Breiðfirðingur - 01.04.1956, Blaðsíða 63
Dagbjört H. Jónsdóttir frá Sellátri
„Þannig lýsi ljós yðvart
fyrir mönnunum.“ Þessi
orð Jesú Krists festust mér
í hug, er ég frétti lát vin-
konu minnar, Dagbjartar
frá Sellátri; þannig fannst
mér hún lifa allt sitt líf,
öðrum til gleði, fyrirmynd-
ar og betrunar.
Frá því ég var 17 ára
til tvítugs vorum við á
sama bæ, Akureyjum í
Helgafellssveit. Eg hjá for-
eldrum mínum, en hún
með manni sínum og fjöl-
skyldu, í tvíbýli við þau.
Eg var ómótaður unglingur, sem þráði meira og fjölbreytt-
ara en það, sem ég sá framundan. Hún skildi mig, þótt ég
segði hvorki henni né öðrum neitt. Það var eins og lýsti
frá návist hennar og allt færði hún til betri vegar, bæði
í orði og verki.
Eftir þessi 3 ár fluttist hún með rnanni sínum og fjöl-
skyldu að Sellátri, fæðingar og æskuheimili sínu. Tók hún
þar við gömlum foreldrum sínum, er brugðu búi, ömmu
sinni og tvíburabróður sínum, er hafði verið veikur frá