Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Page 45
KYNNING
Eitt hraðvirkasta bókhalds-
kerfi í heimi – frá snillingnum
Erik Damgaard
Tvö lykilatriði í rekstri fyr-irtækja eru tími og pen-ingar. Viðskiptalausnin
Uniconta svarar þessum
kröfum sem eitt hraðvirkasta
bókhaldskerfi í heiminum og
býðst notendum á áskrift-
arverði sem er umtalsvert
hagstæðara en áður hefur
þekkst hér á landi.
Fullkomin viðskiptalausn
Með Uniconta geta fyrirtæki
náð tökum á fjárhag, birgð-
um, verkbókhaldi, framleiðslu
og tengist auk þess við önnur
kerfi eins og launakerfi, af-
greiðslukerfi og vefverslanir.
Þrátt fyrir að bjóða upp á
marga eåiginleika sem henta
flóknum stórfyrirtækjum er
Uniconta einfalt í uppsetn-
ingu og notkun og dæmi eru
um að bókarar í fyrirtækjum
skili allt að 50% meiri afköst-
um eftir innleiðingu Uniconta.
Hreinræktuð skýjalausn
Uniconta er skýjalausn eins
og Office 365 þar sem
gögnin eru vistuð í skýinu en
notandinn vinnur með þau
í sérstökum biðlara sem er
uppsettur á tölvunni. Flest
bókhaldskerfi sem standa ís-
lenskum fyrirtækjum til boða í
dag eru ekki í skýinu. Í flestum
tilfellum eru þetta kerfi sem
voru hönnuð á tíunda áratug
síðustu aldar til uppsetningar
á gagnaþjónum fyrirtækja en
eru nú hýst á gagnaþjónum
hjá söluaðila. Með áskrift að
Uniconta er öll gögn vistuð
í öruggu skýjaumhverfi og
reglubundin taka afrita er
tryggð.
Hentar litlum sem stórum
fyrirtækjum
Uniconta hentar allt frá ein-
yrkjum upp í stærri fyrirtæki
með hundruð starfsmanna
og er því afar heppileg lausn
á Íslandi þar sem meirihluti
fyrirtækja er í smærri kantin-
um.
Steve Jobs bókhaldskerfanna
Uniconta er úr smiðju hins
heimsþekkta snillings Er-
iks Damgaard sem meðal
annars færði heiminum
Dynamics AX. „Erik Dam-
gaard mætti kalla Steve Jobs
bókhaldskerfanna, slík hafa
áhrif hans í þessum geira
verið,“ segir Ingvaldur Thor
Einarsson, framkvæmdastjóri
Uniconta á Íslandi, sem er
dreifingaraðili Uniconta hér á
landi.
Erik Damgaard byggði
ungur upp glæsilegan rekstur
sem Microsoft keypti mörg-
um árum síðar fyrir háar
fjárhæðir. Hann á heiðurinn
af mörgum framúrskarandi
lausnum í bókahaldsheim-
inum en nýjasta lausnin,
Uniconta, hefur náð mik-
illi útbreiðslu Danmörku.
„Uniconta er komið á mark-
aðinn í Noregi, Hollandi og
Bretlandi og er að fara í gang
í Suðaustur-Asíu og Ástral-
íu. Kerfið hefur einnig fengið
frábærar viðtökur hér á landi
enda Íslendingar í fremstu
röð þegar kemur að því að
innleiða tækninýjungar,“ segir
Ingvaldur.
Einfalt að byrja
Uniconta á Íslandi býður
áhugasömum upp á 30 daga
gjaldfrjálsa prufuáskrift
að hugbúnaðinum. „Það er
góður tími fyrir fólk til að átta
sig á því hvernig þetta virkar
og hvort það hentar þeirra
rekstri,“ segir Ingvaldur.
Til að fá aðstoð við upp-
setningu kerfisins og kennslu
má hafa samband við
Uniconta Íslandi eða þjón-
ustuaðila. Ráðgjafar aðstoða
svo viðskiptavin með inn-
leiðingu, aðlögun og notkun
kerfisins. „Það tekur allt frá
nokkrum klukkustundum upp
í nokkrar vikur að innleiða
kerfið og kenna á það, en það
stjórnast af umfangi rekstrar
og þeim kröfum sem not-
endur gera til kerfisins,“ segir
Ingvaldur.
Þess vegna Uniconta
Sífellt fleiri velja nú Uniconta
fyrir sinn rekstur og rétt er
að tíunda hina einföldu og
afgerandi kosti kerfisins:
Uniconta er eitt hraðvirkasta
bókhaldskerfi í heimi – hrein-
ræktuð skýjalausn þar sem
gagnaöryggi er í fyrirrúmi –
fullkomin lausn á verði sem
ekki hefur sést áður hér á
landi – einfalt er að innleiða
og aðlaga Uniconta.
Sjá nánar á uniconta.is.