Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 4
4 5. oktober 2018FRÉTTIR Er Góði hirðirinn að breytast í Epal? S varthöfði hefur velt því fyrir sér af hverju Góði hirðirinn er orðin svona dýr búð. Þar er selt rusl. Þarna er til dæm- is verið að selja stól úr hrosshári á 75 þúsund krónur. Le Corbusier er hann kallaður og er víst fínt merki utan úr heimi. Svarthöfði þurfti að klípa sig í upphandlegginn til að athuga hvort hann væri nokkuð að dreyma. Gekk Svarthöfði kannski óvart inn í Epal en ekki nytja- markað Sorpu þennan dag? En jú, Svarthöfði var vel vakandi og enn þá í ruslabúðinni. Harmonika 55 þúsund krónur, prjónavél 12 þúsund, lítið barborð 14 þúsund. Allt með ljótum græn- um verðmiðum sem erfitt er að ná af og meiðir Svarthöfða undir nöglunum. Gamlir He-Man-kall- ar á 650 krónur stykkið. Þeir eru ekki einu sinni með með brynju og sverð. Bara berir að ofan og hálf- rytjulegir greyin. Eins og ávallt mætir Svarthöfði tímanlega og sá að fyrir opnun stóðu tugir fyrir utan búðina og biðu þess að hún yrði opnuð. Þetta hefur Svarthöfði aðeins séð þegar Dunkin’ Donuts var opnað í Austur stræti árið 2015. En jú, líka í sjónvarpinu þegar Kanar berjast um raftæki á svörtum föstudegi. Svarthöfða var svolítið brugðið en lét ekki deigan síga. Svarthöfði fór á stúfana og leit- aði skýringa á þessu. Komst hann að því að bölvuðu góðærinu er um að kenna. Íslendingar kaupa allt nýtt og henda nánast ónotuð- um hlutum beint í tunnuna, sumu enn í verksmiðjuplastinu. Stór- vesírarnir á Sorpu geta því val- ið bestu bitana en sleppt alvöru ruslinu. Veltir Svarthöfði fyrir sér hver næstu skref Góða hirðisins verði. Munu þeir opna netverslun? Aug- lýsa vörur sínar í Sjónvarpinu? Kannski fara í útrás til Köben og Lundúna? Den Gode Hyrde – Des- ign Fabuleux. Þetta er varhugaverð þróun að mati Svarthöfða. Strangheiðarlegt alþýðufólk hefur varla efni á að kaupa rusl lengur. Góði hirðirinn er hins vegar ekki eini nytjamark- aðurinn á höfuðborgarsvæðinu og hefur Svarthöfði í auknum mæli neyðst til að versla við markað ABC Barnahjálpar og Rauða krossinn. Þar er ruslið á mun samkeppn- ishæfara verði og þjónustan fín. Það kæmi Svarthöfða þó hins vegar lítið á óvart ef þessir mark- aðir færu að elta Góða hirðinn og þá er voðinn vís. Hvar verður þá hægt að kaupa rusl? n Svarthöfði Það er staðreynd að… Tungan er sterkasti vöðvinn í líkamanum. Ronald Reagan vann sem lífvörður á háskólaárum sínum. Hann bjargaði 77 mannslífum. Hátt í 97% af vatni jarðar eru ódrykkjarhæf. Georg I, konungur Englands, var í raun þýskur. Gamanleikarinn Row an Atkin son er með meist ara gráðu í raf magns­ verk fræði. „Stór- vesírarnir á Sorpu geta því valið bestu bitana en sleppt alvöru ruslinu Góði hirðirinn Nálgast Epal í verðlagningu. Hver er hún n Hún er fædd 8. febrúar árið 1977. n Hún er tónlistarkona og á ekki langt að sækja hæfileikana. n Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2001 og hefur vakið mikla lukku með hljómsveitunum Steed Lord og Blissfull. n Hún hefur verið búsett í Los Angeles í tæpan áratug. n Hún gerði nýlega samning við útgáfurisann Sony um dreifingu á nýrri plötu. SVAR: SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR M innst einn Íslending- ur hefur fallið í gildru falsfrétta sem kennd- ar eru við Viðskipta- baðið. Um er að ræða síðu sem heiti Heralded News sem lítur út fyrir að vera vefur Viðskipta- blaðsins og birtir þar falskar frétt- ir sem eiga að fá Íslendinga til að skrá sig sem Bitcoin-kaupendur. Fréttirnar, sem eru margvíslegar og hafa fram til þessa innihaldið myndir af þekktum Íslendingum á borð við Björgólf Guðmundsson, Rúnar Frey Gíslason og Jón Ásgeir Jóhannesson ásamt Einari Þor- steinssyni í Kastljósinu. Hefur Ein- ar sagt að hann sé „alveg bit“ að vera notaður á þennan hátt. Þess- um fréttum var svo dreift á Face- book-síður Íslendinga. Íslensk kona um þrítugt, sem vildi alls ekki koma fram undir nafni, segir í samtali við DV að hún hafi fallið í gildruna. Hún hafi ekki haldið að hún yrði jafn rík á einni nóttu og fréttin lofaði en það væru hugsanlega gróðamöguleik- ar þarna á ferð. Eftir að hún lét síð- una fá nafn sitt og símanúmer var hún beðin um að afhenda korta- upplýsingarnar sínar. „Þá leist mér ekki lengur á blikuna, þeir vildu að ég keypti Bitcoin og lofuðu að ég fengi upphæðina margfalt til baka, þá hætti ég við,“ segir konan. Hún var búin að láta aðilana fá símanúmerið og fór hún þá fá ítrekuð símtöl úr erlendu núm- eri. „Ég vaknaði kl. 8 og var þá strax með sex ósvöruð símtöl. Ég vildi ekki svara, ég vildi helst bara gleyma þessu.“ Þóttust ekkert vita Númerið sem var hringt úr er svissneskt og er ekki skráð í síma- skrá í landinu. Þegar blaðamaður DV hringdi í númerið var svarað hjá einhverju sem kallar sig Trade Capital. Sá sem svaraði í símann kannaðist ekki við selja Íslending- um Bitcoin eða aðra rafmynt og vildi ekki ræða samband Trade Capital við Heralded News. Vildi viðkomandi lítið gefa upp hvernig fyrirtæki Trade Capital er, en sagði það vera í Zurich. Átti blaðamað- ur að fá símtal innan skamms frá sölumanni, það símtal kom ekki. Víða er varað við fyrirtæki sem kallar sig Trade Capital, á vef For- ex kemur fram að höfuðstöðvar Trade Capital er hótelherbergi í Genf. Vefsíðan þeirra er svo skráð á Lozareo Group, félag með höf- uðstöðvar í kráarhverfi Edin- borgar, 151 fyrirtæki er skráð í sömu byggingu. Eigandi Trade Capital heitir Zafar Mavlyanov og kemur frá Úsbekistan. Glatað fé Samkvæmt vef ScamChargeBack eru fyrirtæki á borð við Trade Capi- tal ekki raun að selja rafmynt held- ur biðja þau um fjárfestingu og lofa fórnarlömbum sínum háum fjárhæðum síðar. Það fé skilar sér aldrei og fyrirtækin hætta að svara tölvupósti og loka símanúmerinu sínu. Vefsíða Viðskiptabaðsins var virk í gær en nú er búið að breyta hlekknum og fjarlægja allt sem viðkemur Bitcoin og loforðum um ríkidæmi. En síðan hefur sprottið upp á öðrum vefslóðum. Konan varar aðra við að falla í sömu gildru. „Ég var bara að fletta á Facebook og sá íslenska frétt sem lofaði að ég yrði rík. Ég skil ekki hvernig ég gat látið plata mig svona en sem betur fer tapaði ég engu.“ n „Ég sá íslenska frétt sem lofaði að ég yrði rík“ „Ég skil ekki hvernig ég gat látið plata mig svona Ari Brynjólfsson ari@dv.is Íslensk kona féll í „Viðskiptabaðs“-gildruna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.