Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 22
Viðburðir í sumar Helgarblað 1. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Tríó Events Reykjavík: FYRIR VEL HEPPNAÐA VIÐBURÐI, STÓRA OG SMÁA Þegar viðburður er skipulagður, hvort sem um er að ræða stóra ráðstefnu eða veislu, nú eða lítið krúttlegt partí þá skiptir hann þá sem að honum standa miklu máli og mikið er undir því komið að vel takist til. Þær Anna Katrín Guðmundsdóttir og Ýr Gunnlaugsdóttir stofnuðu fyrir- tækið Tríó Events Reykjavík í október árið 2016. En þó að fyrirtækið sé ungt eru þær stöllur reynslumiklar í faginu: „Við erum hoknar af reynslu í þess- um bransa og lífsins ólgusjó. Okkur langaði að láta þann draum rætast að stofna fyrirtæki í kringum það sem okk- ur finnst skemmtilegast; að hanna og skipuleggja viðburði og verkefni,“ segir Anna. Hún er menntuð í sjónvarpsdag- skrárgerð og hefur starfað sem fram- leiðandi sjónvarps- og kvikmyndaefnis. Anna er jafnframt með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM). Ýr er með menntun í hótelfræð- um og stýrði viðburða- og ferðadeild Háskólans í Reykjavík til fjölda ára. „Við leggjum áherslu á persónulega og góða þjónustu og nána samvinnu við viðskiptavininn. Það er dýrt að halda veislu eða standa fyrir viðburði – við vitum það. Það er því mikilvægt að far- ið sé vel með peningana og allt gangi sem best upp,“ segir hún. Þær Anna og Ýr leggja áherslu á að mikilvægt sé að leggja niður fyrir sig hverju viðburðurinn á að skila áður en hafist er handa: „Sumir viðburðir eru hugsaðir til að bæta vinnuandann og þétta hópinn, aðrir eru hugsaðir sem fræðsla og hvatning og enn aðrir eiga að vera hrein skemmtun. Undirstöðurnar eru samt alltaf þær sömu, sama hvert tilefnið er, það er góður undirbúning- ur og verkefnastjórn svo viðburður- inn heppnist sem best. Einnig erum við með kvikmyndadeild þar sem við framleiðum efni bæði fyrir þá við- burði sem við erum að stýra, til dæmis árshátíðarmyndbönd, stuttar myndir um fyrirtækin, eða sjáum um beinar útsendingar eða streymi frá fundum. Með þessu fær viðburðurinn meiri dýpt og verður eftirminnilegri,“ segir Anna. Ýr segir að þær leggi áherslu á persónulega nálgun og samvinnu við viðskiptavininn varðandi veislur og viðburði: „Það þarf hugmyndaauðgi og gott nef fyrir hvað passar hverju sinni enda ekkert eins skemmtilegt og að sjá allt smella saman á viðburðinum sjálf- um. Við erum duglegar að finna upp á einhverju óvenjulegu og okkur finnst fátt skemmtilegra en að fara á hugar- flug um nýja útfærslu.“ Fyrir Tríó Events Reykjavík er enginn viðburður of stór eða of lítill og allir eru þeir jafnmikilvægir. Þess má geta að fyrirtækið er með hagstæða samn- inga við veitingamenn og leigjendur samkomusala og því getur borgað sig að kaupa slíka þjónustu í gegnum Trio Events Reykjavík. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni trioevents.is eða á Face- book. Ýr Gunnlaugsdóttir og Anna Katrín Guðmundsdóttir Blómstrandi dagar í Hveragerði: EINN AF HÁPUNKTUM SUMARSINS Sumarið ber margt heillandi í skauti sér og eitt af því sem margir landsmenn hlakka til er bæjarhátíðin Blómstrandi dagar sem haldin er í hverjum ágústmánuði í Hveragerði. Þá blómstrar blómabærinn Hveragerði sem aldrei fyrr, bæjarbúar eru í hátíðaskapi og gestir streyma víða að. „Það er óljóst hvað saga hátíðar- innar nær langt aftur, þetta byrjaði í grasrótinni þar sem einstaklingar í bænum tóku sig saman og héldu hátíð. Undanfarin 20 ár hefur þetta verið með formlegri hætti og er hátíðin orðin mjög stór,“ segir Jóhanna Margrét Hjart- ardóttir, menningar- og frístundafulltrúi Hveragerðis. Hátíðin stendur yfir frá fimmtu- degi til sunnudags en nær hápunkti á laugardegi. Í ár eru Blómstrandi dagar dagana 16. til 19. ágúst. „Við erum með margt í boði eins og áhugaverð- ar listsýningar, tónlistarviðburði og heilsutengda viðburði fyrir fólk á öllum aldri,“ segir Jóhanna Margrét en boðið er upp á metnaðarfullar listsýningar í listasafni Árnesinga, steinasýningu og margt fleira. Á fimmtudagskvöldinu eru tónleikar með Jóni Ólafssyni og Hildi Völu í Skyr- gerðinni. Á föstudagskvöldið stíga Blús- menn Andreu á svið og er þetta í fyrsta skipti sem þau koma fram á hátíðinni. „Við eigum líka marga frábæra tónlist- armenn hér í bænum og verða tónleikar víða um bæinn alla hátíðardagana,“ segir Jóhanna Margrét. Hátíðin springur út á laugardeginum Gífurlega skemmtileg stemning er í Hveragerði á laugardeginum þegar hátíðin nær hámarki. Kjörís stendur þá fyrir ísdeginum sem hefur fyrir löngu fest sig í sessi. Glæsileg flugeldasýning er um kvöldið og Hvergerðingurinn Sóli Hólm stýrir brekkusöng. Eins og flestir vita er Sóli Hólm frábær eftirherma og það spillir ekki fyrir skemmtuninni þegar landsfrægir karakterar taka að stýra brekkusöngnum með honum. Hér hefur aðeins verið drepið á því helsta í dagskránni en bæjarbúar og þjónustuaðilar í bænum taka mjög virkan þátt. „Fólk leggur hátíðinni lið með því að skreyta sín hverfi og sinn garð – bílskúrsmarkaðir og gallerí eru úti um allan bæ og margir opna hús sín fyrir hátíðargestum og er meðal annars boðið upp á tónlist, myndlist og jafnvel brauðbakstur,“ segir Jóhanna Margrét. „Af ógrynni dagskrárliða má einnig nefna heimsókn fornbílaklúbbsins, Leikhópsins Lottu, BMX brós o.fl. Einnig verður hin vinsæla söguferð með Nirði á sínum stað og margt fleira. Rafskutlu- ferð góðborgara vakti sérstaka lukku í fyrra og verður hún aftur í ár. Þar geta allir eigendur rafskutlna tekið þátt en þeir eru margir á virðulegum aldri. Eftir- tektarvert er hve margir Hvergerðingar eiga rafskutlur,“ segir Jóhanna Margrét enn fremur. Þegar nær dregur hátíðinni verð- ur nánari dagskrá birt á heimasíðu Hveragerðisbæjar, hveragerdi.is og blomstrandidagar.is. Birt verður kort með nákvæmri staðsetningu og tíma- setningu viðburða, stórra sem smárra. Á Facebook-síðunni Blómstrandi dagar í Hveragerði verða einnig ítarlegar upplýsingar og þar er nú þegar hægt að skoða skemmtilegt efni frá fyrri hátíðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.