Breiðfirðingur - 01.04.1955, Qupperneq 26
24
BREIÐFIRÐINGUR
Ólafsdal í Dalasýslu og bjuggu þar samfleytt í 44 ár, eða
þar til Torfi lézt 24. júní 1915, 77 ára að aldri.
Eftir lát Torfa hélt Guðlaug áfram búskap í Ólafsdal
og naut þar fyrirvinnu og síðan elliaðstoðar Markúsar sonar
síns og konu hans, frú Benediktu Sigríðar Brandsdóttur.
Frú Guðlaug lézt hér að Ólafsdal 20. maí 1937, 91 árs
að aldri.
Þau Guðlaug og Torfi eignuðust 12 börn, 3 þeirra dóu
í bernsku, en aðeins 3 náðu háum aldri: Ragnheiður, kona
Hjartar Snorrasonar, alþingismanns og skólastjóra að
Hvanneyri, Aslaug, kona Hjálmars Jónssonar bónda að
Ljótsstöðum í Þingeyjarsýslu, og Markús fyrrverandi kaup-
félagsstjóri að Salthólmavík, sem nú er einn á lífi þeirra
systkina.
Þegar þau Guðlaug og Torfi hófu búskap í Ólafsdal,
er talið að þá hafi verið hér 1 dagslátta slétt tún, en þegar
Torfi dó, mun stærð hins slétta túns hér hafa verið 50—
60 dagsláttur. Grjótræsi höfðu verið gerð yfir 11000 m á
lengd og girðingar úr torfi, grjóti og gaddavír allt að 6000
m. Hús voru reist á staðnum yfir fólk, fénað, fóður, verk-
færi og fjölbreyttan heimilisiðnað — stórhýsi, er flest standa
enn í dag.
Þegar Torfi hóf ræktunarstarf sitt sem bóndi í Ölafs-
dal og fór að smíða jarðyrkjuverkfæri eftir erlendri fyrir-
mynd og beita hestaflinu fyrir, vaknaði áhugi ýmissa ungra
manna fyrir að læra af honum sem sjálfkjörnum leiðtoga.
Nokkrir áhugamenn í nærliggjandi sveitum hvöttu Torfa
til að hefjast handa um að kenna ungum mönnum jarðrækt
og búfræði. Árið 1878 skrifar Torfi amtsráði Vesturamts-
ins og býðst til að takast á hendur búfræðikennslu á heimili
sínu, ef hann fái þar til styrk nokkurn af almannafé vegna
stofnunar og starfrækslu. Þetta leiddi til þess, að árið
1880 er komið á fót hér í Ólafsdal fyrsta búnaðarskóla