Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 20
20 fólk - viðtal 1. júní 2018 MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK þetta hugarfar gefur þér eingöngu sæmilega góða framistöðu. Þú get­ ur alveg rekið banka á þann máta en ef þú vilt byggja upp gott tækni­ fyrirtæki þá getur það tekið mörg ár fyrir starfsmann að koma sér almennilega inn í starfið og fara framleiða alvöru verðmæti innan fyrirtækisins. Starfsfólk er ekki einhver eign sem þú ert að borga mánaðarlegar afborganir af, held­ ur er starfsfólkið það sem held­ ur fyrirtækinu gangandi, því án þess er framleiðsluvaran þín ekk­ ert nema hugmynd. Án þessa frá­ bæra starfsfólks sem ég hef, hefði þetta tæki sem við vorum að setja í framleiðslu aldrei orðið að raun­ veruleika.“ Varan sem mun líklega drepa framleiðslu á stórum snertiskjáum Fyrirtækið er nýbúið að senda frá sér fyrstu einingarnar af tæki sínu, Air Server, en eingöngu nokkur hundruð einingar hafa verið send­ ar frá þeim þar sem þeir vilja sjá til þess að ef einhverjir gallar komi upp séu þeir lagaðir áður en þeir setja framleiðslu á tækinu á fullt. Tækið er framleitt af Intel og án þess að fara í of tæknilegt mál þá er þetta tæki sem er sérhannað fyrir fundarherbergi. Þeir sem hafa þurft að halda kynningar kannast alltaf við það vandamál að þurfa að tengja tækið sitt við sjón­ varpið eða skjávarpann til að get­ að haldið kynningu eða deila efni með fólki í herberginu. Með þessu tæki tengist þú einfaldlega þráð­ laust og kastar tækið myndinni beint af farsímanum þínum, far­ tölvunni þinni eða spjaldtölvunni þinni. Þessi tækni hefur haft með sér í för að stærstu sjónvarpsfram­ leiðendur heims, eins og Philips, Samsung og Harman Kardon, eru núna að vinna með App Dynamic á Íslandi til að koma fyrir tækninni inn í sjónvörpin sjálf. Þetta hefur gert að verkum að þessir sjón­ varpsframleiðendur leggja ekki jafn mikla áherslu á rannsóknir þegar kemur að sjónvörpum með snertiskjáum þar sem snertiskjáir eru mjög dýrir í framleiðslu og er þetta því mun ódýrari kostur fyrir þá. Apple, Google og Microsoft hafa öll framleitt einmitt svipað tæki sem fólk hefur getað nýtt sér hingað til, en munurinn á þeim tækjum og tæki App Dynamic er sá að eingöngu eitt tæki í einu get­ ur tengst tækjum framangreindra fyrirtækja á meðan allt að átta tæki geta tengst við tækið sem App Dynamic framleiðir ásamt því að bjóða upp á mun hraðari tengingu á milli tækjanna en nokkurn tíma hefur áður þekkst. Ég spyr Pratik af hverju þessi stórfyrirtæki geri einfaldlega ekki bara það sama og hann er að gera, þá svarar hann öruggur: „Þeir einfaldlega hafa ekki tæknina til að gera þetta og eru þess vegna að vinna í nánu samstarfi við okkur þar sem þau geta ekki auðveldlega keppt við okkur.“ Mun líklega breyta kennsluháttum um allan heim Tækið er einnig sérstaklega hannað fyrir skólakerfið, þar sem kennarar og nemendur geta auð­ veldlega deilt með öllum bekkn­ um hlutum á skjáinn inni í skóla­ stofunni án þess að þurfa að vera með sérstök tæki, sérstakar snúr­ ur eða sérstök forrit til að tengj­ ast. Þetta gerir að verkum að skól­ ar þurfa mögulega ekki lengur að fjárfesta í dýrum sérstæðum tækj­ um fyrir hvern einasta nemenda, heldur munu nemendur ein­ faldlega geta komið með tæki að heiman. Bill Gates hefur notað íslenskt hugvit Nú þegar hafa stórfyrirtæki á við Microsoft og Walt Disney feng­ ið fyrstu tækin afhent, ásamt því sem háskólarnir í Cambridge og Oxford hafa tryggt sér tæki úr fyrstu sendingu. „Mér hefur ver­ ið sagt af yfirmönnum Microsoft að Bill Gates hafi notað tæknina frá okkur og hafi líkað mjög vel við hana.“ Það er augljóst að því meira sem ég talaði við Pratik kom í ljós hversu sérstaka og háþróaða tækni fyrirtæki hans hefur þróað og hversu mikla sérstöðu og for­ skot það hefur á helstu tæknifyrir­ tæki heimsins. „Við búumst við að selja tvær til þrjár milljónir eintaka af tækinu fyrstu mánuðina.“ Þekkir fleiri sendiherra en íslenska stjórnmálamenn Pratik fær nánast vikulega boð frá sendiherrum hinna ýmsu landa sem vilja bjóða honum til sín á fund til að ræða um að flytja fyrir­ tæki hans frá Íslandi. „Ég þekki mun fleiri sendiherra en íslenska stjórnmálamenn, þar sem ég þekki engan stjórnmálamann og furða ég mig oft á áhugaleysi ís­ lenskra yfirvalda á tækniiðnað­ inum á Íslandi, iðnaði sem skilar gífurlegum tekjum fyrir landið.“ Hann fer svo að ræða um hvernig það var að byrja með tæknifyrir­ tæki á Íslandi og hversu erfitt það er að fara í gegnum nýsköpunar­ styrktarkerfið. „Þegar ég var að byrja með fyrirtækið þá tók það nánast sama tíma að sækja um styrki eins og að búa til tilbúna vöru, svo ég einfaldlega ákvað frekar að nota tíma minn í að búa til sjálfa vöruna, þar sem ég hafði menntunina og reynsluna til að gera það, heldur en að eyða tím­ anum að fylla út hinar og þess­ ar umsóknir sem eru úti um allt í þessu nýsköpunarkerfi.“ Elskar og dáir Ísland Maður fór að spyrja sjálfan sig fljótlega eftir að maður var byrj­ aður að tala við Pratik af hverju hann væri með höfuðstöðvar þessa alþjóðlega fyrirtækis enn þá á Íslandi en ekki til dæmis í Bandaríkjunum eða Bretlandi, þar sem helstu tæknifyrirtæki heims­ ins eru með höfuðstöðvar sínar, einnig þar sem skattar á Íslandi eru ekkert sérstaklega lágir. „Þú kemur ekki til Íslands til að spara peninga vegna lágra skatta, þú kemur hingað vegna þess að þú vilt fá góð lífsgæði. Það sem er mikil­ vægt fyrir mig er að þetta land getur orðið nákvæmlega það sem það vill verða og þú getur einnig orðið ná­ kvæmlega það sem þú vilt verða. Ef þú vilt skemmta þér allar helgar niðri í miðbæ, eða hitta vini þína, þá getur þetta verið frábært land fyrir þig. Ef þú elskar náttúruna og vilt eyða frítímanum að skoða hana þá er þetta einnig frábært land fyrir þig. Ef þú ert eins og ég, þá er þetta frábært land þar sem maður fær al­ gjöran frið, vinnufrið til að vinna að frábærum hugmyndum og auð­ veldlega koma þeim í framkvæmd þar sem allt kerfið hérna vinnur mjög hratt og örugglega, mun hrað­ ar en til dæmis á Indlandi. Í stór­ borgum á við New York og London er svo mikill truflun, þú hefur ná­ kvæmlega sömu gæði hérna á Ís­ landi og í þeim stórborgum, en munurinn er sá að það eru alltaf truflanir sem tengjast því að búa í stórborgum, truflanir sem eru ekki til staðar hérna á Íslandi og það gef­ ur þér þann vinnufrið sem þú þarft til að skapa stórkostlega hluti.“ Pratik býr í dag í Garðabænum ásamt eiginkonu sinni Kristínu Óskarsdóttur og fimm börnum. Hann segist hafa fundið einn besta stað í heiminum til að búa og vinna á. n „Vinnudagurinn minn var orðinn ansi langur, ég mætti klukkan níu í vinnuna hjá Arion banka og fór þaðan beint upp á skrifstofuna mína sem ég leigði uppi í Hlíðasmára, þar var ég oftast til klukkan eitt eða tvö um nóttina. Tækið sem App Dynamic er með í framleiðslu hjá Intel.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.