Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 6
6 5. oktober 2018FRÉTTIR
U
ngmenni í Reykjavík lentu
í undarlegri uppákomu á
miðvikudagskvöld. Mættu
þau breskum manni í
Krambúðinni við Skólavörðustíg
og var hann mjög ölvaður og lét
illilega. Kvöldið endaði með því
að hann gekk sjálfviljugur en óaf-
vitandi inn á lögreglustöðina við
Hlemm með fulla vasa af fíkniefn-
um.
Flaggaði stolnu áfengi og
fíkniefnum
Ungmennin fjögur voru í Krambúð-
inni þegar þau sá ungan og hraust-
legan mann í jakkafötum, reyndist
hann vera breskur. Í samtali við DV
segja þau hann hafa verið mjög ölv-
aðan og reynt að stofna til slags-
mála við íslenskan viðskiptavin
búðarinnar. Hann hafði stolið víni
af hótelinu sem hann gisti á og fór
ekki leynt með það. Ekki frekar en
fíkniefnin sem hann hafði á sér,
bæði gras og hvítt efni í poka.
„Hann byrjaði að tína upp úr
vösunum og setja á bretti þarna
fyrir utan búðina. Hann bauð öllum
sem voru þarna áfengi,“ segir ung-
ur maður.
Maðurinn fór að spjalla við ung-
mennin og bað þau um að skutla
sér niður á BSÍ þar sem hann átti að
taka flugrútuna út á Keflavíkurflug-
völl. Sagðist hann vera hjartalæknir
en við eftirgrennslan kom í ljós að
hann starfar fyrir svissneskt fyrir-
tæki sem framleiðir lækningatæki.
Var hann hér á Íslandi í einn dag til
að kynna vörur á Landspítalanum.
Átti hann flug til Lundúna.
„Þetta er hótelið þitt“
Í bílnum sagði hann að töskunni
sinni, með síma og læknatækjum,
hefði verið stolið en síðan að hann
hlyti að hafa gleymt töskunni á bar.
Bauð hann ungmennunum 500
sterlingspund fyrir að hjálpa hon-
um að leita.
„Okkur fannst þetta mjög lang-
sótt enda var hann blindfullur. Við
sáum á miðanum hans að hann átti
að verða sóttur fyrir framan hótel-
ið sitt, nálægt Hallgrímskirkju, en
hann vildi þá ekki fara út úr bílnum,
jafnvel eftir að rútan hans fór. En
þá bauð hann okkur pening til að
skutla sér út á völl. Þá sögðumst við
ætla að keyra hann á annað hótel.“
Ungmennin keyrðu þá rakleiðis
með manninn á lögreglustöðina
við Hverfisgötu. Einn ungur maður
segir:
„Þegar við keyrðum að stöð-
inni sagði ég við hann: „This is your
hotel“ og síðan fórum við öll út úr
bílnum. Lögreglumaður kom og
talaði við hann. Hann gekk upp að
dyrunum og þá komu sex lögreglu-
menn og handtóku hann.“
Maðurinn var þá enn þá með
fíkniefnin á sér fyrir utan poka af
grasi sem hann skildi eftir í bílnum.
Ungmennin afhentu lögreglunni
pokann og héldu svo sína leið.
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglunni var maðurinn yfirheyrður
og vistaður í fangageymslu.n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
Á
standið er hræðilegt á
vinnustaðnum og það
dettur ekki nokkrum
heimamanni í hug að sækja
um vinnu hjá þessu fyrirtæki. Það
eru örfáir Íslendingar sem starfa í
framleiðslunni og flestir þeirra ætla
að þrauka til áramóta til þess að fá
þrettánda mánuðinn greiddan. Síð-
an munu menn segja upp,“ segir
starfsmaður PCC á Bakka í samtali
við DV.
Fréttir af mikilli ólgu meðal
starfsmanna kísilversins hafa verið
háværar undanfarna viku. Fjallað
var um málið í frétt Fréttablaðsins
í vikunni en þar kom fram að óá-
nægja starfsmanna væri margþætt
og beindist gegn stjórnarháttum
yfir manna, vinnuaðstöðu og launa-
kjörum.
Heppinn að drepa sig ekki
Ekki bætti úr skák þegar fréttir bár-
ust af alvarlegu vinnuslysi þriðju-
daginn 2. október. Starfsmaður
slasaðist alvarlega við vinnu sína
þegar hann fékk í sig skot úr byssu
sem notuð er þegar tappa á bráðn-
um málmi úr ofni verksmiðjunnar.
„Hann var ljónheppinn að drep-
ast ekki. Þetta er skýrt dæmi um þá
óstjórn sem verið hefur í gangi. Það
eru til aðrar leiðir til að tappa af ofn-
inum en þær hafa verið ófærar út af
bilunum sem ekki hefur verið gert
við. Byssan hefur því verið í mun
meiri notkun en eðlilegt getur talist
og það eru byssuskot úti um alla
verksmiðju. Það er bannað að nota
slík tæki í Noregi og það er með
ólíkindum að það sama gildi ekki
hérlendis,“ segir starfsmaðurinn.
Í kjölfar slyssins má segja að
starfsmönnum hafi verið nóg boð-
ið. „Einn reyndur starfsmaður á
annarri vakt neitaði að nota byss-
una nema öryggi starfsmanna væri
tryggt. Það verður vonandi til þess
að að það heyri til undantekninga
að heyra byssuskot á Bakka,“ segir
starfsmaðurinn.
Lág laun fyrir erfiða vinnu
Starfsmannavelta á Bakka hefur
verið afar mikil undanfarið og nýir
starfsmenn eru nánast undantekn-
ingarlaust frá Eystrasaltslöndun-
um. „Það eru allir Íslendingar að
flýja fyrirtækið. Þeir borga algjör
skítlaun fyrir mjög líkamlega erfiða
vaktavinnu. Fyrir fulla vinnu er ég
að fá rúmlega 300 þúsund krónur í
útgreidd laun og ég mun ekki láta
bjóða mér þetta lengur. Ég reikna
með því að segja upp eftir áramót,“
segir starfsmaðurinn. Hann segir
að íslenskir starfsmenn séu afar
óánægðir með þær fyrirhuguðu
breytingar að taka upp eingöngu
tólf tíma vaktakerfi. „Það er fínt fyrir
útlendinga sem koma hingað á eins
konar vertíð. En það er ekki eitt-
hvað sem íslenskir fjölskyldumenn
geta hugsað sér.“
Þá segir hann marga reynda
starfsmenn furðu lostna yfir því
að ekkert sé reynt til þess að halda
í þá. „Fyrirtækið hefur fjárfest
gríðarlega í starfsmönnunum sín-
um. Við höfum setið rándýr nám-
skeið og höfum reynslu sem ég
myndi telja verðmæta. Þess í stað
þá reynir fyrirtækið ekki einu sinni
að halda í starfsmenn sem segja
upp og ráða þess í stað starfsmenn
frá Eystrasaltslöndunum sem ætla
sér bara að starfa í nokkra mánuði.
Það segir sig sjálft að slíkur rekstur
er dauðadæmdur,“ segir starfsmað-
urinn.
Eins og staðan er í dag þá er að-
eins einn ofn, Birta, í rekstri á Bakka.
Illa gekk að koma Birtu í fullan
rekstur, meðal annars kviknaði eld-
ur í verksmiðjunni í júlí, sem tafði
ferlið mjög. Þegar það þó tókst var
næsta verkefni að reyna að koma
hinum ofninum, Boga, í rekstur.
Það ferli hefur verið martraðar-
kennt. „Það eru stöðugar bilanir.
Það er búið að reyna að koma hon-
um að minnsta kosti þrisvar í gang
en það endar alltaf með því að það
brotna í honum rafskaut áður en að
hann er kominn á fullt afl. Þá þarf
að moka hráefninu upp úr ofninum
sem og skautabrotunum. Síðan þarf
að byrja upp á nýtt,“ segir starfs-
maðurinn. Á heimasíðu kísilversins
kemur fram í frétt frá 2. október að
undirbúningsvinnu við gangsetn-
ingu Boga sé lokið og að fyrirtæk-
ið stefni á að ofninn verði kominn
í góðan og stöðugan rekstur á allra
næstu dögum.
„Það er öllu alvarlegra að stjórn-
endur fyrirtækisins skelli algjörlega
skollaeyrum við því að það sé ekki
nægilegur mannskapur til staðar til
þess að manna vaktir ef Bogi kemst
í gang. Það er alveg ljóst að álagið á
starfsfólk er komið yfir þolmörk og
því skil ég ekki hvernig þetta á að
vera gerlegt,“ segir starfsmaðurinn
að lokum.n
„Það eru allir Íslendingar að flýja“
n Lág laun fyrir erfiða vinnu n Umdeild byssa í notkun n Er bönnuð í Noregi
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Breskur sölumaður kom með fíkniefni
í vösunum á lögreglustöðina
n Hélt að um hótel væri að ræða„Hann bauð
öllum
sem voru þarna
áfengi“
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is