Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Page 25
KYNNING
Borgartúni 23 Reykjavík / Sími 5611300 / www.reykjavikurblom.is
Opnunartími: mánudaga–föstudaga 10–18 & laugardaga 11–18 / Heimsendingarþjónusta
Við tökum vel á móti þér
og útfærum skreytingar eftir
þínum persónulegu óskum
skírn / ferming / afmæli
brúðkaup / útfarir
blóm og
gjafavara við
öll tækifæri
Þvottahúsum hefur ekki fjölgað hér undanfar-in ár en á sama tíma
hefur verkefnum fjölgað mjög
mikið vegna aukinna umsvifa
í ferðageiranum. Það eru
því mikil tækifæri í þessari
starfsgrein fyrir þá sem eru
tilbúnir að leggja mikið á
sig og veita góða þjónustu,“
segir Guðmar V. Kjartansson,
eigandi Þvottakompanísins.
Guðmar tók við rekstrinum
fyrir rúmlega þremur árum
og hafa umsvifin aukist jafnt
og þétt síðan þá.
„Ég hef verið að endurnýja
tækjakostinn og tók fyrr á ár-
inu inn vél sem tekur tæpleg
60 kíló af þvotti í einu, en til
samanburðar tekur venjuleg
heimilisvél 5–7 kíló. Fyrir eru
þrjár þvottavélar og tvær
strauvélar,“ segir Guðmar.
Þvottakompaníið er fyrst
og fremst á fyrirtækja-
markaði þó að það neiti ekki
einstaklingum um þvotta-
þjónustu. „Um helmingur af
verkefnunum er fastir þjón-
ustusamningar þar sem við
veitum heildarlausn. Þetta
eru mikið veitingastaðir og
hótel og í mörgum tilvikum
sjáum við þessum aðilum fyrir
líni, handklæðum, tuskum og
þess háttar – afföll geta verið
töluverð og því sjá aðilar oft
sér vænstan kost í að leigja
lín og þurfa þannig ekki að
hafa yfirsýn með birgðahaldi.
Við sjáum yfirleitt um að
sækja og senda og viðskipta-
vinirnir þurfa ekki að standa í
því að senda til okkar óhreint
tau og þess háttar,“ segir
Guðmar.
Guðmar segir að sumir
viðskiptavinir hans í hótel-
og veitingageiranum þurfi
daglega þjónustu allt árið um
kring en algengt sé að sinna
þurfi verkefnum þrisvar í viku
fyrir hvern aðila.
„Ég hef líka verið að þjón-
usta verktaka með kuldagalla
og önnur vinnuföt. Verktakar
hafa oft ekki fasta starfsstöð
og þá hefur þeim fundist
gott koma með uppsafnaðan
þvott beint til mín.“
Starfsmenn
Þvottakompanísins eru fjórir
að Guðmari meðtöldum.
„Ég geng í öll verk. Ef maður
ætlar að reka þvottahús þá
þýðir lítið að vera í einhverjum
skjalatöskuleik, maður verður
að vera í þessu af lífi og sál.“
Guðmar segir að töluvert
sé að gera allt árið um kring
en verkefnin tvöfaldist síðan
á sumrin. Einnig fjölgar þeim
mikið í kringum hátíðir. „Það
er ljóst að við þurfum að
fjölga fólki í framtíðinni og
umsvifin eru bara að aukast,“
segir Guðmar.
Nánari upplýsingar um
starfsemi Þvottakompanísins
er að finna á heimasíðunni
thvottahus.is. Þar er einnig
hægt að senda inn fyrir-
spurnir og panta þjónustu.
ÞVOTTAKOMPANÍIÐ:
Þvottahús
á uppleið