Fréttablaðið - 24.10.2018, Side 24
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Kaktusar taka sig vel út hvort sem er í eldhúsglugganum, á stofuhillunni, skrifborð-
inu eða vinnustaðnum. Þeir
þurfa almennt litla umhirðu, sem
mörgum finnst mikill kostur.
Kaktusar þurfa fremur mikla birtu
til að þrífast sem best en þá má
einnig setja á skuggsælan stað yfir
vetrartímann. Þegar þeir eru settir
í birtu á ný þarf að gæta þess að
setja þá ekki beint í sterka sólina
heldur venja þá smám saman við
breytt umhverfi.
Aðeins þarf að vökva kaktusa af
og til, jafnvel eftir minni, og gæta
þess að þeir standi ekki í vatni.
Sumar gerðir af kaktusum þarf
ekki að vökva svo vikum skiptir
og þeir mega þorna vel á milli þess
sem vökvað er.
Langlífar plöntur
Almennt lifa kaktusar lengi og
vaxa fremur hægt. Margar gerðir
blómstra fagurlega og gleðja þá
eigandann með skærlitum
blómum. Oft blómstra kaktusar að
næturlagi. Hæsta kaktustegundin
getur náð allt að nítján metrum
þar sem hún vex í heimkynnum
sínum í Ameríku. Minnsta gerðin
er hins vegar aðeins einn senti-
metri að hæð, fullvaxin.
Dagblöð við umpottun
Þegar blómapotturinn er orðinn of
lítill eða moldin algjörlega næring-
arsnauð þarf að umpotta en það
getur verið á tveggja til þriggja ára
fresti. Best er að umpotta snemma
vors til dæmis í mars eða apríl.
Þegar kemur að því að umpotta
kaktusa þarf að hafa varann á því
margar tegundir hafa afar beittar
nálar sem ekki er gott að stinga sig
á. Í þeim tilfellum er hægt að vefja
nokkrum lögum af dagblöðum
utan um plöntuna til að ná góðu
taki á henni þegar hún er losuð
úr pottinum. Gott er að vera í
þykkum garðhönskum við verkið.
Hafa þarf í huga að kaktusa á
ekki að setja í of stóran pott. Því er
ráð að setja þá í aðeins stærri pott
við hverja umpottun. Kaktusar
þrífast vel í jarðvegi sem er léttur
og blandaður vikri en þannig
kemst vatnið vel að rótunum.
Potturinn þarf að sjálfsögðu að
vera hreinn þegar plantan er sett í
hann. Þegar kaktusinn er kominn
í nýjan pott er gott að gefa honum
vatn eftir um það bil þrjá daga.
Kaktusar til skrauts
Hér setja kaktus-
ar skemmtilegan
svip á stofuna.
MYNDIR/NORDIC
PHOTOS/GETTY
Kaktusar þurfa ekki mikla vökvun og þeir halda oftast lífi
þótt það gleymist að gefa þeim vatn svo vikum skiptir.
Gott er að vefja
dagblöðum utan
um kaktusa við
umpottun til að
stinga sig ekki á
beittum nálum.
Fagurlagaðir
eða óvenjulegir
kaktusar setja
mikinn svip á
umhverfið og
að þeim er mikil
prýði. Kaktusar
eru réttu plönt
urnar fyrir þá
sem ekki hafa
grænar fingur.
FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
fyrir húsfélög og sameignir
Hljóðdempandi, létt í þrifum og umgengni
Stigateppi
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
7
-3
2
3
0
2
1
2
7
-3
0
F
4
2
1
2
7
-2
F
B
8
2
1
2
7
-2
E
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K