Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 67
RREIÐFIRÐINGUR
65
úsdóttur, hve mér fannst til hennar koma um ytra útlit og
skemmtileg og vel hugsuð tilsvör. Mér var það þá ljóst, að
hún býr yfir mikilli fyndni og góðlátlegri glettni, sem góð-
vild hefur þroskað á þann veg, að til skemmtunar einnar er,
þótt biturt vopn gæti verið, ef þannig væri með farið, ekki
sízt þegar djúpstæð greind stendur á bak við, eins og hjá
henni er. Björg hefur hins vegar hagað samskiptum sínum
við samferðamennina þannig, að varfærni og mildi hefur
þar gætt mest, og tryggðar, sem á bjargi er byggð.
Björg Magnúsdóttir hefur átt því láni að fagna að eign-
ast tvö börn, Soffíu og Gest, er erft hafa kosti foreldra
sinna um mannkosti og manngæði. Þau hafa bæði lokið
langskólanámi við góðan orðstý, og hvarvetna notið trausts
og vinsælda allra, er þeim hafa kynnst. Dvelja þau með
foreldrum sínum að Drápuhlíð 41 í Reykjavík, en þar hafa
þau Björg og Magnús átt heimili síðan þau fluttu frá Tún-
garði, og ríkir blær ánægju og snyrtimennsku yfir heimili
þeirra þar, svo sem fyrr var í Túngarði, og er samheldni
fjölskyldunnar sérstök.
Eg enda þessar línur með því að færa Björgu og fjöl-
skyldu hennar innilegar þakkir mínar og minna fyrir vin-
áttuna, ánægjuna og tryggðina, er jafnan hefur verið til
staðar hjá henni, um leið og ég óska þeim allrar blessunar
í framtíðinni.
Héraðinu, sem hún ann heitast, óska ég þess, að hjá því
megi vaxa og starfa sem fyrr sterkir stofnar, er hafa til að
bera svo heilsteypta skaphöfn og annan manndóm, er ein-
kennir þessa sæmdarkonu.
Borgarnesi um áramót 1958.
Halldór E. Sigurðsson.