Breiðfirðingur - 01.04.1958, Qupperneq 69
BREIÐFIRÐINGUR
67
Björn, sem hefur bláa tönn,
bræðir spik á Skarði.
Björn blátönn varð ellidauður á Skarði.
Einar „vinnumaður" í Flatey.
Fyrri hluta 19. aldar var Einar nokkur Einarsson, sem
kallaður var „vinnumaður“, í Flatey á Breiðafirði. Hann
var vinnumaður alla sína ævi, frá því hann var tvítugur,
giftist aldrei og var barnlaus. — Einar var sparsamur og
hagsýnn, og þó að vinnumannskaupið væri ekki hátt í þá
daga, tókst honum þó að verða efnaður maður. — Hann
var lengi í þjónustu Kúld-feðga í Flaey, sem voru þar
mikilsmetnir kaupmenn og göfugir menn, og svo að síð-
ustu hjá síra Olafi Sívertsen prófasti og konu hans frú Jó-
hönnu, sem var dótturdóttir Péturs Kúld kaupmanns. Svo
vænt þótti Einari „vinnumanni“ um Kúlds-fólkið, að hann
vildi gefa því allt eftir sig og láta það njóta efna sinna.
Einar fékk því Guðmund Scheving kaupmann í Flatey,
til þess að semja fyrir sig erfðaskrá, en orðalag hennar
er einkennilegt og ber ótvíræðan vott um svo hlýtt hugar-
þel til húsbænda hans og venzlafólks þeirra, að vert er að
það gleymist ekki. — Ég set hér kafla úr erfðaskránni*)
„Við ráðstöfun á fémunum mínum eftir minn dauða, að
hverjum engir erfingjar eru til, vildi ég einkum hafa fyrir
augum það, sem mér er indælast af ævi minni á að minn-
ast: að tvítugur varð ég vinnumaður hjá sál. kaupmanni
Pétri Kúld, og þar eftir meðan hann lifði, — tók þá son-
ur hans, Eiríkur Kúld, við húi og bestillingu föður síns,
en ég varð kyrr og þjónaði þeim beztu feðgum í samfleytt
) Sbr. Lbs 1770- 4to.