Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 18
Gildi – lífeyrissjóður hefur keypt liðlega 1,2 prósenta eignarhlut í Arion banka og fer nú með um 1,8 prósenta hlut í bankanum. Er hlutur lífeyrissjóðsins metinn á ríflega 2,8 milljarða króna miðað við núverandi gengi bréfa bankans. Lífeyrissjóðurinn átti 0,65 pró- senta hlut í Arion banka í kjölfar hlutafjárútboðs bankans í júní síðastliðnum, að því er fram hefur komið í Markaðinum. Sjóðurinn bætti nýverið við hlut sinn og er nú áttundi stærsti hluthafi bankans. Breski vogunarsjóðurinn Attes tor Capital seldi fyrr í mánuðinum hátt í 1,3 prósenta eignarhlut í Arion banka og á nú 7,33 prósenta hlut í bankanum, samkvæmt nýjasta upp- færða hluthafalista hans, dagsettum 16. október. Vogunarsjóðurinn hefur nú selt um 2,1 prósent af hlutafé bankans eftir að bankinn var skráður á hlutabréfamarkað í júní og yfir 5 prósenta hlut frá því í vor. Eins og greint var frá í Markaðinum í síðustu viku hafa sjóðir á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins aukið lítillega við hlut sinn í bankanum í haust en þeir fara nú með samanlagt 1,78 prósenta hlut. Gengi hlutabréfa í Arion banka stóð í 78,7 krónum eftir lokun mark- aða í gær og er tæplega átta prósent- um hærra en útboðsgengi bréfanna þegar bankinn var skráður á markað. Bréfin hafa lækkað um níu prósent í verði undafarinn mánuð. – kij Gildi í hóp stærstu hluthafa Arion Arion banki var skráður á hlutabréfa- markað í júní. FréttAblAðið/Eyþór 9% er lækkun á hlutabréfaverði Arion banka undanfarinn mánuð. 1000% 900% 800% 700% 600% 500% 400% 300% 200% 100% 0% 45% 40% 35% 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Launakostnaður sem hlutfall af tekjumLaunakostnaður sem hlutfall af EBITDA n 2015 n 2016 n 2017 n Fyrri helmingur 2018 n 2015 n 2016 n 2017 n Fyrri helmingur 2018 Ari on ba nk i Eik Re itir Sím inn HB Gr an di Sjó vá* N1 Sk elj un gu r Sý n TM * VÍS * Eim ski p Re gin n Ha ga r Or igo Ice lan da ir Ma relEik Re itir Sím inn HB Gr an di Sjó vá N1 Sk elj un gu r Sý n TM VÍS Eim ski p Re gin n Ha ga r Or igo Ice lan da ir Ma rel *launakostnaður sem hlutfall af hagnaði – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Launakostnaður skráðra félaga hefur almennt vaxið hraðar en tekjur og rekstr-arhagnaður félaganna frá árinu 2015, samkvæmt athugun Markaðarins. Athugunin leiðir í ljós að hlutfall launakostn- aðar af tekjum fimmtán félaga sem skráð eru á aðallista Kauphallar- innar hefur hækkað á undanförnum fjórum árum en á sama tíma hefur launakostnaður tólf skráðra félaga vaxið umfram rekstrarhagnað þeirra. Ari Edwald, forstjóri Mjólkursam- sölunnar, segir að til lengdar geti ekkert atvinnulíf staðið undir við- líka launahækkunum og sést hafa undanfarin ár. Finnur Oddsson, forstjóri Origo, segir að það verði „áframhaldandi verkefni á næstunni“ að leita leiða til hagræðingar. Seðlabanki Íslands tekur fram í nýju riti um fjármálastöðugleika að „óljóst“ sé hversu mikið svigrúm fyrirtæki hafi til hagræðingar til þess að mæta launahækkunum. „Hagnaður fyrirtækja hefur vaxið á síðustu árum en verulega hefur hægt á vextinum og vísbendingar eru um að draga muni úr hagnaði þeirra á árinu. Stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins eru almennt svartsýnni nú en þeir hafa verið undanfarin ár og fleiri en áður búast við því að hagnaður verði minni í ár en í fyrra,“ segir jafnframt í riti Seðlabankans. Launakostnaður í atvinnulífinu hefur hækkað skarpt á undanförn- um árum en samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands námu launahækk- anir 26,8 prósentum frá júlí 2015 til júlí 2018. Á sama tímabili hækkaði raungengi á mælikvarða launa um meira en 50 prósent sem þýðir að launakostnaður á Íslandi hækkaði um meira en 50 prósent umfram launakostnað keppinauta erlendis. Hærri launakostnaður hefur þrýst á verðhækkanir og hafa ýmsir þjónustuliðir, eins og þeir eru skil- greindir af Hagstofunni, hækkað um tugi prósenta í verði á undanförnum þremur árum. Eru það síður vinnu- aflsfrekar atvinnugreinar sem ráða við miklar launahækkanir en sem dæmi hækkaði verð á hótel-, póst- og heimilisþjónustu á bilinu 23 til 27 prósent frá ágúst 2015 til ágúst 2018. ólík launaþróun erlendis Ari segir að frá því í maí 2015 og fram í júlí 2018 hafi vegið meðaltal samningsbundinna launahækkana hjá Mjólkursamsölunni numið yfir 40 prósentum. „Ég held að það þurfi ekki að hafa mörg orð um að ekk- ert atvinnulíf stendur undir slíkri þróun til lengdar. Og það er alveg ljóst að þessi þróun er í engu samræmi við það sem tíðkast í löndunum í kringum okkar,“ nefnir hann og bendir meðal annars á að raungengi krón- unnar hafi hækkað verulega undan- farin ár sem skaði samkeppnisstöðu fyrirtækja. Finnur bendir á að hjá Origo hafi heildarkostnaður vegna launa og tengdra gjalda aukist umtalsvert á undanförnum árum í takti við kjarasamningsbundnar hækkanir og almenna launaþróun. „Eðlilega hefur þessi kostnaðar- auki mikil áhrif á okkar rekstur og hefur afkoma undanfarna fjórðunga verið undir væntingum. Við höfum því leitað leiða til að hagræða í okkar rekstri, meðal annars í launa- kostnaði, og er ljóst að það verður áframhaldandi verkefni okkar á næstunni,“ nefnir Finnur. Ari segir að af fyrirliggjandi kröfu- gerðum verkalýðsfélaganna megi ráða að margir telji næga innistæðu fyrir framhaldi á launaþróun síð- ustu ára. „Það er ekkert launungar- mál að ég tel það af og frá. Það er útilokað. Það verður að staldra við og ná andanum áður en lengra er haldið í einhverjum stórkostlegum breytingum.“ Hann segist binda vonir við að deilendur setjist saman og fari betur yfir þau gögn sem liggja fyrir. „Maður trúir ekki öðru en að kjara- samningar verði byggðir á ein- hverjum forsendum þar sem menn fara yfir tölur og bera saman bækur sínar. Það hlýtur að vera mikið eftir af þeirri vinnu miðað við hvað mikið ber í milli í orðræðunni,“ segir Ari. Hann segir ekki síður mikilvægt við þessar aðstæður – þar sem boginn hafi verið spenntur til hins ítrasta – að stjórnvöld líti til þess hvað þau geti gert til þess að laga starfsumhverfi atvinnulífsins til þess að auðvelda fyrirtækjum að standa undir kostnaðarhækkunum. „Þegar pressan er svona mikil er aldrei mikilvægara að fyrirtæki fái að hagræða og að ekki séu lagðar á atvinnugreinar frekari íþyngjandi byrðar nema brýna nauðsyn beri til. Krónurnar koma úr sama vasa að þessu leytinu til. Kröfur sem auka kostnað í rekstri fyrirtækja, hverju nafni sem þær nefnast, draga úr getu fyrirtækja til þess að standa undir hækkandi launakostnaði.“ hordur@frettabladid.is, kristinningi@frettabladid.is Laun hækkað almennt hraðar en tekjur Launakostnaður fimmtán skráðra félaga hefur vaxið umfram tekjur á síðustu fjórum árum. Forstjóri Origo segir það áframhaldandi verkefni að leita leiða til hagræðingar. Seðlabankinn segir óljóst hve mikið svigrúm fyrirtæki hafa til þess að mæta launahækkunum. Eðlilega hefur þessi kostnaðarauki mikil áhrif á okkar rekstur og hefur afkoma undanfarna fjórðunga verið undir vænting- um. Finnur Oddsson, forstjóri Origo Það verður að staldra við og ná andanum áður en lengra er haldið í einhverjum stórkost- legum breytingum. Ari Edwald, forstjóri Mjólkur- samsölunnar. 27% voru launahækkanir frá júlí 2015 til júlí 2018. 2 4 . o k T ó B E r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r4 mArkAðurinn 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 6 -F 6 F 0 2 1 2 6 -F 5 B 4 2 1 2 6 -F 4 7 8 2 1 2 6 -F 3 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.