Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 19
fólk - viðtal 191. júní 2018 „Við vorum meira að segja með mann í vinnu sem eingöngu sá um að opna og loka hliðinu.“ Gekk í sama skóla og Gandhi-fjölskyldan Pratik hóf nám aðeins fjögurra ára gamall í Modern School í Nýju- Delí, sem er einn virtasti einka- skóli landsins og geta eingöngu bestu nemendur landsins sótt þar um, en um 2.400 nemendur stunda þar nám hverju sinni. Ein- hverjir mestu áhrifavaldar Ind- lands á 20. og 21. öldinni gengu í sama skóla og Pratik. Má þar helst nefna fyrrverandi forsætisráð- herra Indlands, Indiru Gandhi, sem var einnig fyrsti og eini kven- forsætisráðherra Indlands. Fjöl- skyldunafnið er eitt það þekktasta í indverskum stjórnmálum og hafa nánast allir fjölskyldumeðlim- ir sem bera nafnið gengið í skól- ann. „Þetta er stór skóli með bestu mögulegu aðstöðu fyrir nemend- ur, mögulega bestu aðstæður í öllu Indlandi.“ Eftir að hann útskrifaðist frá Modern School lá leið hans til Bangalore í háskóla í verkfræði- nám. „Ég var nýútskrifaður úr verk- fræðinni þegar ég sá að það var í boði að fara í frekara skiptinám til Íslands. Ég kom rétt fyrir áramótin árið 1999 og fékk að upplifa ein- hver stórkostlegustu áramót á ævi minni, mér var smá brugðið en ég fann það á mér að þetta væri land sem mér myndi líka vel við.“ Hann hóf störf hjá tæknifyrirtækinu OZ rétt eftir komu sína til landsins, en það entist ekki lengi þar sem árið 2001 hætti sænska fyrirtæk- ið Ericsson að leggja til fjármagn í OZ. Það olli því að ekki var leng- ur grundvöllur fyrir rekstri fyrir- tækisins á landinu þar sem það hafði enga tilbúna vöru til að selja og var því starfsemi fyrirtækisins lögð niður á Íslandi. Þaðan lá leið Pratiks til Nýherja til ársins 2007 en þá hóf hann störf hjá Kaup- þingi sem seinna varð að Arion banka. Gullæði í app-heiminum Árið 2009 fór Pratik að taka eftir gífulegri eftirspurn eftir smáforrit- um fyrir farsíma. Það var svokall- að gullæði í gangi, þar sem það var gífurleg eftirspurn eftir forritum en framboðið lítið. Hann fór að hugsa hvernig forritum notend- ur voru að kalla eftir og datt þá á sína fyrstu hugmynd sem er í dag grunnurinn að rekstri App Dyna- mic. „Ég spurði bara sjálfan mig, hvað vantar mig?“ Svarið við þeirri spurningu var forrit sem lenti í 8. sæti yfir tekjuhæsta forritið á iTunes, sem er netverslun stór- fyrirtækisins Apple. „Allt í einu voru tekjurnar af forritinu orðnar fjórum sinnum meiri en mánað- arlaunin mín og þá vissi ég að ég gæti ekki verið að vinna fulla vinnu á sama tíma og ég var að þróa og sinna forritinu. Vinnudagurinn minn var orðinn ansi langur, ég mætti klukkan níu í vinnuna hjá Arion banka og fór þaðan beint upp á skrifstofuna mína sem ég leigði uppi í Hlíðasmára, þar var ég oftast til klukkan eitt eða tvö um nóttina. Ég vissi að ég gæti ekki mikið lengur haldið þessu áfram, svo ég sagði upp vinnunni og stofnaði App Dynamic.“ Tækniheimurinn var snöggur að taka eftir forritinu sem Pratik hannaði og var það lofað um allan heim af notendum þess. Fyrirtækið er ekkert án tæknifólksins Margir myndu halda að tækni- fyrirtæki sem er í samstarfi við stórfyrirtæki eins og Samsung og Microsoft, væru með ansi marga starfsmenn, en hjá App Dyna- mic starfa eingöngu níu manns. Pratik segist eingöngu velja besta starfsfólk sem möguleiki er á og leggur því mikið upp úr því að starfsfólki sínu líði vel í vinnunni og það er augljóst að hann hefur mjög sterkar skoðanir þegar kem- ur þeim málum. „Við viljum skapa heimilislega stemningu hérna inni hjá okkur, það er ekkert verra en að vinna á stað sem lætur mann halda að maður sé að vinna á ein- hverri stofnun úti í bæ.“ Við förum að ræða um starfs- mannastefnuna hjá fyrirtækinu. „Vandamálið með allt of mörg tæknifyrirtæki á Íslandi er að þau átta sig ekki á því að án tæknifólks- ins er fyrirtækið ekki neitt, þetta eru tæknifyrirtæki. Það er of oft sú vinnustaðamenning að yfir- mennirnir eða þeir sem stjórna peningunum innan fyrirtækis- ins haldi að þeir séu verðmætustu starfsmennirnir innan fyrirtækis- ins en líta á tæknifólkið sem auð- veldlega útskiptanlegan hlut, Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum Rúmföt & lök mikið úrval Sloppar fyrir bæði kyn Handklæði Mikið úrval Gerið gæða- og verðsamanburð „Allt í einu voru tekjurnar af forritinu orðnar fjór- um sinnum meiri en mánaðarlaunin mín og þá vissi ég að ég gæti ekki verið að vinna fulla vinnu á sama tíma og ég var að þróa og sinna forritinu. n Framleiðir vöru sem gæti umbylt tækniheiminum n Á Íslandi er friður til að skapa Skjárinn sem Pratik fékk að gjöf frá Microsoft. Pratik Kumar, stofnandi og eigandi App Dynamic, hann fluttist til lands- ins árið 1999 og vill aldrei flytja héðan.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.