Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 8
8 5. oktober 2018FRÉTTIR
F
jölskyldufaðir í Reykjavík
sem er á atvinnuleysisbótum
var sviptur þeim í tvo mánuði
á þeim forsendum að hann
hefði misst af kynningarfundi hjá
Vinnumálastofnun. Þetta er mikið
áfall fyrir hann og fjölskyldu hans
þar sem þetta eru einu tekjurnar
hans.
„Ég þori ekki einu sinni að segja
konunni minni þetta. Þetta er bara
eitthvað svo kjánalegt að ég hrein
lega trúi ekki að þetta geti gerst,“
segir maðurinn. Forsaga málsins
er sú að maðurinn skráði sig á
atvinnuleysisbætur og fékk boð
um að mæta á sérstakan kynn
ingarfund hjá Vinnumálastofn
un. Þar sem fjárhagur hans var
ekki sterkur eftir að hann missti
vinnuna sína þurfti hann að taka
strætisvagn því ekki voru til fjár
munir fyrir bensíni á bíl hans.
Þegar kom að því að taka vagn
inn þá gerði hann þau mistök að
taka rangan vagn. „Ég áttaði mig á
þessu allt of seint, en um leið og ég
gerði það þá hringdi ég strax niður
í Vinnumálastofnun til að láta vita
af þessu.“
Skýringar mannsins skiptu
augljóslega engu máli fyrir Vinnu
málastofnun því hún ákvað vegna
þess að hann missti af þessum
eina fundi að taka af honum rétt til
atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, en
það þýðir um rúmar 320 þúsund
krónur í tekjumissi fyrir hann.
Maðurinn, sem vill ekki koma
undir nafni, sagði í samtali við DV
að hann skildi ekki þessa gífur
legu hörku sem stofnunin beitti
hann vegna fjarveru hans á einum
fundi. „Það vildi enginn tala við
mig í síma og útskýra fyrir mér af
hverju þau gerðu þetta nákvæm
lega, sögðu mér aðeins að senda
þeim tölvupóst.“
Honum finnst afar ómann
eskjulegt hvernig er farið að í
þessu ferli. „Ég skil ekki þessi við
brögð. Ég hafði allan tímann ætl
að mér að taka þátt í öllum þeim
úrræðum sem Vinnumálastofnun
ætlaði að bjóða upp á, ég er ekki
að reyna svindla á neinum hérna.“
Í samtali við DV sagði Unnur
Sverrisdóttir, aðstoðarforstjóri
Vinnumálastofnunar, að lögin ein
faldlega væru þannig að Vinnu
málastofnun yrði að gera þetta.
Samkvæmt 58. grein laga um at
vinnuleysistryggingar kemur fram
að hafni einstaklingur þátttöku í
vinnumarkaðsaðgerðum Vinnu
málastofnunar skuli hann ekki
eiga rétt á atvinnuleysisbótum í tvo
mánuði. Túlkar Vinnumálastofn
un þessa lagagrein svo að mæti fólk
ekki á kynningarfund hjá stofn
uninni sé það að hafna þátttöku í
vinnumarkaðsaðgerðum. Í þessu
tilfelli ákvað Vinnumálastofnun að
svipta einstaklinginn bótum í tvo
mánuði og hefur hann því engar
tekjur þann tíma fyrir sig og fjöl
skyldu sína. Engar formlegar regl
ur eru til hjá Vinnumálastofnun
um hvaða ástæður séu teknar gild
ar. Blaðamaður spurði Unni hvort
það væri geðþóttaákvörðun Vinnu
málastofnunar hvaða ástæða sé
tekin gild fyrir að missa af kynn
ingarfundi og ekki missa bætur á
sama tíma. „Nákvæmlega, það er
það sem við gerum alla daga. Það
eru bara mjög mismunandi útskýr
ingar og oft eru þær teknar gildar.“
Ekki á neinum stað á heimasíðu
Vinnumálastofnunar er tekið fram
hvað telst vera löggild ástæða fyrir
því að missa af fundi, svo fólk getur
ekki vitað hvort það missi bótarétt
sinn í tvo mánuði ef það missir af
einum kynningarfundi. n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Lítt þekkt
ættartengsl
Saklaus
sakborningur
og athafna-
maðurinn
Á
dögunum féllu langþráð
ir sýknudómar í Guð
mundar og Geirfinns
málunum, sem flestir
eru sammála um að sé svartur
blettur á íslenskri réttarsögu.
Einn af þeim sem voru sýknaðir
var Tryggvi Rúnar Leifsson sem
hlaut á sínum 13 ára fangelsis
dóm fyrir að hafa banað Guð
mundi Einarssyni í janúar 1974.
Tryggvi Rúnar lést árið 2009
og gat því ekki fagnað með ást
vinum sínum þegar mannorð
hans var hreinsað. Einn af þeim
sem sátu í réttarsalnum var al
bróðir hans, Hilmar Þór Leifs
son athafnamaður. Hilmar,
sem fer oftast að lögum, hefur
stundum ratað
á síður fjöl
miðla fyrir
ýmiss kon
ar uppá
komur, sér
staklega
átök á al
mannafæri.
„Það vildi enginn
tala við mig í síma
og útskýra fyrir mér af
hverju þau gerðu þetta
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
Fjölskyldufaðir tók
rangan strætó í Kringluna
320 þúsundum krónum fátækari