Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Page 70
70 FÓLK 5. oktober 2018
Sigríður Beinteinsdóttir
og Birna María Björnsdóttir
Tólf ára aldursmunur er á tón-
listarkonunni góðkunnu og
sambýliskonu hennar,
Birnu Maríu. Parið
eignaðist tvíbura, son
og dóttur, fyrir tæpum
átta árum og hefur
Sigríður látið hafa eftir
sér að eðlilegra væri
að hún væri amma
barna sinna en
móðir.
ELDRI KONUR MEÐ YNGRI MÖKUM
Guðrún Gunnarsdóttir
og Hannes Friðbjarnarson
Það er eitthvað með tónlistarfólk
og þessi töfrandi tólf ár. Það er
einmitt aldursmunurinn á söng-
og fjölmiðlakonunni Guðrúnu
Gunnarsdóttur og Hannesi Frið-
bjarnarsyni tónlistarmanni. Þau
skötuhjúin hafa verið saman um
árabil og geisla af hamingju.
Um síðustu helgi vakti frétt um nýjan kærasta tón-
listarkonununnar Svölu Björgvins mikla athygli.
Sá lukkulegi heitir Guðmundur Gauti Sigurðarson,
alltaf kallaður Gauti. Ástæðan fyrir áhuga lesenda
var ekki síst sú staðreynd að 18 ára aldursmunur er á
parinu. DV tók því saman fleiri dæmi um glæsilegar
valkyrjur sem hafa valið sér yngri maka.
12
ár
4
ár
Svava Johansen
og Björn K. Sveinbjörnsson
Eitt glæsilegasta par landsins er hjónin Svava
Johansen, gjarnan kennd við Sautján, og Björn K.
Sveinbjörnsson. Saman reka þau NTC og tengdar
verslanir. Þau hafa verið saman síðan 2005 en
Svava er fjórum árum eldri en Björn.
Ágústa Johnson
og Guðlaugur Þór
Það vakti mikla athygli árið 1999 þegar
líkamsræktarfrömuðurinn Ágústa
Johnson og borgarfulltrúinn Guðlaugur
Þór Þórðarson fóru að stinga saman
nefjum. Það er einkenni góðs sam-
bands að báðir aðilar blómstri og það
gildir svo sannarlega um þau hjónin.
Guðlaugur Þór er utanríkisráðherra
þjóðarinnar og heilsutengd
viðskipti Ágústu
mala gull.
María Björk Sverrisdóttir og Örn Sævar
Hilmarsson
Fjórtán ára aldursmunur er á tónlistarkonunni
Maríu Björk Sverrisdóttur og manni hennar,
athafnamanninum Erni Sævari Hilmarssyni.
María Björk er þekktustu fyrir samnefndan
söngskóla sinn, sem hún hefur rekið í aldarfjórð-
ung, og útgáfu hins geysivinsæla barnaefnis
Söngvaborgar, í samstarfi við Siggu Beinteins.
Þá var hún umboðsmaður söngkonunnar Jó-
hönnu Bjargar auk þess sem hún hefur gert það
gott með framlagi sínu í Eurovision-keppninni.
18
ár
4
ár
12
ár
14
ár