Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 37
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Veitingastaðurinn Fish House hefur fengið létta yfirhalningu en staðurinn er uppspretta
margra góðra minninga í hugum
íbúa Grindavíkur og jafnvel annarra
Suðurnesjamanna. Staðurinn hefur
hænt að sér tónlistarfólk landsins og
er geysivinsæll meðal músíkanta og
tónlistarunnenda. Kári Guðmundsson
er á þriðja ári í rekstri staðarins og
hafa viðskiptin gengið eins og í sögu.
Hreindýraborgarinn hans Kára hefur
notið sérlega mikilla vinsælda undan-
farin ár og margir hafa beðið spenntir
eftir komu hans og hefur ávallt verið
ágætis gestagangur hjá Kára og fé-
lögum, ekki síst í desember.
„Okkur hefur gengið mjög vel. Við
höfum lagt okkur mikið fram og fengið
góð ummæli. Það hefur verið aukning
hægt og bítandi alveg síðan við tókum
við,“ segir Kári og bendir á Villibráða-
kvöldið mikla en þetta er í annað árið
í röð þar sem slíkur matseðill verður
lagður fram.
Kári segir að svo vel hafi gengið
og umfangið svo mikið að nú standi
til að hafa villibráðakvöldin tvö þetta
árið og verða þau haldin dagana 16.
og 17. nóvember. Kári segir matseð-
ilinn ekki vera af verri endanum og
lofar huggulegri stemningu í sal sem
tekur hátt í sextíu manns. „Við verðum
með gæs, reykta og grafna, ásamt
bleikjutartar og rjúpusúpu. Einnig
verðum við með hreindýr, kryddað
lambafille og ýmislegt fleira ásamt
fordrykk.“
Kári segir margt á boðstólum vera
það sem hann hafi sjálfur veitt enda
er hann mikill veiðimaður og telur villi-
bráð vera mat í hágæðaflokki. „Þetta
villibráðakvöld gekk svo vel í fyrra að
mér fannst sniðug hugmynd að gera
þetta aftur og aðeins betur. Þetta
árið verðum við með lifandi tónlist og
mun trúbador spila langt fram eftir
kvöldi. Þetta verður meira spennandi
en í fyrra og meira sniðið fyrir hvern
og einn í raun og veru,“ segir Kári.
„Í fyrra fékk ég til mín gesti alla leið
úr Kópavoginum og þeir töluðu um að
svona villibráðakvöld væru á undan-
haldi. Þar af leiðandi ákvað ég að
bæta við öðru kvöldi og sjá hvort því
yrði ekki vel tekið.“
Þá nefnir Kári að eftirsótti hrein-
dýrahamborgarinn verði borinn fram
á fjörugum föstudegi, sem verður
30. nóvember. „Það hefur verið mikil
hefð á þeim degi að veitingastaðirnir
hérna við Hafnargötuna geri eitthvað
skemmtilegt,“ segir Kári. „Þetta er
þriðja árið sem við berum fram þessa
hamborgara og það má segja að þeir
hafi slegið í gegn hjá okkur.“
Gómsæt villibráð í Grindavík