Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 65
SAKAMÁL 655. oktober 2018
Robinson hann þá í annað her
bergi. Henley gat engan veg
inn gert upp við sig hvað hann
ætti að kaupa og tók í skyndi þá
ákvörðun að láta greipar sópa,
greiða ekkert fyrir og hafa sig á
brott með hraði.
Henley dró upp þjónustu
skammbyssu sína og fyrr en varði
var hann búinn að skjóta einu
skoti. Skotið hæfði Robinson í
kviðinn og hneig hann veinandi af
kvölum og angist niður á gólfið.
Tómhentur af vettvangi
Leiða má líkur að því að þetta hafi
ekki verið ætlun Henley því hann
yfirgaf bókaverslunina í ofboði og
tómhentur í þokkabót. Síðan ruddi
hann sér leið í gegnum gangandi
vegfarendur og lét sig hverfa.
Nokkrum mínútum síðar kom
ungt par í bókabúðina. Engan var
að sjá við afgreiðsluborðið og fór
maðurinn inn fyrir og kannaði
málið.
Innan fimm mínútna var lög
regluþjónn kominn á staðinn og
korteri síðar voru rannsóknarlög
reglumenn frá Scotland Yard byrj
aðir að fínkemba vettvanginn í
von um að finna vísbendingar í
þessu morðmáli. Robinson hafði
dáið í sjúkrabílnum á leið á spít
ala.
Sjóliði í uppnámi
Henley komst óséður um borð í
Iroquois og laumaðist til híbýla
sinna. Á vettvangi ræddi lögreglan
við vitni og nokkur þeirra áttu það
sammerkt að hafa séð haltrandi
sjóliða með gleraugu og virtist sá í
miklu uppnámi.
Lögreglan hafði samband við
öll herskip breska flotans sem
bundin voru við bryggju í London
og nágrenni – um borð í þeim var
allt með kyrrum kjörum og vitað
um ferðir áhafna.
Játning undir fjögur augu
Iroquois var eina erlenda herskip
ið í London og klukkan ellefu að
kvöldi laugardagsins 27. október
höfðu rannsóknarlögreglumenn
samband við skipstjóra þess.
Skipstjórinn lét þegar fram
kvæma nafnakall og varð undr
andi þegar í ljós kom að Henley
var um borð, enda taldi hann að
ungu sjóliðarnir hefðu allir farið
frá borði.
Að nafnakalli loknu óskaði
Henley eftir því að tala við skip
stjórann undir fjögur augu. Viður
kenndi hann að hafa skotið Robin
son og brotnaði niður þegar
honum var sagt að Robinson hefði
dáið. Í öngum sínum bætti hann
við að hann vildi að hann sjálfur
væri dauður.
Fylltist ofsahræðslu
Ef lögreglan átti von á harðsvíruð
um glæpamanni þegar hún yfir
heyrði Henley daginn eftir þá var
engu slíku til að dreifa. „Ég á við
vandamál að stríða og það er or
sök þessa alls. Ég ákvað að þegar
ég kæmi til London myndi ég
verða mér úti um klám með því að
ræna búð. Ég hafði byssuna með
mér til að verða mér úti um klámið
með hótunum,“ sagði Henley.
Henley sagði enn fremur að
honum hafi virst sem Robinson
ætlaði að ráðast á hann: „Ég fylltist
ofsahræðslu og tók í gikkinn. […]
Það gerðist ósjálfrátt.“
Heimild til dauðarefsinga
Þann 8. nóvember var úrskurðað
að Henley skyldi sæta varðhaldi
þar til hann kæmi fyrir dóm í des
ember. Henley var í slæmum mál
um því hann hafði viðurkennt að
hafa skotið Robinson til bana við
ránstilraun.
Neðri deild breska þingsins
hafði, meðan Henley var á bak við
lás og slá, sett lög um morð sem
fólu í sér heimild til dauðarefsinga.
Engu að síður játaði Henley sig
sekan frammi fyrir dómara í Old
Bailey þann 5. desember og hafði
dómarinn ekki fyrir því að upplýsa
Henley um mögulegar afleiðingar
þess.
Fyrirmyndarfangi
Á bak við tjöldin hafði verjandi
Henley verið upplýstur af innan
ríkisráðuneytinu um að engar
hengingar yrðu framkvæmdar fyrr
en áður nefnd lög tækju gildi, sem
yrði ekki fyrr en eftir þrjá mánuði.
Vegna þessara þriggja mánaða
sluppu 42 dæmdir morðingjar,
Henley þar á meðal, með skrekk
inn.
Þegar vika var til jóla fékk
Henley að vita að hann slyppi við
hengingarólina. Hann varð fyrir
myndarfangi og í desember 1964
gat hann um frjálst höfuð strokið
eftir átta ár í fangelsi og sneri heim
til Kanada.
Þannig fór um sjóferð þá. n
ALLT FYRIR
SULTUGERÐ
FRÁ FLÓRU
n Henley glímdi við veikleika n Klám var hans ær og kýr n Fór vopnaður skammbyssu í verslunarleiðangur
Skotinn í kviðinn John
Robinson varð ekki lífs auðið.
Bókaverslun James Áfangastaður Richards
Henley við Dean Street í London.
20. desember, 2010, var íranska konan Mahin Qadiri
hengd fyrir að hafa myrt fimm
konur. Fórnarlömb Mahin Qadiri
voru miðaldra konur og fyrsta
morðið framdi hún í febrúar
2008 og hið síðasta í maí 2009.
Mahin barði konurnar með járn-
stöng svo þær misstu meðvit-
und og síðan kyrkti hún þær.
KLÁMFÍKN KOSTAÐI MANNSLÍF