Fréttablaðið - 24.10.2018, Síða 56
H luti af dagskrá Ó p e r u d a g a í Reykjavík, sem lýkur 4. nóvem-ber, er flutningur á nýrri kammer-
óperu, Korninu, eftir Birgit Djupe-
dal við texta eftir Ingunni Láru
Kristjánsdóttur sem einnig er leik-
stjóri verksins. Fjórir söngvarar
syngja í óperunni en aðalhlutverkið
er í höndum Heiðdísar Hönnu Sig-
urðardóttur.
Leið á dívum og þernum
„Birgit sagði mér að hún hefði orðið
fyrir áhrifum af The Telephone eftir
Menotti sem er stutt ópera með
hversdagslegri sögu. Hver karakter
hefur sitt stef í óperunni og Birgit er
að vinna með léttleika og gerir grín
að aðstæðum,“ segir Ingunn sem
skrifaði texta óperunnar áður en
Birgit samdi tónlistina. „Birgit sagði
við mig: Ég er orðin leið á dívum
og þernum. Ég vil fá áhugaverðan
kvenkynskarakter sem ræður
sínum málum og sér um sig sjálf.
Þetta fannst mér frábært, þarna var
opið og skemmtilegt tækifæri fyrir
textahöfund. Á þessum tíma var ég
komin inn í íslenskan tónlistarheim
sem getur stundum verið ansi karl-
lægur og var að sækja um endalausa
styrki. Þannig að ég skrifaði verk um
konu sem sækir um styrk og þarf
að hitta bjúrókrata með kaffifíkn
og sannfæra þá um að veita henni
styrkinn. Þetta er verk um konu sem
þarf að ákveða hvort hún eigi að fara
eftir leikreglum þessa ferhyrnda
heims eða ryðja sína eigin braut.“
Heiðdís segir hlutverk sitt í óper-
unni afar skemmtilegt. „Þetta er
alveg nýtt því í óperum er ég vön að
syngja hlutverk þernunnar. Ég tengi
mjög við þessa konu sem er að berj-
ast fyrir sínu og vill gera eitthvað
gott fyrir heiminn en þarf styrk til
að verkið sem hún er að vinna að
geti orðið að raunveruleika.“
Skrifum eigin reglur
Þær stöllur eru spurðar um viðhorf
ungs fólks til óperu. Ingunn, sem
er höfundur óperunnar Bergmáls-
klefans sem flutt var í Tjarnarbíói
fyrr á þessu ári segir: „Það kom mér
sérstaklega á óvart hvað það kom
mikið af ungu fólki á Bergmálsklef-
ann. Sú ópera fjallar um upplifun
nokkurra einstaklinga á Twitter og
ungt fólk tengdi auðveldlega við
það efni. Það þarf að færa óperuna
nær fólki, ég finn að margir vina
minna hafa það viðhorf að óperan
sé fyrir ríka fullorðna fólkið.“
„Ég var að ljúka meistaranámi í
Listaháskólanum sem snerist nokk-
uð um það hvernig hægt væri að ná
til nýrra áheyrenda,“ segir Heiðdís.
„Óperan er ekki hluti af okkar gamla
menningararfi en núna er mikið að
gerast í íslenska óperuheiminum.
Ég held til dæmis að með tilkomu
Ragnheiðar eftir Gunnar Þórðar-
son hafi fólk fengið nýja sýn á þetta
form. Þar var horft til íslenskrar
sögu og sungið á íslensku og um leið
fann fólk fyrir sterkri tengingu.“
„Það að við búum ekki að gamalli
óperuhefð þýðir ekki að við séum
hrædd við að skapa eitthvað spenn-
andi og nýtt í óperuforminu. Við
erum að skrifa okkar eigin reglur,“
segir Ingunn.
Fyrsta sýning á Korninu verður í
Hörpuhorni laugardaginn 27. októ-
ber klukkan 17, á Kjarvalsstöðum
miðvikudaginn 31. október klukkan
12 og í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnu-
daginn 4. nóvember klukkan 14.
Ókeypis er á sýningarnar.
Kona sækir um styrk
Ný kammerópera, Kornið, er hluti af Óperudögum í Reykjavík.
Nauðsynlegt að færa óperuna nær fólki segja aðstandendur.
Heiðdís syngur aðalhlutverkið í Korninu og Ingunn leikstýrir og er jafnframt textahöfundur. FréttabLaðIð/SIgtryggur arI
Ég fiNN að maRgiR
viNa miNNa hafa
það viðhoRf að ÓpeRaN sÉ
fyRiR RíKa fulloRðNa
fÓlKið.
Ingunn Lára Kristjánsdóttir
Lög eftir Atla Heimi Sveinsson við þekkt ljóð Stephans G. Steph-anssonar hljóma á Háskólatón-
leikum í dag, 24. október, sem hefjast
klukkan 12.30. Flytjendur eru Ágúst
Ólafsson barítón og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Atli Heimir samdi flest lögin árið
2012 vestur í Alberta í Kanada. En
eitt þeirra, Við verkalok, er frá árinu
2011. Það hefur verið flutt opinber-
lega áður en hin verða frumflutt á
tónleikunum.
Öll eru lögin tileinkuð hjónunum
Adriana og Stephan V. Benediktson.
Stephan V. er afkomandi Stephans
G. Stephanssonar (1853-1927) sem
oft er kallaður Klettafjallaskáldið.
Hann flutti vestur um haf 1873, þá
að verða tvítugur, vann við járn-
brautarlagningu og skógarhögg en
sneri sér svo að búskap og hafði
lítinn tíma til yrkinga, nema á nótt-
unni, enda nefnist ljóðasafn hans
Andvökur.
Þau Ágúst og Anna Guðný hafa
lokið við að hljóðrita þessi lög, auk
verksins Rammi slagur, einnig við
ljóð Stephans G. Þau verða gefin út á
geisla diski síðar á þessu ári.
Tónleikarnir verða í Hátíðasal í
Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Eng-
inn aðgangseyrir er að þeim og allir
eru velkomnir. – gun
Syngja lög Atla Heimis við ljóð Klettafjallaskáldsins
Þau eru með hádegistónleika í dag,
Ágúst og anna guðný.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
T E M P U R-D A G A R
Nýjar gerðir
og fjölbreytt úrval
heilsukodda
TEMPUR® Hybrid
Hönnuð fyrir sneggra viðbragð
TEMPUR® Original
Hönnuð fyrir meiri stuðning
TEMPUR® Cloud
Hönnuð fyrir meiri mýkt
AÐ SOFA ER EIT T
AÐ HVÍL AST ER ANNAÐ
TEMPUR-DÖGUM
LÝKUR Á FIMMTUDAG
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r20 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
menning
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
7
-2
8
5
0
2
1
2
7
-2
7
1
4
2
1
2
7
-2
5
D
8
2
1
2
7
-2
4
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K