Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 81

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 81
BREIÐFIRÐINGUR 79 áreiðanlega með tímanum skýrust gögn um persónusögu og minningar margra merkra manna og kvenna, sem annars mundu í gleymsku falla. Bréf og fundarboð voru send öllum félagsmönnum, sem til náðist. I sambandi við það vil ég enn minna á Minningasjóð Breiðfirðinga, sem gengið var frá formlega á þessu ári. Ættu menn vel að hafa í huga að efla hann sem bezt og halda þannig á lofti minningu ágætra Breiðfirðinga. Geta má þess, að þessi sjóður hefur bók, sem færð eru inn í æviatriði allra þeirra, sem minningargjafir hljóta, ásamt mynd af þeim. Þetta mun algjört einsdæmi hérlendis og er hinn bezti vísir að fullkominni ættfræði og persónulegum upplýsingum, sem gætu myndað heilt safn með árum og öldum. Auk þess er sjóðnum ætlað að vinna víðtaÆt og þróttmikið starf til eflingar breiðfirzkri menningu, ef hann getur eflzt til átaka. Enginn einn maður hefur unnið ótrauð- ar að stofnun þessa sjóðs í núverandi stjórn en Olafur Jóhannesson kaupmaður, og flyt ég honum þakkir félags- ins fyrir hugkvæmni hans og dugnað. Breiðfirðingakórinn starfaði af miklum þrótti undir stjórn Gunnars Sigurgeirssonar píanóleikara. Formaður kórsins er nú Ásgeir Ármannsson. Fór kórinn söngför vestur í vor í tilefni 15 ára afmælis síns, og var formaður Breiðfirðingafélagsins fararstjóri ásamt Snæbirni G. Jónssyni. Sungið var í Ólafsvík, Stykkishólmi, Búðardal, Bjarka- lundi og á Kirkjuhóli við góðan orðstír. Einkum hlutu einsöngvararnir, frk. Kristín Einarsdóttir og Gunnar Ein- arsson, mikið lof. Formaður Breiðfirðingafélagsins flutti ávarp á hverjum stað og auk þess messu að Reykhólum. Ennfremur söng kórinn að Hlégarði í Mosfellssveit og

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.