Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 80
80 1. júní 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginMorgunblaðið 10. desember 1972
Áfengt gos
vinsælt hjá
unglingum
Á
rið 1998 urðu áfengir
gosdrykkir (alcopop)
vinsælir hér á landi,
sérstaklega hjá ung-
mennum og unglingum. En á
sama tíma voru drykkirnir að
hefja innreið sína á markaði
víða í Evrópu og margir höfðu
áhyggjur af þessari nýju vöru.
„Það hættulegasta við þetta
er að þarna er höfðað til ung-
linga en ekki fullorðinna. Það
er ekkert áfengisbragð eða lykt
af þessu gosi en áfengismagn-
ið er til staðar,“ sagði Ólafur
Haukur Árnason áfengisvarn-
arráðunautur í samtali við DV
13. febrúar.
Þórarinn Tyrfingsson, yf-
irlæknir á Vogi, tók í sama
streng. „Ríkisútsalan verð-
ur að fara að gera upp við
sig hvort hún ætlar að hafa
bindindissjónarmið í huga
því ef hún hefur það ekki þá
er grundvöllurinn fyrir því að
hafa þessa ríkisútsölu hrein-
lega brostinn.“
Guðjón og Lydía
föst í húsi sínu í viku
Ö
ldruð hjón, Guðjón Theó-
dórsson og Lydía Guðjóns-
dóttir, voru innilokuð í húsi
sínu í Reykjavík í eina viku
vegna fannfergis í febrúar árið 1984.
„Það er sífellt verið að tala um
ástandið úti á landi en svona getur
það nú verið hér í Reykjavík,“ sögðu
hjónin sem bjuggu á Hitaveitutorgi
1 í Smálöndunum. Mannhæðarhár
skafl var fyrir dyrum og ómögulegt
að komast út eða inn.
Hjónin liðu þó engan skort
þessa viku sem þau voru föst á
heimili sínu því ættingjar komu
með mat og aðrar nauðsynjar til
þeirra. Verra var að þeim var farið
að leiðast og Lydía þurfti að kom-
ast í reglubundna læknisskoðun.
Þau höfðu reynt að fá borgar-
starfsmenn til að aðstoða sig en án
árangurs. Hvorugt þeirra hafði séð
svo mikinn snjó í þau sex ár sem
þau höfðu búið í Smálöndunum.
Glímukappi úr Mývatnssveit
dæmdur fyrir samkynhneigð
G
uðmundur Sigurjónsson
Hofdal, glímukappi úr Mý-
vatnssveit, var árið 1924
dæmdur til átta mánaða
betrunarvinnu fyrir kynferðismök
við aðra karlmenn. Var hann því
eini Íslendingurinn sem dæmdur
var á grundvelli laga frá 1869 um
„samræði gegn náttúrulegu eðli.“
Ólympíuleikar og stríð
Guðmundur var frá bænum Litlu-
strönd í Mývatnssveit og ólst þar
upp í sárri fátækt og tíu systk-
ina hópi eins og segir í bók Þor-
valds Kristinssonar, Svo veistu
að þú varst ekki hér. Hann flutti
til Reykjavíkur árið 1905, æfði
glímu og þótti meðal þeirra
bestu á landinu. Árið 1908 komst
hann í sveitina sem send var á
Ólympíuleikana til að sýna glímu.
Guðmundur starfaði innan Ár-
manns en einnig sem íþrótta-
kennari á vegum Ungmennafé-
lags Íslands. Strax á þeim árum
fóru kvittir á kreik um að Guð-
mundur liti fremur til karlmanna
en kvenna en á Íslandi var þetta
slíkt tabú að varla nokkur þorði að
ræða það.
Árið 1913 sigldi hann vestur til
Kanada til að læra íþróttaþjálfun
og þar féll hann fyrir ísknattleik,
enda alinn upp á svellinu á Mý-
vatni. Hann spilaði með og þjálfaði
Íslendingaliðið Winnipeg Falcons
og árið 1916 fór hann með flestum
leikmönnum á vesturvígstöðvarn-
ar til að berjast með Bandamönn-
um við keisarann þýska. Eftir stríð-
ið bjó hann um stund í Svíþjóð og
árið 1920 flutti hann aftur heim
til Íslands og tók upp fyrri iðju
íþróttakennslu og þjálfunar.
Á Íslandi fékk Guðmundur
vinnu á Litla-Kleppi við Laufásveg
og aðstoðaði þar geðsjúka. Þetta
voru bannárin og Guðmundur var
virkur góðtemplari. Iðulega kom
hann upp um ólöglega áfengis-
sölu í bænum og kærði til dæmis
þrettán menn til lögreglu við litlar
vinsældir.
Kærður fyrir samkynhneigð
Í janúar árið 1924 var Guðmundur
kærður til lögreglunnar í Reykjavík.
Maður að nafni Steindór Sigurðs-
son sagði að Guðmundur hefði í
september árið áður ítrekað reynt
að fá hann til að hneppa frá sér
buxunum og sýna sér ástaratlot.
Hefði hann einnig heyrt frá fleir-
um að Guðmundur væri haldinn
„þessum mjög svo sorglega lesti“
að vilja hafa samræði við aðra
menn. Steindór sakaði Guðmund
einnig um slæma meðferð á geð-
sjúkum í störfum sínum á Litla-
Kleppi. Steindór dró kæruna
seinna til baka og viðurkenndi
að illvildarmenn Guðmundar úr
sprúttheiminum, Kristmann Guð-
mundsson og fleiri, hefðu boð-
ið honum fé en rannsóknin hélt
engu að síður áfram og málið var
höfðað.
Réttarhöldin yfir Guðmundi
hófust í undirrétti þann 28.
febrúar og fjórtán manns báru
vitni. Guðmundur neitaði öllu til
að byrja með og ljóst var að kæran
um illa meðferð var röng. En eftir
að vitnaleiðslur hófust var Guð-
mundur settur í gæsluvarðhald og
þá játaði hann að hafa átt í sam-
böndum við karlmenn um nærri
tveggja áratuga skeið, þar á meðal
nokkurra þeirra sem vitnuðu í
málinu. Hann sagðist einnig hafa
hneigðir til kvenna en aldrei ung-
linga undir 16 ára aldri.
Enginn vitnaði um að samfarir
í endaþarm hefðu átt sér stað
en löggjöf víða um heim gegn
samkynhneigð beindist sér í lagi
gegn „sódómíu.“ Skýrasti vitn-
isburðurinn kom frá tvítugum
manni sem sagði að Guðmundur
hefði nýtt sér ölvunarástand hans,
boðið honum á Litla-Klepp og þar
bæði fróað honum og veitt munn-
gælur.
Fordæmalaus niðurlæging
Dómari komst að þeirri niður-
stöðu að Guðmundur væri einn
gerandi í málinu og sekur. Aðrir,
sem viðurkennt höfðu að hafa
stundað kynlíf með honum, voru
taldir þolendur og sluppu við refs-
ingu, þar á meðal 23 ára gamall
maður sem titlaður var unglingur.
Var Guðmundi gerð átta mánaða
refsing í betrunarvinnu.
Virðist þó sem dómurinn hafi
reynst yfirvöldum vandræðalegur
og hófst afplánunin ekki fyrr en níu
mánuðum eftir uppkvaðningu.
Guðmundur Thoroddsen læknir
og Guðmundur Björnsson land-
læknir gagnrýndu dóminn og
töldu löggjöfina úrelta. Þeir töldu
að nútímavísindi sýndu fram á
að Guðmundur hefði ekki framið
neinn glæp. Ætla má að þessi
þrýstingur hafi valdið því að Guð-
mundur afplánaði aðeins þrjá
mánuði.
En félagslegur skaði var skeð-
ur. Guðmundur missti vinnuna
og hraktist tímabundið úr ung-
mennafélagsstarfinu. Í bók Þor-
valds segir: „Niðurlæging hans
var einsdæmi og auðmýking hans
tengdist engu í reynsluheimi Ís-
lendinga þeirrar tíðar.“ Fimm árum
síðar sneri hann aftur í glímuna og
gat sér gott orð allar götur síðan
þótt pískrað væri um hann. Guð-
mundur lést árið 1967. n
Dalvegi 16b / S. 510 0500
ERTU TENGDUR
FYRIR HM ?
ÞEGAR ÞÚ VILT SJÁ MEIRA
ERUM MEÐ LAUSNIR FYRIR
HEIMILIÐ OG SUMARBÚSTAÐI