Sádi-Araba í Istanbúl í upphafi mánaðar. Sádi-Arabar neit- uðu því í upphafi að vita nokkuð um málið en eftir að rassíur voru gerðar á skrifstofunni og hljóðupp- tökum var lekið til fjölmiðla, þar sem fram kom að Khashoggi hefði verið sundurlimaður, gáfu Sádi- Arabar út yfirlýsingu sem í sagði að blaðamaðurinn hefði látist í slags- málum við á annan tug Sádi-Araba. Adel al-Jubeir, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, sagði á þriðjudag að um mistök hefði verið að ræða og að ríkisstjórnin myndi refsa þeim sem stóðu að verknaðinum. Hins vegar hefur verið greint frá því að Saud al- Qahtani, einn æðsti ráðgjafi krón- prinsins Mohammeds bin Salman, hafi haft umsjón með morðinu í gegnum Skype og stangast skýringar Jubeirs á við þær upplýsingar. En aftur að Erdogan. Forsetinn fór í gær fram á að réttarhöld yfir þeim átján sem handteknir hafa verið í Sádi-Arabíu færu fram í Tyrklandi. Hann væri að auki sannfærður um að Salman konungur myndi sýna samstarfsvilja. Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í gær að morðinu yrði svarað en útskýrði orðin ekki nánar. Bandaríkin eiga gott sam- band við Sádi-Arabíu og hafa átt hundraða milljarða viðskipti með vopn. Ríkisstjórn Donalds Trump forseta hefur verið gagnrýnd fyrir linkind í máli Khashoggis. – þea Erdogan segir morðið á Khashoggi þaulskipulagt Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands. NoRdicphoTos/AFp Fleiri myndir af flóttamanna- lestinni má sjá á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í pdF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +plús Páfagarður Frans páfi hefur boðað suðurameríska biskupa kaþólsku kirkjunnar á kirkjuþing á næsta ári til þess að ræða um þann vanda sem kirkjan stendur frammi fyrir á Ama- zon-svæðinu. Þessu víðfeðma svæði þjóna fáir prestar. Á þinginu stend- ur til að ræða mögulegar lausnir við vandanum og verður meðal annars rætt um að heimila giftum mönn- um, sem sýnt hafa fram á siðvendni sína, að gerast prestar. Páfi hefur áður sagt að skortur á kaþólskum prestum á heimsvísu kalli á endurskoðun þeirrar hefðar að prestar skuli ekki vera giftir. Prestum hefur fækkað undanfarin ár vegna þeirra mörgu kynferðis- ofbeldismála sem hafa skekið kirkj- una á heimsvísu. Til stendur að frumsýna heim- ildarmynd á Ítalíu í vikunni sem fjallar um á annan tug presta í fjórum Evrópuríkjum sem ýmist eru í leynilegri sambúð með konu, hafa skapað ný kirkjusamfélög sem sniðganga skírlífishefðina eða hafa einfaldlega sagt skilið við kaþólsku kirkjuna vegna hefðarinnar. – þea Skoða vígslu giftra presta Frans páfi vill skoða að vígja gifta menn. NoRdicphoTos/AFp Mexíkó Hin svokallaða flóttamanna- lest hélt áfram för sinni í gegnum Mexíkó og í átt að Bandaríkjunum í gær eftir að flóttamennirnir höfðu sofið undir berum himni. Talið er að rúmlega 7.000 flóttamenn frá Mið- Ameríku séu í hópnum. Blaðamaður AP á svæðinu sagði að heyra hefði mátt hóstakór. Flótta- menn væru flestir í slæmu ástandi eftir að hafa sofið illa og lítið úti í kulda og lítið nærst. Margir virtust því hafa sýkst af einhverri kvefpest. „Það er erfitt að ferðast með börn- in. Í dag gengum við í sex tíma áður en við greiddum sendiferðabílstjóra fyrir að taka okkur upp í. Þetta er hættulegt. Það eru engir sjúkrabílar hérna og ef börnin falla í yfirlið gætu þau hreinlega dáið þar sem það er enginn til að annast þau,“ sagði hinn 27 ára fyrrverandi strætisvagna stjóri Marlon Anibal Castellanos, frá San Pedro Sula í Hondúras, við AP. Hann er einn þessara þúsunda flótta- manna og ferðast með konu sinni, níu ára dóttur og sex ára syni. Samkvæmt aðgerðasinna sem aðstoðar flóttamannalestina, var hlé gert í gær til þess að minnast eins úr hópnum sem lést á leiðinni. Enn þarf hópurinn að ganga á annað þúsund kílómetra til þess að komast að landamærum Banda- ríkjanna. Samkvæmt því sem sagði í umfjöllun CBS í gær er óvíst hversu stór hluti fer alla leið. Til að mynda komust einungis 200 af þeim 1.200 sem lögðu af stað í svipaða för fyrr á árinu að landamærum Kaliforníu. thorgnyr@frettabladid.is Þúsundir ganga enn í norðurátt Afar fjölmenn flóttamannalest hélt áfram för sinni til Bandaríkjanna. Kvef hrjáir flóttamennina. Enn er langt í Bandaríkin. Þar ræða Repúblikanar lestina af miklum móð. Demókratar halda sig hins vegar til hlés. Einn flóttamannanna úr hinni afar fjölmennu lest þakkar Mexíkóum innilega fyrir móttökurnar. NoRdicphoTos/AFp Hitamál í Bandaríkjunum Bandarískir Repúblikanar hafa rætt mikið um flóttamannalestina á síðustu dögum, nú þegar um tvær vikur eru í þingkosningar. Samkvæmt umfjöllun Politico frá því í gær kemur lestin sér illa fyrir Demókrata. Í minnisblaði sem gekk á milli þingmanna Demókrata, og The New York Times birti, segir að jafnvel harð- snúnustu stefnumál Repúblikana í innflytjendamálum, til að mynda aðskilnaður fjölskyldna við landa- mærin, hafi lítil áhrif á kjósendur. „Demókratar ættu að forðast að ræða um þessi málefni og einbeita sér þess í stað að málaflokkum á borð við skatta og heilbrigðismál þar sem stefna Demókrata nýtur meiri hylli,“ sagði í minnisblaðinu. 2 4 . o k T ó b e r 2 0 1 8 M I ð V I k u d a g u r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 7 -2 8 5 0 2 1 2 7 -2 7 1 4 2 1 2 7 -2 5 D 8 2 1 2 7 -2 4 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.