Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 78

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 78
Breiðfirðingafélagið Starfsskýrsla 1955 Stjórn félagsins var skipuð þessum mönnum: Árelíus Níelsson, formaður, Jóhannes Olafsson, varaformaður, Alfons Oddsson, gjaldkeri, Ástvaldur Magnússon, ritari, Ólafur Jóhannesson, Bergsveinn Jónsson, Björgúlfur Sigurðsson, Óskar Bjartmarz, Sigríður Húnfjörð, Ásbjörn Jónsson, meðstjórnendur. Stjórnin hefur með sér ýmiss konar verkaskiptingu, sem óþarft er hér að rekja. Einkum eru það eftirlitsmenn með störfum deildanna, sem þurfa að fylgjast vel með. Og nefndir þær, sem stjórnendur starfa í, eru margar yfii; árið, því að margt þarf að athuga, allt frá ráðningu spil-i ara við dans og útvegun verðlauna og lil virðulegra minm ingagjafa við útfarir og helgiathafnir. — Stjórnin hélt 11; fundi á þessu ári og má af því marka, að margt var íhugað og mikið rætt. Félagatalan á árinu hefur að mestu staðið í stað, en þó heldur fækkað, þar sem 6 hafa sagt sig úr félaginu, en að- eins 5 bætzt við. Vildi ég mælast til, að sem flestir, sem áhuga hafa fyrir slíkum félagssamtökum, hvetji fólk til að vera með, einkum fólk, sem nýflutt er að vestan og ungt fólk, sem ættað er frá Breiðafirði.

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.