Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Qupperneq 16
16 sport 1. júní 2018 E ftir rúmar tvær vikur hefur íslenska landsliðið leik á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi, sviðið er að verða klárt og nú er það bara und­ ir strákunum okkar komið hvern­ ig útkoman verður. Ljóst er að það getur brugðið til beggja vona, allt gæti farið á besta veg en þegar andstæðingarnir eru svona sterkir, getur líka allt farið á versta veg. Íslenski hópurinn er nú allur kom­ inn til landsins og byrjaður að hefja undirbúning sinn, fram und­ an eru tveir æfingarleikir áður en liðið heldur ti Rússlands þann 9. júní. Nú á laugardag leikur liðið gegn Noregi og á fimmtudag í næstu viku er það leikur við Gana. Þjálfari Noregs, Lars Lagerbäck, sem hóf þessa mögnuðu vegferð sem strákarnir okkar eru á, er Ís­ lendingum afar kær. Birkir Már Sævarsson hefur átt stöðu hægri bakvarðar í liðinu síð­ ustu ár og ekkert virðist ætla að breyta því, Samúel Kári Friðjóns­ son var nokkuð óvænt í hópnum. Hann er hugsaður sem hægri bak­ vörður og því sá maður sem getur mesta pressu sett á Birki og er fram­ tíðar maður í hægri bakverðinum. „Það er frábært að þessi undir­ búningur sé að fara af stað, þetta er það sem maður er búinn að vera að bíða eftir síðan í fyrrahaust, það er gaman að það sé komið að þessu,“ sagði Birkir Már þegar blaðamaður ræddi við hann í vikunni. Pepsi-deildin hefur ekki áhrif Birkir er eini leikmaðurinn í hópnum sem hefur spilað á Ís­ landi í aðdraganda mótsins, hann kom heim úr atvinnumennsku í fyrrahaust og samdi við Val. Birkir var viðbeinsbrotin í vetur en það hefur ekki áhrif á hann. „Ég er í eins góðu standi og ég get verið, ég þurfti mikið á þessum leikjum að halda eftir að hafa verið bara að hlaupa í janúar og febrúar út af meiðslunum. Ég held að það sé sama staða og ef ég hefði verið á hinum Norðurlöndunum. Ég hefði kannski verið búinn að spila örlítið fleiri leiki ef ég hefði verið í Svíþjóð sem dæmi. Það breytir í raun ekki neinu í mínu tilfelli.“ Viðurkennir ofleik Margir voru hræddir þegar Birkir var sparkaður niður í leik gegn Breiðabliki á dögunum og óttuðust að þarna gæti HM verið í hættu. Hann segist ómeðvitað hafa verið að hlífa sér í sumar. „Ég viður­ kenni að þetta var aðeins ofleikið, hann fór í mig en ég held að legg­ hlífin hafi bjargað því. Ég hef reynt að hugsa ekkert um að maður gæti meiðst, það er mögulega aðeins í undirmeðvitundinni, án þess að maður vilji það í raun. Maður vill bara gera sitt besta á vellinum. Það hefur eitthvað aðeins að truflað, sérstaklega út af viðbeinsbrotinu. Ég var aðeins of varkár, líklega án þess að ætla mér það.“ Fagnar samkeppni Birkir Már fagnar því að fá samkeppni um stöðu sína í liðinu. „Hann setur pressu á mig. Þeir sem eru valdir í þennan hóp geta spilað leikinn. Hann setur pressu á mig, þannig á þetta vera. Þannig að maður spili eins vel og maður getur til að halda sæti sínu. Við erum ekkert að fara á HM til að vera bara með, við ætl­ um að fara eins langt og hægt er. Byrjum á því og svo skoðum við stöðuna.“ Samúel fengið góðar móttökur Samúel Kári, sem er 22 ára miðju­ maður að upplagi, er hugsaður sem hægri bakvörður í landsliðinu en hann er að stíga sín fyrstu skref í þessum sterka hóp. „Mér hefur verið tekið mjög vel frá fyrsta degi, þetta eru hreint frábærir strákar og með mikla reynslu. Þeir kunna þetta, þetta lið hefur náð rosalega langt. Liðið komst á Evrópumótið og gerði frábæra hluti þar, fyrir mig er algjör lærdómur að geta lært af þeim,“ sagði Samúel við blaða­ mann í vikunni. Hugsar ekki um spilatíma Samúel segist ekki pæla í hvort hann fái eitthvað að spila á HM en hann ætlar að gera sitt besta. „Nú er ég mættur hingað til æfinga og er að hugsa um það. Spilatími – það er ekkert í hausnum á mér,“ sagði Samúel sem kveðst læra mikið af því að spila með Birki. „Ég læri óendanlega mikið af honum, það er það eina sem ég get sagt. Ég hef verið að spila mest sem miðju­ maður í Noregi, ég hef þó aðeins verið í bakverðinum en aðallega undir lok leikja.“ Ólst upp í Keflavík Það er ekki allt knattspyrnu­ áhugafólk sem þekkir bakgrunn Samúels, hver er maðurinn? „Ég var alltaf í Keflavík frá því að ég gat byrjað að sparka í bolta, ég flutti til Lúxemborgar og bjó þar í eitt ár þarna á milli. Ég var svo bara í Keflavík áður en ég fór 16 ára gam­ all til Reading á Englandi og var þar í fjögur ár. Ég hef síðan þá ver­ ið í Noregi og líkar það afar vel. Ég valdi að fara til Noregs því ég vildi spila og taldi að þarna myndi ég þroskast sem leikmaður, spila í meistaraflokki. Maður veit aldrei hvað gerist í Englandi, það var rétt ákvörðun. Það verður að koma í ljós hvað gerist svo, ég er í Noregi núna og líður bara vel. Ég hef alltaf tileinkað mér að taka bara eitt skref í einu.“ n Framtíðin og nútíðin n Samúel Kári setur pressu á Birki Má n Eru ekki að fara á HM bara til að vera með Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Samúel Kári Friðjónsson Birkir Már Sævarsson S. 565 2217 - pappir@pappir.is - Kaplahraun 20 - 220 Hanarfjörður Prentun endist í 7, 10 & 15 ár Er fyrirtækið þitt að nota löggiltan pappír ? Eigum allar stærðir á lager
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.