Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 42
42 FÓLK - VIÐTAL 14. sept 2018
Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur: Miðstræti 7, Reykjavík
Lilja Sigurlína er yngsta dóttir Pálma Jónssonar, sem stofnaði Hagkaup
árið 1959 og lést árið 1991. Arfurinn var drjúgur og hafa systkinin fjár-
fest í Högum og öðrum félögum. Til að mynda átti Lilja 0,33 prósenta
hlut í Högum árið 2016.
Árið 2001 gekk Lilja að eiga leikarann Baltasar Kormák Baltasarsson
en hann hefur síðan haslað sér völl sem leikstjóri, bæði á Íslandi og í
Hollywood. Meðal þeirra kvikmynda og þáttaraða sem hann hefur
stýrt eru Hafið, Mýrin, Contraband og Ófærð. Myndirnar hafa verið
vinsælar og þær amerísku skilað milljörðum í kassann.
Árið 2013 voru eignir Lilju og Baltasars metnar á þrjá milljarða króna.
Hjónin hafa lengi búið í gömlu og glæsilegu bárujárnshúsi við Mið-
stræti í miðbæ Reykjavíkur. Þau eru einnig ábúendur á Hofi í Skaga-
firði, sem er nýmóðins glæsihýsi sem hefur verið verðlaunað af er-
lendum arkitektasamtökum.
Pálmi, faðir Lilju, var frá þorpinu Hofsósi og var hún Lilja á meðal
þeirra sem gáfu staðnum nýstárlega sundlaug sem hefur eflt komu
ferðamanna þangað.
Plastlaus september
Prófaðu umhverfisvæna ruslapokann
SEGÐU NEI VIÐ PLASTI
• Brotnar niður á nokkrum vikum
• Umhverfisvænn
• Slitsterkur
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK
Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhann-
esson: Sóleyjargata 11, Reykjavík
Kaupsýslukonan Ingibjörg Pálmadóttir á sterkar ræt-
ur í miðbæ Reykjavíkur en hún er þekkt fyrir að-
komu sína að vörumerkinu 101, þar á meðal 101
Hótel. Hún er hönnuður að mennt og hefur verið
eiginmanni sínum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
innan handar þegar kemur að kaupum á eignum
í tísku- og fataheiminum.
Þau hjónin voru mjög áberandi í íslensku viðskipta-
lífi fyrir hrun og segja má að góðærið hafi náð hámarki
sínu þegar þau létu pússa sig saman árið 2007, kallaði Séð og Heyrt það
„brúðkaup aldarinnar“. Í dag er hún aðaleigandi Fréttablaðsins. Þau
hjónin eiga saman sex börn.
Kristján Loftsson: Laugarásvegur 19, Reykjavík
Kristján er einn óvinsælasti Íslendingurinn á er-
lendri grundu, þá sérstaklega meðal þeirra sem er
annt um hvali. Sem eigandi og forstjóri Hvals hefur
hann í áratugi talað fyrir sjálfbærum hvalveiðum,
alþjóðlegum dýraverndarsinnum til mikillar óá-
nægju, en Kristján hefur eldað grátt silfur við sam-
tök á borð við Greenpeace allt frá áttunda áratug
síðustu aldar.
Kristján hefur verið umsvifamikill í íslensku
viðskiptalífi, í vor seldi hann eign sína í HB
Granda fyrir nærri 22 milljarða króna. Sam-
kvæmt Tekjublaðinu er hann launahæsti
einstaklingurinn í sjávarútvegi og landbún-
aði með 4,7 milljónir króna í mánaðarlaun.
Hann býr ásamt eiginkonu sinni í stórglæsi-
legu einbýlishúsi í Laugarnesinu.