Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 2
2 1. júní 2018fréttir
sem hægt er að ráða sem borgarstjóra
Unnið er
að því
að setja
saman
meirihluta
í borginni.
Margir hafa
talað um að
það ætti að fá fagráðinn borgar-
stjóra í stað stjórnmálamanns,
gildir það bæði um meirihluta til
vinstri og hægri. DV tók því saman
fimm einstaklinga sem hægt er að
ráða sem borgarstjóra Reykjavíkur.
Halla Tómasdóttir
Halla varð þjóðþekkt
þegar hún bauð sig
fram til forseta árið
2016. Hún er vinsæl,
kann á rekstur og með
það breiða skírskotun
að hún gæti verið
borgarstjóri bæði til
hægri og vinstri.
Jón Gnarr
Kom, sá og sigraði í
borginni árið 2010.
Síðan þá hefur hann
leikið borgarstjórann
á Stöð 2 og er kominn
í Samfylkinguna. Mun
æra Sjálfstæðismenn
óendanlega ef það er
vilji Viðreisnar.
Lalli Johns
Ef það er einhver
sem þekkir hvern
einasta krók og kima
Reykjavíkurborgar
þá er það Lalli Johns.
Hann er búinn að vera
edrú í fjögur ár og er
örugglega til í tuskið.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Þegar litið er í
baksýnisspegilinn
sést glögglega að það
var ekki heillaspor
hjá henni að yfirgefa
borgina á sínum tíma.
Gæti verið sterkur
leikur hjá Viðreisn og
Sjálfstæðisflokki.
Bjarni Bjarnason
Bjarni tók til í
Orkuveitunni í byrjun
áratugarins og er þar
ennþá. Hann er jarð-
og verkfræðingur.
Mjög góður kostur ef
leitað er að ópólitísk-
um einstaklingi til að
reka stórt batterí og
hann mun ekki skyggja
á stjórnmálamennina.
Á þessum degi,
1. júní
193 – Rómverski keisar-
inn Didíus Júlíanus er
ráðinn af dögum.
1533 – Anne Boleyn er
krýnd drottning Englands.
1792 – Kentucky er
samþykkt sem 15. ríki
Bandaríkjanna.
1967 – Breiðskífa The
Beatles, Sgt. Pepper’s
Lonely Hearts Club
Band, er gefin út.
1990 – George H.W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbachev,
þá leiðtogi Sovétríkjanna, undirrita
samkomulag um að binda endi á fram-
leiðslu efnavopna.
Einar
ironsidE
bErst fyrir
Íslands hönd
Einar Ironside
mun vera fulltrúi
Íslands á stóru
fjölbragða-
glímumóti í
London um
miðjan júní.
Keppinautar Einars í London eru ekki árennilegir.
Þ
ann 13. júní
næstkomandi
fer fram stórt
alþjóðlegt fjöl-
bragðaglímumót í London sem
ber heitir Progress World Cup.
Þátttakendurnir eru átta talsins og eiga
það sameiginlegt að vera frá löndum
sem taka þátt í HM í fótbolta sem fram
fer um svipað leyti í Rússlandi.
Íslendingar hafa ekki verið þekktir
fyrir mikil afrek á sviði fjölbragðaglímu
en það gæti brátt breyst. Meðal kepp-
enda í mótinu í London er víkingurinn
Einar Ironside sem mun vera fulltrúi Ís-
lendinga í mótinu. Hann heitir réttu nafni
Hjálmar Sanne, hefur búið hinum megin
á jarðkringlunni nánast allt sitt líf og tal-
ar ekki íslensku. En það leynir sér ekki að
Hjálmar er afar stoltur af uppruna sín-
um.
Fetaði í fótspor foreldranna á
Þingeyri
„Mamma mín er frá Ástralíu en hún
ákvað að ferðast til Íslands og vinna
í fiski á Vestfjörðum,“ segir Hjálmar í
samtali við blaðamann. Móðir hans
fékk starf á Þingeyri og þar kynntist
hún föður hans, Marteini Emil Svenna.
„Mamma flutti að lokum aftur heim til
Ástralíu og pabbi elti hana skömmu síð-
ar. Ég fæddist því í Ástralíu og ólst upp í
borginni Adelaide,“ segir Hjálmar.
Hann heimsótti Ísland aðeins einu
sinni sem barn en árið 2013 ákvað hann að
bæta úr þessu og hefur síðan heimsótt Ísland
fjórum sinnum. Meðal annars fetaði hann í
fótspor foreldra sinna og fór að vinna í fiski á
Þingeyri árið 2015. Á þeim ólíklega stað fékk
Hjálmar þá hugljómum að fara að reyna fyrir
sér í fjölbragðaglímu.
„Ég eyddi miklum tíma fyrir vestan í að
horfa á fjölbragðaglímu enda hef ég haft mik-
inn áhuga á henni alla tíð. Ég hef alltaf heillast
af því hvað þetta er erfitt sport sem reynir mik-
ið á líkamann en ekki síður öllu leikhúsinu í
kringum bardagana,“ segir Hjálmar. Hann var
þegar með grunn í leiklist enda hefur hann
reynt fyrir sér sem leikari í heimalandinu og
brugðið fyrir í nokkrum myndum og sjónvarps-
þáttum. Hann er síðan jötunn að burðum og er
handviss um að það sé frá Íslandi komið.
Eftir vistina fyrir vestan flaug Hjálmar aftur
til heimaborgar sinnar þar sem hann sótti um
að berjast hjá fjölbragðaglímufyrirtæki sem
nefnist Wrestle Rampage. Sex mánuðum síðar
steig hann inn í hringinn sem Einar Ironside.
Að sögn Hjálmars er hann bjartsýnn á gott
gengi á Progress World Cup í London en þar
gætu margar dyr opnast fyrir hann. Hans helsti
draumur tengist þó ekki fjölbragðaglímunni.
„Mig langar afar mikið til þess að taka þátt í
einhverju kvikmynda- eða sjónvarpsverkefni á
Íslandi. Ef það vantar víking, þá er ég til,“ segir
Hjálmar kíminn. n
Líklega fyrsti Íslendingurinn sem keppir í fjölbragðaglímu
„Ég hef alltaf heillast af því
hvað þetta er erfitt sport
sem reynir mikið á líkamann en
ekki síður öllu leikhúsinu í kringum
bardagana.
Síðustu orðin
„Ég er búinn að fá leiða á
þessu öllu“
– Winston Churchill (1874–1965)
Bikiníbyltingin:
Taktu þátt og
birtu bikinímynd
með myllumerkinu
#flottibikini
Í
gær vakti greinarmoli í
Fréttablaðinu, sem bar
heitið „Flott í bikiní“,
gríðarlega athygli og gagn-
rýni á samfélagsmiðlum. Fjöldi
kvenna
dreifði
myndum
af greininni
og ljóst var
að þær voru
óánægðar
með þá
óvirðingu
gagnvart
kvenlíkam-
anum sem
greinarmol-
inn fól í
sér. Hafdís
Magnús-
dóttir var
ein þeirra
sem deildi
mynd af molanum og sagði
meðal annars:
„2018 og við þurfum ekki
ráð við því hvernig við förum
í bikiní og hvernig við undir-
búum fyrir bikiní. Það er alveg
nóg að eiga bikiní og klæða sig í
það og njóta og þá er markmið-
inu náð. Ég veit af alltof mörg-
um konum á öllum aldri sem
neita sér um það að fara í sund
eða á ströndina því það veldur
kvíða og óöryggi með líkama
þeirra. Takk eða þannig því
þessi grein hjálpar engum.“