Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1955, Side 42

Breiðfirðingur - 01.04.1955, Side 42
40 BREIÐFIRÐINGUR þó að eitt og annað kunni að geymast í handritum eftir hann. Nú, þegar Sveinbjörn er horfinn sjónum, finnst mér og vafalaust mörgum, að slitinn sé sterkur þáttur, sem tengdi okkur fortíð. Hjá honum var tíðast að finna týnda þráðinn, þegar reynt var að rifja upp minningar um horfnar kyn- slóðir, atburði og atvik, til gamans og fróðleiks. Auk fræðilegra rannsókna sinna á ýmsum austfirzkum og breiðfirzkum ættum, er Sveinbjörn skráði, hefur hann reist sér bautastein á æskustöðvunum, sem lengi mun geyma nafn hans. Það er Persónusaga Flateyjarhrepps, er hann tók að sér að safna til og skrá fyrir Framfarastofnun Flat- eyjar, í samráði við séra Sigurð Haukdal, þáverandi prest í Flatey.Þetta mikla verk, sem ber vott um elju og atorku og hæfni Sveinbjarnar til ritstarfa, er nú í geymslu bóka- safnsins í Flatey, í handriti, en traustu skinnbandi, er Tryggvi sonur hans hefur gert. Er rit þetta, ásamt mynda- safni, vafalaust sérstakt í sinni röð. Góður drengur er genginn. Hvar sem hann fór fylgdi honum birta og hlýja, og með hverju æviári hans stækkaði vinahópurinn. Hið hreina barnseðli hans óx aldrei frá hon- um. Eins og augu barnsins leita birtunnar, þannig beindi hann alla ævi sjón sinni í leit að björtu hliðum lífsins, og hann fann þær. Jafnvel í skugga andstreymis og sorgar skein honum það ljós, sem hann að leiðarlokum stefndi öruggur að. G. Jóh.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.