Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Qupperneq 43
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
JÓLAHLAÐBORÐ LÆKJARBREKKU:
Stórveisla á vingjarnlegu
verði
Jólahlaðborðin eru sérpönt-uð og eru haldin í sölunum okkar, Kornhlöðunni og Litlu
Brekku. Kornhlaðan tekur 100 manns
í sæti en Litla Brekka 60. Salirnir eru
samliggjandi og því er hægt að taka
báða í einu og halda samkvæmi fyrir
160 manns í sæti,“ segir Ívar Þórðar-
son hjá Lækjarbrekku en jólahlaðborð
staðarins er ávallt vinsælt hjá fyrir-
tækjum og hópum.
Til staðar er góð aðstaða fyrir
veislustjórn, ræður og skemmtiatriði,
en þarna er hljóðkerfi og skjávarpi. Þá
spillir ekki fyrir að nýbúið er að gera
upp báða salina og eru þeir mjög
huggulegir og aðstaða öll hin besta.
„Við erum sjaldan með sértilboð á
jólahlaðborðið en erum þess frekar
með vingjarnlegt verð á þessu sem
hefur ekki hækkað í þrjú ár,“ segir Ívar
en hlaðborðið kostar aðeins 8.900 kr.
á manninn.
Úrvalið er glæsilegt og girnilegt.
Gæsasúpa er í forrétt og af köldum
réttum má nefna krækiberjasíld,
brennivínssíld, graflax og sítrusmar-
inerað sjávarsalat. Meðal kjötrétta
í forrétt eru hangikjöt með uppstúf,
drottningaskinka með heilkorna
sinnepsósu, gæsa- og andarsalat og
hreindýrapaté.
Í aðalrétt eru kryddjurtamariner-
að lambalæri, purusteik, léttreykt
kjúklingabringa og hreindýrabollur.
Sykurbrúnaðar kartöflur, sætkartöfl-
umús, kartöflusalat, rósakálssalat og
eplasalat eru í meðlæti ásamt mörgu
fleiru. Meðal eftirrétta eru Ris A La
Mande, brúnkökur með saltkaramellu,
turkish pepper pavlova, súkkulaði-
mús, kókoskúlur og fleira.
Gott er að panta jólahlaðborð í
síma 551-4430. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir á netfangið info@
laerkjarbrekka.is sem er svarað greið-
lega. Er þá hægt að fá kostnaðinn
skriflegan og allar fleiri mikilvægar
upplýsingar.