Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Qupperneq 64
64 5. oktober 2018
S
ú var tíðin að klám var ekki
jafn aðgengilegt og nú er
raunin. Viðskipti með slíkt,
hvort heldur kaup eða
sala, var heimulleg aðgerð en afar
ábatasöm fyrir þann sem seldi.
Á sjötta áratug síðustu aldar
blómstraði næturlíf og vændi í
Soho-hverfi á West End í London.
Upp úr styrjaldarlokum óx þar við-
skiptum með klámkvikmyndir og
-blöð fiskur um hrygg og var þar
helst um að ræða innflutning frá
Frakklandi, Þýskalandi og Svíþjóð.
Úrval í bakherbergjum
Árið 1956 hafði eftirspurn eftir
klámi aukist mikið og Soho varð
óumdeilanlega miðstöð klámvið-
skipta á Englandi. Reyndar var
ólöglegt að höndla með klám-
fengið efni en margir bóksalar
höfðu gott úrval „undir afgreiðslu-
borðinu“ eða í bakherbergjum.
Yfirvöldum var vel kunnugt um
stöðu mála en svo fremi að klám
var ekki selt fyrir opnum tjöldum
eða innihélt börn horfði Scotland
Yard í gegnum fingur sér hvað það
varðaði.
Spennt kanadísk áhöfn
Víkur nú sögunni til 25. október
1956. Daginn þann lagðist að Til-
bury-bryggju í London kanadíska
herskipið Iroquois. Áhöfnin var
spennt, enda höfðu margir aldrei
komið til London áður, og sá fram
á fjóra daga í borginni.
Sumir áttu reyndar ættingja
sem þeir hugðust heimsækja en í
hugum flestra var fyrst og fremst
um að ræða tækifæri til að baða
sig í borgarljósunum.
Haltur yfirsjóliði
Í áhöfninni var yfirsjóliði að nafni
Richard Henley, 26 ára Kanadamað-
ur sem hafði gengið í konunglega
kanadíska sjóherinn undir lok síðari
heimsstyrjaldarinnar, þá 15 ára.
Tveimur árum síðar slasað-
ist hann og var haltur þaðan í frá.
Hvað sem því leið þá var hann
glaðvær en kannski eilítið hlé-
drægur. Eins og skipsfélagar hans
hlakkaði hann mikið til að kom-
ast frá borði og vissi nákvæmlega
hvað hann vildi sjá í London.
Á höttum eftir klámi
Þannig var mál með vexti að
Henley hafði mikinn áhuga á
klámi. Á ferðum sínum um heims-
ins höf hafði hann viðað að sér
efni þar sem því var við kom-
ið og átti þegar þarna var komið
sögu þokkalega stórt safn bóka og
tímarita af þessum toga. En hann
var spenntur að sjá hvað væri í
boði í London.
Henley rauk þó ekki beint
í Soho. Hann rataði ekki um
borgina og fór því fyrst á nokkra
bari í Piccadilly. Þar aflaði hann
sér upplýsinga um hvert skyldi
halda; Dean Street í Soho.
Ekkert klám í gluggum
Að þeim upplýsingum fengnum
beið yfirsjóliðinn ekki boðanna og
var eftirvænting hans nánast yfir-
þyrmandi þegar hann nálgaðist
bókaverslun James.
Innan glugganna var stillt upp
bókum frá öllum heimshornum um
nánast hvað sem er. Henley þekkti
ekki til laga á Englandi um höndl-
un með klám og varð fyrir miklum
vonbrigðum að sjá ekki svo mik-
ið sem eitt klámblað í glugganum.
Hann ákvað engu að síður að leggja
ekki árar í bát og kíkja inn fyrir.
Fræðandi bókmenntir
Handan afgreiðsluborðsins stóð
John Robinson, 36 ára og ágætlega
sjóaður á sínu sviði. Hann lét sér
ekki bregða þegar Henley reyndi
að útskýra eftir hverju hann væri
að slægjast.
Fyrst sagðist Henley vera á
höttunum eftir „fræðandi“ bók-
menntum, síðan einhverju sem
tengdist heilsu og nekt og að lok-
um einhverju erótísku.
Nú, þegar það var komið á
hreint benti Robinson sjóliðan-
um að koma inn í bakherbergi.
Henley fannst hann himin hönd-
um hafa tekið, þvílíkt var úrvalið
af myndefni sem spannaði allt frá
nekt til grófs kláms með kvenfólki
frá 16 ára til miðaldra.
Skot í kviðinn
En þrátt fyrir allt þá vildi Henley
frekar klámkvikmyndir og tók
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
n Henley glímdi við veikleika n Klám var hans ær og kýr n Fór vopnaður skammbyssu í verslunarleiðangur
„Fyrst sagð-
ist Henley
vera á höttunum
eftir „fræðandi“
bókmenntum
Bakherbergið Henley taldi sig hafa
komist í feitt er hann sá úrvalið.
„Ég hafði byss-
una með mér til að
verða mér úti um klámið
með hótunum“
29. nóvember var Bandaríkjamaðurinn James Kraig Kahler
handtekinn. Deginum áður hafði
hann myrt brottflutta eiginkonu
sína, Karen, dætur þeirra tvær,
og ömmu Karenar. James skaut
þær allar til bana eftir að Karen
sótti um skilnað og tók saman við
aðra konu. James var dæmdur til
dauða 11. október 2011.
SAKAMÁL
KLÁMFÍKN KOSTAÐI MANNSLÍF