Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 15
JÓN JÚLÍUS SIGURÐSSON:
UNDIR JÖKLI
Um veðrið, útnesveg og fleira.
Laugardaginn 7. júlí 1956 kl. 2.30 lagði 50 manna hóp-
ur af stað í skemmtiferð til Hellissands á vegum Breiðfirð-
ingafélagsins. Flestir voru þetta félagar í Breiðfirðinga-
félaginu, en auk þeirra voru fulltrúar margra annarra
byggðarlaga á landinu, því að þátttakan var öllum heimil.
Jafnvel voru fulltrúar frá „hinum Norðurlöndunum“. Veð-
ur hafði verið fagurt daginn áður, en nú var skýjað loft.
Menn voru þó bjartsýnir og ferðanefndin lýsti afdráttar-
laust yfir, að sólskinið væri innifalið í fargjaldinu. Þó voru
ekki allir öruggir um gott veður, og þess vegna áleit skáld
fararinnar, sem því miður var fengið að láni úr öðrum
landsfjórðungi, að ekki myndi spilla að ávarpa Bárð Snæ-
fellsás hlýlega og virðulega í senn. Skáldið mælti því fram
eftirfarandi vísu:
Brúnin lyftist, bölið dvín,
brosum með öllu fésinu.
Sólin bezt og bjartast skín
á blessuðu Snæfelssnesinu.
En allt kom fyrir ekki .Himinninn var grár, rigningar-
hraglandi öðru hvoru og Jökullinn lét aldrei svo lítið að taka
ofan þokuhattinn. Því var það, að sama skáld orti, þegar
allar spár og loforð höfðu orðið sér til skammar: